7.7.2010 | 23:07
HM - Undanúrslit
Hollendingar unnu Úrúgvæa nokkuð auðveldlega og virtust Úrúgvæarnir frekar þreyttir eftir hina hörðu rimmu þeirra við Ganverja. Þeir geta þó borið höfuðið hátt eftir keppnina en 3 - 4. sæti er nú ekki slæmur árangur og liðið hefur spilað skemmtilegan fótbolta. Van Bronckhorst skoraði eitt af mörkum keppninnar í leiknum en annað sem bar til tíðinda var að Forlan var sennilega að spila sinn slakasta leik í keppninni til þessa og þrátt fyrir að hann skoraði eitt mark var frammistaða hans ekki nægilega góð til að koma í veg fyrir sigur Hollendinga. Þá var merkilegt hvað Van Bommel var lengi að fá gult spjald, þrátt fyrir mörg brot í leiknum slapp hann þangað til í uppbótartíma.
Svo er það seinni undanúrslitaleikurinn. Ég hélt með Þjóðverjum enda voru þeir búnir að vera skemmtilegastir og frábærastir allt mótið. Spánverjar voru samt mun betri aðilinn í leiknum án þess að skapa sér mörg færi og hinu unga liði Þjóðverja varð ekki ágengt með að prjóna sig í gegnum sterka vörn Spanjólanna. Úrslitin voru því sanngjörn og það er eftirsjá af Þjóðverjum en þar sem liðið er ungt má reikna með því sterku í næstu keppni.
Þetta mót er búið að vera frábær skemmtun. Þó sér maður einn og einn væla yfir því að það sé hneyksli að sjónvarp allra landsmanna skuli vera að sýna frá íþróttaviðburðum sem þessum. Ég verð nú bara að segja að þetta fólk ætti frekar að samgleðjast okkur þessum sem finnst þetta besta sjónvarpsefni sem völ er á og virkilega góð tilbreyting á annars flatri og einsleitri dagskrá. Það er örugglega erfitt að gera öllum til hæfis en þetta allavega lífgar upp á tilveruna hjá stórum hluta þjóðarinnar og svo fer a.m.k. ég í gott sjónvarpsfrí að lokinni keppninni.Spánn leikur til úrslita | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
S Kristján Ingimarsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sama hér. Skil ekki þessar væluskjóður, já væluskjóður, sem geta ekki unnt meirihlutanum að fá sjónvarpsefni við hæfi öðru hvoru. Og líka sammála því að þetta er einhvert besta HM-mót sem ég hef séð og hef ég séð þau öll frá '82.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 8.7.2010 kl. 00:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.