Ég er ekki Tottenham mašur

Ķ sumar mįlaši ég hśsiš mitt og nś lķtur žaš mun betur śt en ķ vor.  Ég gerši žó ein stór mistök viš litavališ en žegar ég var byrjašur aš mįla sį ég aš hśsiš er ķ Tottenham litunum, sem er skelfilegt.  Egill smišur benti mér nś samt į aš ég gęti bętt śr žessu meš žvķ aš fį mér stóran uppblįsinn Hallgrķm lękni, klętt hann ķ Tottenham bśning og sett hann upp į žak, žannig aš hann myndi svķfa yfir hśsinu.  Ég ętla aš reyna žetta.  Fyrir og eftir myndir mį sjį hér til hlišar og žess mį geta aš hśsiš er enn į sölu, ef žś įtt 11 milljónir er ég til ķ aš ręša mįlin.

Žaš er margt framundan į vinnusvišinu en žaš sem er nęst er žorskeldisrįšstefna į Hótel Framtķš į fimmtudag og föstudag en Djśpivogur er jś Mekka žorskeldis į Ķslandi žar sem tvö žorskeldisfyrirtęki eru į stašnum, annaš ķ įframeldi (Žorskeldi ehf) og hitt ķ aleldi (HB Grandi)

Ég setti inn ķ spilarann hér til hlišar žau lög sem mašur hefur oftast heyrt ķ sumar, ekki alslęm lög žó aš žetta sé nś ekki beint žaš sem  mašur hefur mest gaman af, žau eyšileggja allavega ekki góša skapiš.  Hér fyrir nešan er svo 50 sekśndna myndband af skarfi aš borša marhnśt ķ höfninni ķ gęr.   Skarfur er  einn fimasti sundfugl hér į landi og hann er nįnast eini afręninginn sem herjar į žorskeldiš hjį okkur žannig aš viš erum heppnir mišaš viš ašrar žjóšir sem eiga viš margar tegundir af afręningjum aš strķša, s.s. fugla, otra o.fl


« Sķšasta fęrsla | Nęsta fęrsla »

Bęta viš athugasemd

Ekki er lengur hęgt aš skrifa athugasemdir viš fęrsluna, žar sem tķmamörk į athugasemdir eru lišin.

Um bloggiš

S Kristján Ingimarsson

Höfundur

S Kristján Ingimarsson
S Kristján Ingimarsson

 

Faðir, sambýlismaður, fiskeldisfræðingur, íþróttaáhugamaður, tónlistaráhugamaður, kafari, og með allt of mörg áhugamál.

Nóv. 2024
S M Ž M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nżjustu myndir

  • Mynd_0402140
  • 20160922 120421 (Large)
  • gömul vél (Large)
  • DSC_0042 (Large)
  • DSC_0014 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Ķ dag (2.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frį upphafi: 0

Annaš

  • Innlit ķ dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir ķ dag: 0
  • IP-tölur ķ dag: 0

Uppfęrt į 3 mķn. fresti.
Skżringar

Innskrįning

Ath. Vinsamlegast kveikiš į Javascript til aš hefja innskrįningu.

Hafšu samband