Bí bí

Það hefur verið töluverð fuglaumferð í garðinum mínum síðast liðna daga en þeir fuglar sem ég hef séð út um gluggann eru Snjótittlingur, Bjargdúfa, Svartþröstur, Skógarþröstur, Starri og Gráþröstur.  Gaman er að fylgjast með atferli þeirra á meðan maður situr yfir veiku barni og strax kemur í ljós ákveðin goggunarröð.  Skógarþrösturinn kemur fyrst en um leið og starrinn mætir á svæðið víkur Skógarþrösturinn, Starrinn víkur svo fyrir Gráþrestinum.  Bjargdúfunni virðist hins vegar lynda sæmileg við aðra fugla, allavega virðist hún ekki vera í keppni um sama fóður og hinir fuglarnir.  Fólk er með óreglulegu millibili minnt á að gefa smáfuglunum og ég hef upp á síðkastið hent út til þeirra eplum, fitu og fuglakorni en þeir eru sólgnir í allt þetta.

Starrinn er nokkuð skemmtilegur fugl, kvikur og klár, þó að sumir hafi á honum ímugust.  Hann er algengur sunnan og vestan lands en ekki svo algengur hér um slóðir.  Nafnið fær hann af stjörnunum sem eru á brjósti hans og baki.

Gráþrösturinn er frekar styggur og var um sig, líkur skógarþresti en aðeins stærri og stéllengri og sést helst hér á landi á veturna, á þeim tíma sem sennilega væri gáfulegra að halda sig á suðlægari slóðum.  Eins ætti skógarþrösturinn að vera erlendis um þessar mundir en þó sjást alltaf einn og ein á veturna.

Hér er smá myndband, tekið út um gluggann og fram koma allir ofantaldir fuglar, auk ógreinilegs fugls sem ég hef ekki tegundagreint, væntanlega þó einhver af fyrrupptöldum fuglum, en hann sat upp á þaki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

S Kristján Ingimarsson

Höfundur

S Kristján Ingimarsson
S Kristján Ingimarsson

 

Faðir, sambýlismaður, fiskeldisfræðingur, íþróttaáhugamaður, tónlistaráhugamaður, kafari, og með allt of mörg áhugamál.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Mynd_0402140
  • 20160922 120421 (Large)
  • gömul vél (Large)
  • DSC_0042 (Large)
  • DSC_0014 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 66216

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband