18.4.2016 | 08:24
Stafar hætta af drónum?
30 atvik eru skráð á flugvöllum í Bretlandi síðustu 6 mánuði þar sem drónum hefur verið flogið nálægt flugvél og í sumum tilfellum hefur legið við árekstri svo að aðeins munaði nokkrum metrum. Kannski er bara tímaspursmál hvenær mannslíf tapast vegna ógætilegs drónaflugs en talið er að drónar geti gert gat á glugga flugvéla, skemmt hreyfla eða að eldhætta geti skapast við árekstur. Vegna smæðar koma drónar ekki fram á ratsjám og nú hafa menn áhyggjur af því að hryðjuverkamenn muni nýta sér dróna til þess að fremja voðaverk. Refsingin við því að fljúga dróna í nágrenni við flugumferð er 5 ára fangelsi í Bretlandi. Hvaða reglur skildu gilda um dróna á Ísandi? Annars er það skemmtileg tilviljun að nú er ég einmitt á leiðinni upp í flugvél þar sem ég ætla að sjá hljómsveitina Muse á tónleikum í Glasgow í kvöld en tónleikarnir eru hluti af Drónatónleikaferð hljómsveitarinnar. Vonandi verða tónleikarnir það eina sem tengist drónum í ferðalaginu.
Þota flaug á dróna við Heathrow | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
S Kristján Ingimarsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.