31.3.2008 | 18:25
Brim
Þessi bloggfærsla er hvorki um útgerðarfélag né tískuverlsun eins og fyrirsögnin gæti gefið til kynna. Þessi bloggfærsla er eiginlega um voðalega lítið. Helgin var að mestu leyti afslöppunarhelgi. Fór samt í smá göngutúr í gær og m.a. út í Hvaley. Það er tilkomumikið að standa þarna og hlusta á brimgnýinn og finna jörðina nötra undir fótum sér vegna kraftsins í briminu. Ef þú nennir að horfa á brim í eina mínútu er það hægt hér fyrir neðan.
Nú er ég orðinn einn í kotinu þar sem mín elskulega sambýliskona fór til höfuðborgarinnar að undirbúa skírn sem verður um næstu helgi en þá verður dóttir okkar skírð við hátíðlega athöfn í Háteigskirkju og eflaust á nafnið eftir að koma mörgum á óvart. Ég er allavega með heimilið útaf fyrir mig þangað til.
Um bloggið
S Kristján Ingimarsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nafnið á óvart ? Birgitta Brynja eða þá Brynja Birgitta. Ekki spurning !
ha ha ha ha ha - ég er svo fyndin !
Húsmóðir, 31.3.2008 kl. 20:44
Hæ vinur
Þín er saknað
Bearnaise (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 08:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.