Færsluflokkur: Bloggar

Bekkjarafmælið

Sennilega eru flestir búnir að sjá þetta en það er nú alltaf hressandi að rifja þetta upp.

Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún var að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann. Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim. Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf og Hreinn Bolli. Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum. Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni. Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar - "#%=&#$&/(=!z#$!/!=! Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín? Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni. Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum. Hún var orðin alltof sein í afmælið.


Vistaskipti Zlatans og Eto'os

Þarna hefur Inter Milan nú heldur betur gert það gott, fá Eto'o + 45 milljónir Evra + Hleb í eitt ár fyrir að losna við Zlatan.  Þeir hafa heldur betur dottið í lukkupottinn og þetta hlýtur að flokkast undir bestu viðskipti ársins í boltanum. 

Ég sá í gær að Peter Crouch er að fara frá Portsmouth til Tottenham en það verður að segjast eins og er að Portsmouth er ekki að gera góða hluti en þeir eru búnir að losa sig við eina sex topp leikmenn á síðustu tólf mánuðum.  Þar að auki eru þeir með Paul Hart sem knattspyrnustjóra en hann hefur yfir tuttugu ára reynslu af því að stjórna knattspyrnuliðum en aldrei hefur hann náð neinum árangri.

 


mbl.is Zlatan og Eto'o sömdu til 5 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Köfun og kræklingur

Þessi vika er búin að vera bæði skemmtileg og erfið.  Áþriðjudaginn var ég kallaður í köfunarverkefni á Hornafjörð en snurvoðarbátur frá Keflavík hafði verið dreginn þangað með fast í skrúfunni.  Um klukkan fjögur hoppaði ég útí og hófst handa.  Sjórinn í höfninni á Höfn er afar gruggugur enda er dýpkunarprammi við störf þar.  Fyrst þegar ég fór niður þurfti ég að þreifa fram fyrir mig meðan ég synti til þess að finna bátinn en ég sá ekki fram fyrir olnbogana á mér.  Bonk!, allt í einu rak ég hausinn í eitthvað en það var stýrið og þá var ég búinn að finna rétta staðinn.  Síðan tók við vinna við að losa vír og net úr skrúfunni en þetta allt var vafið utan um öxulinn, fast milli skrúfuhrings og skrúfu, vafið utan um skrúfuna og lá þaðan upp í bát.  Ég fékk í hendurnar slípirokk sem var óspart notaður á þetta en heldur gekk þetta seint enda var þetta vegleg flækja og erfitt að ná vírunum í sundur, auk þess sem lélegt skyggni og fljótandi hlutar af netum voru ekki til að flýta fyrir.  Eftir um fimm tíma köfun var farið að ganga verulega á þrekið og að lokum var maður hættur að geta unnið vegna stanslausra krampa í fótunum.  Það var því ekki um annað að ræða en að hvíla sig, en eftir um hálftíma hvíld var haldið áfram og rétt fyrir tólf var búið að losa allt nema vafningana af öxlinum.  Þá voru orkubirgðirnar á þrotum og því ákveðið að stoppa upp og halda áfram daginn eftir.  Vegna vinnu komst ég ekki en Guðlaugur og Gummi Már héldu áfram með verkið sem þeir kláruðu á um fimm tímum.  Hvíldin eftir þetta var vel þegin.

Í vinnunni vorum við að lyfjafóðra seiði en það gekk bara vel og við bindum vonir við að ná að hressa þau við með þessu.   Á föstudag fengum við svo kræklingamenn úr Hrísey í heimsókn en þeir vildu ná sér í krækling þar sem kræklingur í Eyjafirði er nú óhæfur til neyslu vegna þörungablóma.  Þeir skófu um tvö tonn af kræklingi í kör og fóru með norður þar sem til stendur að halda skeljahátíð um helgina.  Við höfum öðru hvoru útvegað Hótel Framtíð krækling og hann er afar ljúffengur, þeir sem hafa tækifæri ættu að smakka hann.  Kannski maður fari bara í kvöld og gæði sér á kræklingi, humar og hvítvíni.

kræklingur í skel

kræklingur í kari

kræklingasöfnun


Ég fór á kellinguna í dag (með myndum)

Þessi fyrirsögn er nú e.t.v. svolítið villandi, en samt ekki, sú Kerling sem ég er að tala um er klettadrangur sem ber þetta nafn og stendur lengst upp í fjalli fyrir ofan Fagrahvamm á Berufjarðarströnd.  Drangurinn er um 10 m hár og minnir kannski svolítið á tröllkerlingu.  Þetta var afskaplega hressandi fjallganga sem tók svona 2 klst og ekki skemmdi fyrir að veðrið var til þess að hrópa húrra fyrir.  Húrra!.

Í gær fórum við fjölskyldan í örútilegu en hún tók allt í allt um það bil 16 klst.   Atlavík var staðurinn en snemma morguns var maður ræstur og skipað að fara heim enda var öðrum útilegumeðlimum frekar kalt í Atlavíkurnepjunni og jú, það var gott að koma heim í sólskinið og skella sér á kellinguna.

Annars var vikan bara hin ágætasta, í vinnunni fengum við fisksjúkdómafræðing í heimsókn á miðvikudag og þann dag var rannsakað og rannsakað.  Ástæðan fyrir heimsókna hans er að við erum þátttakendur í verkefni sem snýr að því að greina dauðaorsakir hjá eldisþorski, flokka dauðan fisk niður eftir því og skrá og halda saman upplýsingum um það.  Þetta allt saman á svo að nýta til þess að ná niður afföllum í þorskeldi. 

Eins og fram hefur komið fengum við send seiði fyrir um mánuði síðan en eins og okkur grunaði eru þau með bakteríusýkingu sem nefnist kýlaveiki og er ástæðan bakteríutegund að nafni Aeromonas salmonicida.   Þessa veiki á að vera hægt að lækna með pensillíni og því þurfum við að setja þorskana á tveggja vikna pensillín kúr. 

Svo er Teista búin að taka sér bólfestu í fóðurprammanum okkar, Stapaey, og hefur hún verpt einu eggi frammi í rennu stjórnborðsmegin.  Heimili hennar er nú ekkert sérstaklega íburðarmikið en hún hefur sópað saman málningar og ryðflygsum og gert það að heimili sínu. 

Annað sem gerðist í vikunni var að ég fór á stórskemmtilega tónleika með Svavari Knúti í Löngubúð og á miðvikudag borgaði ég, eins og allir aðrir íslendingar, 200.000 kr inn í tryggingafélag að nafni Sjóvá til þess að það færi ekki á hausinn.  Þessi gjörningur kom frá fjármálaráðherra okkar sem vill að skattgreiðendur taki á sig stærstu fjárskuldbindingu Íslandssögunnar, sama fjármálaráðherra og sagði fyrir kosningar að hann vildi ekki að Ísland gengi í Evrópusambandið en talar nú máli Evrópusinna til þess að flokksbræður hans fái að vera ráðherrar.  Flokkur sá er umræddur ráðherra tilheyrir vildi fyrir ekki svo löngu síðan banna vændi, flokkast þetta ekki undir það?

Myndirnar hér að neðan eru af kellingaruppáferðinni og Teistuhreiðrinu, já og svo ein góðviðrismynd af Brynju.

kelling (Large)

Útsýni frá kerlingu (Large)

kedling (Large)

Brynja á pallinum (Large)

Teistuegg (Large)


Zhirkov, Sturridge, Turnbull.

Yuri Zhirkov er kominn til Chelsea.  Vonandi á hann eftir að gera góða hluti, t.d. nokkur svona mörk:

 

Síðan er búið að kaupa tvo kjúklinga sem eiga eftir að sanna sig, þá Daniel Sturridge og Ross Turnbull, en sá sem er að lýsa leiknum er sannfærður:

Svo er það gleðiefni að John Terry mun verða um kyrrt, enda hefur hann enga ástæðu til að fara til Manchester City nema að hann fengi fullt af peningum.


mbl.is Zhirkov orðinn liðsmaður Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herbergi 206

Þá er þessi vika á enda komin.  Á mánudag flaug ég á Ísafjörð, með millilendingu í Reykjavík.  Á flugvellinum á Egilsstöðum var 25 stiga hiti og nánast ólíft þar í mollunni þannig að það var mjög ljúft að komast í súld og 10 stig á Ísafirði, svona eins og að koma heim.  Tilgangur ferðarinnar á Ísafjörð var að koma af stað rannsóknarverkefni í þorskeldi sem HB Grandi er þátttakandi, ásamt Hraðfrystihúsinu Gunnvöru á Ísafirði, Matís og Stofnfiski. 

Það er nú dálítið sérstakt að fljúga á Ísafjörð.  Fyrst er flogið frekar lágt yfir Djúpinu en síðan er sveigt inn á Skutulsfjörð og flogið meðfram fjallshlíðinni yfir bæinn þannig að ekki virðist vera nema svona einn faðmur frá vængendanum yfir í klettahlíðina.  Síðan þegar komið er innst í fjörðinn og ekkert blasir við nema fjallshlíð framundan er tekin U-beygja og í miðri U-beygjunni, birtist flugvöllurinn undir flugvélinni en það sést vel ef maður situr bakborðsmegin í flugvélinni.  Reyndar er flugvöllurinn það eina sem maður sér ef maður situr þar, af því að flugvélin flýgur svo lágt og hallar töluvert.  Eflaust hugsa einhverjir, "Nei, við náum þessu aldrei", en allt í einu réttir vélin sig af og sest á flugbrautina. 

Það er spurning hvort Ísafjörður er ekki dálítill draugabær, allavega er reimt á Hótel Ísafirði, nánar tiltekið í herbergi 206.  Um fjögurleitið um nóttina var skrúfað frá sturtunni inni á herberginu og látið renna í svona u.þ.b. tvær mínútur og svo var skrúfað fyrir.  Ég hafði mig ekki fram úr til að athuga hvernig stæði á þessu enda var eins og ég væri bundinn niður í rúmið og gat því ekki hreyft mig.  Fljótlega sofnaði ég en morguninn eftir þegar ég fór inn á bað, var gólfið á baðherberginu rennandi blautt. 

Á þriðjudeginum var farið út í Súðavík en þar var búið að setja þorskseiði í tilraunakvíar og þar verður þetta rannsóknarverkefni staðsett.  Þegar við höfðum lokið okkur af á Súðavík náði ég að fá mér smá göngutúr um höfnina auk þess að skoða minnismerki um snjóflóð.  Við höfnina var fullt af Þjóðverjum en verið var að landa úr þremur bátum sem allir höfðu verið með Þjóðverja í sjóstangveiði.  Fljótt á litið virtist hver bátur vera að landa u.þ.b. hálfu tonni af þorski.  Við flotbryggjuna voru svo voru einir tíu bátar sem biðu þess að fara með túrista á sjó.  Það er greinilega nóg að gera í sjóstangveiðinni en farþegar flugvélarinnar frá Ísafirði til Reykjavíkur voru nánast eingöngu Þjóðverjar með sjóstengur og ferðafrystikistur fullar af flökuðum þorski.  Minnismerkið um snjóflóðið lætur ekki yfir sér en það veldur hughrifum en frá minnismerkinu blasir við steypt gólfplata þar sem einu sinni var íbúðarhús og þarna létust 14 manns.  Eftir hádegi var haldið til Bolungarvíkur til fundar vegna verkefnisins en þangað hafði ég ekki komið áður.  Það var fremur lágskýjað og það var synd að geta ekki séð Bolafjall í allri sinni dýrð og því varð Bolungarvíkur heimsóknin ekki eins minnisstæð.  Ég náði samt að taka mynd af minnismerki um Einar Guðfinnsson athafnamann. 

Til stóð að fljúga til baka frá Ísafirði um kvöldið en lognið var of mikið á Ísafirði þannig að flugi var frestað þar til morguninn eftir.  Því var haldið á Hótel Ísafjörð til þess að athuga hvort hægt væri að fá gistingu.  Og viti menn, eitt herbergi var laust, herbergi 206.  Ekki heimsótti draugsi mig aftur um nóttina en draumfarirnar urðu þvílíkar, þannig að maður var á báðum áttum þegar risið var úr rekkju hvort maður væri úthvíldur eða úttaugaður.  Vonandi fæ ég samt herberi 206 aftur næst þegar ég gisti á Hótel Ísafirði.  Ferðin heim gekk svo tíðindalaust fyrir sig og við tóku hefðbundnir vinnudagar. 

Annars er það sem mér finnst hafa verið merkilegast í fréttum upp á síðkastið að auðvitað er það merkilegt að Michael Jackson sé dauður.  Ég man eftir því þegar ég heyrði fréttirnar af því þegar Elvis dó, þegar John Lennon dó og þegar Kurt Cobain dó og ætli maður muni ekki alltaf eftir þessum degi líka.  Þetta eru náttúrlega stórfréttir, þó að M.J. hafi ekki verið í neinu uppáhaldi hjá mér miðað við fyrrnefnda snillinga en fjölmiðlafárið í kjölfar þessara frétta er.  Svo eru það stórfréttir af öðrum Michael en hann hefur ættarnafnið Owen.  Liverpool maður sem fer til Manchester United, það er afar fátítt að það gerist og jafnframt merkilegt að Benitez hafi ekki viljað fá hann en það verður gaman að sjá hvernig hann spjarar sig með Mönsurunum.  

Hér á Íslandi snýst allt um Icesave núna og flestir sennilega fyrir laungu komnir með upp í kok af fréttum sem tengjast því helvíti.  Það er samt stórundarlegt að Steingrímur J, sem sagði fyrir nokkrum árum þegar ekki var kosið um Kárahnjúkavirkjun að það væri ömurlegur málflutningur og það væri verið að tala niður til fólks þegar sagt væri að einhver mál væru of flókin til að kjósa um þau.  Nú segir sá hinn sami að IceSave sé of flókið til að kjósa um það.  Hver er þá með ömurlegan málflutning og talar niður til fólks.  Það er greinilega ekki sama í hvaða sæti menn sitja.  Reyndar virðist VG vera klofinn í þessu máli miðað við málflutning þingmanna flokksins að undanförnu og samkvæmt könnunum virðist fygið vera að hrynja af þeim, enda er væntanlega stór hluti af fylgi þeirra óánægjufylgi fólks sem alltaf er óánægt með stjórnvöld.  Nú eru kannski markaðslegar aðstæður til þess að stofna Anarkistaflokk Íslands, ætli ég myndi ekki bara ganga í hann. 

Það er líka athyglisvert með skattahækkanirnar hjá Steingrími að par sem er samskattað getur lent í því að vera með lægri laun en hærri skatt en parið við hliðina sem er með hærri laun.  Það er líka athyglisvert að á meðan ríkisstjórnin er að hækka fullt af sköttum hér á landi eru aðrar þjóðir sem eiga í efnahagsvanda að bregðast við með því að lækka skatta og þannig ná þær þjóðir meiri snúningi á atvinnulífið, draga úr atvinnuleysi en fá meira í kassann þar sem fólk verður fúsara til að vinna, enda er þetta aðferð sem hefur margsannað sig í hinum ýmsu hagkerfum. 

Einar Guðfinnsson og frú

Gamli bærinn á Ísafirði

Landað úr sjóstangveiðibátum

Reipi

Skútuhöfn á Ísafirði


Mikið er ég ánægður

Mikið er ég ánægður með að mínir menn í Chelsea fóru ekki að eyða 18 milljónum í strákinn.  Í fyrsta lagi er það allt of mikill peningur, í öðru lagi erum við með mun betri hægri bakvörð en Johnson er, í þriðja lagi er hægt að fá jafn góðan eða betri hægri bakvörð fyrir miklu minni pening, í fjórða lagi vantar okkur ekki hægri bakvörð og í fimmta lagi vantar okkur frekar kantmann eða framherja þannig að það væri gáfulegra að eyða þessum pening í svoleiðis kalla.
mbl.is Benítez ver ákvörðun sína um eyðsluna í Johnson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsóknarverkefni

Í dag lenti ég til Reykjavíkur á fund vegna rannsóknarverkefnis sem fiskeldi HB Grandi tekur þátt í og ég er verkefnisstjóri í.  Verkefnið heitir bestun útsetningarstærðar og útsetningartíma þorskseiða í sjókvíar og verkefnið er unnið í samstarfi við Hraðfrystihúsið Gunnvöru, Matís, Háskólasetrið á Vestjörðum og Stofnfisk.  Fundurinn var afar gagnlegur en verkefnið snýr að því að kanna hvaða árstími og hvaða seiðastærð er hentugust til að setja í sjókvíar með tilliti til vaxtar og affalla en of lítill vöxtur og of mikil afföll gera það að verkum að aleldi á þorski er ekki enn orðið arðbært. Vitað er um ýmsa þá þætti sem má bæta í því sambandi en útsetningartími og útsetningarstærð hafa ekki verið rannsökuð nægilega vel sem er reyndar nokkuð undarlegt þar sem þetta eru grunnatriði í eldinu.  Annars hefur lífið haft upp á svo margt að bjóða upp á síðkastið að ekki hefur verið mikill tími til að hanga í tölvunni og hvað þá að skrifa pistla inn á bloggið.  Reyndar er það nú þannig með bloggið að ekki er endilega samasemmerki milli magns og gæða.  Hér eru svo tvær myndir af tveimur seiðum sem voru að koma heim í síðustu viku, teknar á ca 10 m dýpi í eldiskví.

þorskseiði

þorskseiði í kví


Leiðsögn

Þá er senn að ljúka ágætri vinnutörn vikunnar.  Ég ætlaði að vera löngu búinn að blogga en hef ekki komist í tölvu nema í samtals svona tíu mínútur það sem af er vikunnar.  Vinnuvikan hófst á mánudagsmorgun en þá var skemmtiferðaskip hér í bæ og ég tók að mér að leiðsögn fyrir hópinn sem fór út í Papey.  Veðrið var alveg dásamlegt þeg ég rak nefið út um dyrnar um morguninn en þegar niður á bryggju var komið var ég ekki viss um hvor ég væri ennþá í fastasvefni í draumalandinu en þar stóð, í steikjandi hita og sólskini, maður  í skotapilsi sem lék á sekkjapípur af miklum móð.  Þetta var ekki draumur.  Mig hefur lengi langað að eignast sekkjapípur en það væri nú ekki amalegt að geta rifið upp stemminguna í fjölskylduboðum með líflegum sekkjapípuleik.  

Ég hef nú stundum farið sem afleysingaleiðsögumaður út í Papey og finnst bara fínt að fara í svona einn og einn túr, sérstaklega í veðri eins og var á þessum degi.  Ég myndi nú ekki vilja vinna við það dags daglega að vera leiðsögumaður, vegna þess að þetta getur verið alveg hræðilegt starf.  Sumt fólk lætur eins og það hvorki heyri í manni né sjái mann, maður þarf að segja sömu hlutina aftur og aftur og aftur og það verður leiðgjarnt eftir nokkra daga,  allt er leiðsögumanninum að kenna eins og ef krakki hrasar, það er rigning, það springur dekk. Leiðsögumaður þarf að vita allt,  „hvað voru bústaðir Papa stórir"?.  „Hversu lengi voru víkingarnir að sigla frá Noregi til Íslands ef það voru ríkjandi sunnanáttir 5 - 10 m/s"?  Þá þarf leiðsögumaður að geta skáldað upp svör hratt og örugglega og svara þessum spurningum „uuu 36 fermetrar" og „2 mánuðir og átta dagar".  „Í alvöru?"  „jebbs" . 

Annars gekk Papeyjarferðin  alveg glimrandi vel og farþegarnir voru í skýjunum með ferðina enda var veðrið eins og það gerist best (Það hlýtur að vera hinum óviðjafnanlega leiðsögumanni að þakka).   Flestir farþegarnir voru Skotar og Englendingar og stærsti hlutinn fræðimenn af einhverju tagi.  Þegar fræðimenn eiga í hlut er það eðli þeirra að spyrja margra spurninga og þá er „Af hverju?" algeng spurning.  Ég var spurður af hverju er ekki búið að kanna nánar tilvist Papa á Íslandi.  Ég svaraði því til að það væri bara ágætt og að okkur liði betur með þetta svona,  annars þyrfti að gjörbreyta allri leiðsögn hjá Papeyjarferðum.  Reyndar eru þessar „Af hverju„ spurningar oft erfiðust spurningar sem maður fær,  það er auðvelt að svara spurningum eins og „Hvað er klukkan"? Eða „Hvenær var frostaveturinn mikli 1918"? Eða „af hverju stoppa öryggisbeltin þegar kippt er snöggt í þau"?  Þetta eru allt auðveldar spurningar og svörin eru í sömu röð og spurningarnar:  „Hálf níu að kvöldi",  „í janúar „og „ekki spyrja svona heimskulega".  Svörin við „af hverju" spurningunum eru ekki jafn einföld og þau liggja ekki í augum uppi þegar spurt er „Af hverju fæðumst við" ? og „af hverju deyjum við" ? og „Af hverju eyðum við svona miklum tíma á Facebook"? eða „viltu sofa hjá mér"?  „Af hverju"?  Það er nú samt alltaf hægt að svara „af hverju ekki"? nú eða bara „Ekki spyrja svona heimskulega".  Því miður á ég ekki myndir úr ferðinni en sjá má myndir frá þessum degi hér og hér.

Eftir Papeyjarferð var svo haldið til Reykjavíkur en erindið var að fylgjast með afgreiðslu seiða sem nú hafa verið send austur. Til Reykjavíkur var komið um kl 11:00.  Daginn eftir voru svo þrír fundir fyrri hluta dagsins og svo seiðaafhending um kvöldið en það var ekki fyrr en um þrjú um nóttina sem hægt var að fara að sofa.  Eftir um þriggja tíma svefn var svo lagt í hann til baka austur.  Á leiðinni heyrði ég lagið Betri tíð með Stuðmönnum og ég er ekki frá því að það sé sumarlegasta lag Íslands.  Þegar austur var komið tók við stærðarmæling á þorskum en því var lokið um kl hálf átta og þá var að bíða eftir seiðunum en von var á þeim um kl sex morguninn eftir.  Lungann úr deginum vorum við svo að snudda í kringum þessi nýju seiði og því verður framhaldið næstu daga en á morgun verður haldið á árshátíð hjá HBGranda sem haldin verður í bænum.

norður

Mig langar að segja frá því að í dag sótti ég aðalfund Landssambands fiskeldisstöðva. Ekið var sem leið liggur yfir Öxi, gegnum Egilsstaði, Vopnafjörð, Þórshöfn, Pussy harbour og Kópasker þar til komið var í Silfurstjörnuna.  Ýmislegt forvitnilegt bar fyrir augu og þar bar hæst að alltaf er jafn mikið af rekaviði við uppeldisstöðvar skattmanns hins nýja, Langanes, Melrakkasléttu og Öxarfjörð, það mikið að eflaust mætti byggja um það bil tvö tónlistarhús úr þessu úrvals byggingarefni.  Svo mikið er af þessu að sums staðar hafa bændur gripið til þess ráðs að hafa aðeins um meter á milli girðingarstaura (sem eru að sjálfsögðu úr rekavið) á meðan bændur sem búa við minni reka hafa að lágmarki fimm metra á milli staura.  Ég hef aldrei fyrr en í dag komið að Rifstanga (66°32´N), og hvað er meira viðeigandi þegar maður er við nyrsta odda Íslands að mæta Ísbílnum.  Að fundi loknum voru fiskeldisstöðvar norðan heiða skoðaðar en þar er í eldi lax, bleikja, sandhverfa og lúða.  Ferðin heim var tiltölulega róleg en framundan eru meiri ferðalög og m.a. er stefnt á að fara eftir helgi að sækja fáein þorskseiði.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

S Kristján Ingimarsson

Höfundur

S Kristján Ingimarsson
S Kristján Ingimarsson

 

Faðir, sambýlismaður, fiskeldisfræðingur, íþróttaáhugamaður, tónlistaráhugamaður, kafari, og með allt of mörg áhugamál.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Mynd_0402140
  • 20160922 120421 (Large)
  • gömul vél (Large)
  • DSC_0042 (Large)
  • DSC_0014 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband