1.5.2009 | 18:10
Hvar byrjaði þetta?
Svínaflensan er lögð af stað í heimsreisu en talið er að hún hafi komið upp í Mexíkó. Ég held hins vegar að hún eigi upptök sín hér á Djúpavogi og að veiran hafi verið búin að taka sér bólfestu í gömlu bræðslunni sem síðan var flutt til Mexíkó. Þegar verksmiðjunni var svo skipað upp í Mexíkóhöfn, þá náttúrulega skipti það engum togum að veiran slapp laus, enda búin að húka innan um eldgamalt síldar og loðnuhrat í mörg ár. Þá er nú sólin í Mexíkó meira heillandi. Barabbarabarababba Tequila! Annars virðist þessi faraldur ekki ætla að verðaeins skæður og reiknað var með í fyrstu samkvæmt þessum fréttum
1. maí á víst að vera frídagur en ekki var nú legið með tærnar upp í loftið. Byrjað var á að fara í "brunch" á Hótelið með Írisi, Brynju og Andra, svo var ég dreginn út að hlaupa með Telmu, síðan í fótbolta með Andra, síðan ýmis heimaverkefni og svo er Idol kvöld framundan. Kjósum Hröfnu 900 9001.
Svínaflensa staðfest í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
S Kristján Ingimarsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.