Færsluflokkur: Bloggar

Til hamingju

Það er búin að vera hrein unun að fylgjast með Hröfnu í þessari keppni, Idol stjörnuleit.  Lengi hefur það verið vitað að stelpan getur sungið en ég man fyrst eftir henni í Skilaboðaskjóðunni sem Grunnskóli Djúpavogs setti upp veturinn 2002 - 2003 þegar Hanna Lísa var í 10. bekk.  Næst birtist hún í söngkeppni framhaldsskólanna þar sem hún keppti fyrir Verkmenntaskólann á Neskaupstað og svo skaut hún upp kollinum aftur í áheyrnarprufum Idol stjörnuleitar, ásamt Soffíu systur sinni.  Einhvern veginn trúði maður því ekki í fyrstu að hún færi alla leið, en það var unaðslegt að fylgjast með hvernig henni óx ásmegin eftir því sem leið á keppnina.  Allan tímann átti maður samt von á að hún dytti út og fögnuðurinn varð því alltaf meiri og meiri eftir því sem leið á keppnina.  Í kvöld var svo skundað á Hótel Framtíð þar sem yfir 100 manns fylgdust með.  Stemmingin var frábær, klappað og stappað en þegar úrslitin voru kynnt lá við að þakið rifnaði af Hótelinu.  Mér skilst að stelpurófan hafi ætlað sér að vinna í Löngubúð í sumar en væntanlega breytast þau plön í kjölfar þessa.  Nú er Hrafna Hanna Lísa frægasti Djúpavogsbúinn, til hamingju, þetta var frábært.
mbl.is Fékk tvær milljónir í verðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fuglinn er floginn

Fyrir u.þ.b. 2 árum síðan smíðuðum við Andri fuglahús og komum því fyrir á sólpallinum. Eitthvað var það við húsið sem heillaði ekki fuglana til þess að velja sér það til búsetu og hefur það látið á sjá á þessum tveimur árum þannig að nú, eftir nokkuð mörg norðanfárviðri, er ekkert eftir af því nema fjögur horn og þak en einnig er eftir einn vegur sem veitir ekkert skjól fyrir vindi.  Í vor brá nú samt svo við að skógarþrastapari einu fannst þetta húsnæði bera af öðrum og valdi sér það til búsetu.  Oft vilja menn kenna eða þakka kreppunni ýmislegt sem hendir okkur þessa dagana og e.t.v. er það kreppunni að kenna að þrösturinn valdi sér þennan ræfilslega húsakost.  Ekki finnst mér nú samt líklegt að skógarþrösturinn hafi hugmynd um kreppuna, ég hallast frekar að því að hann standi í þeirri trú að nú sé góðæri.  Allavega, ef þú ætlar að smíða fugla hús þá skaltu hafa það veggjalaust með þaki og stilla því upp þar sem er lítið skjól.  Þannig aðstöðu valdi allavega mitt þrastapar sér. 

Sumum þykir nú kannski Þröstur ekki svo merkilegur fugl og ég neita því ekki að það hefði verið tilkomumeira að hafa Fálkahreiður á pallinum en maður verður að láta sér þröstinn lynda þetta árið.

Þann fyrsta maí voru komin þrjú egg í hreiðrið og í framhaldi af því var öll umferð um sólpallinn takmörkuð.  Útungunartími þrastareggja eru 12 - 13 dagar en þann 8. og 9. maí gerði mikið norðanrok.  Eftir að veðrið var gengið niður, kíkti ég ofan í hreiðrið til þess að athuga hvort ekki væri allt í lagi, af því að mér fannst þrastarmamman vera farin að vera mikið fjarverandi, kannski efnahagsástandið spili hér inn í líka af því að ekki gengur að annað foreldrið vinni utan heimilis.  Þá brá svo við að aðeins tvö egg voru í hreiðrinu.  Ekki veit ég af hverju eitt eggið var horfið.  Tveimur dögum síðar kíkti ég aftur en þá var ekki eitt einasta egg eftir í hreiðrinu en eitt egg lá brotið á sólpallinum, og þrösturinn búinn að yfirgefa hreiðrið!  Sennilega mun hann ekki verpa í þessu húsi aftur í sumar en kannski einhversstaðar annarsstaðar.  Hvað gerðist þarna veit ég ekki, ég varð ekki var við neina afræningja en ekki er hægt að útiloka það, eflaust er eðlileg skýring á þessu, hver svo sem hún er.  Ég er allavega saklaus af því að hafa haft þrastaregg og beikon í morgunverð enda eru spæld þrastaregg ekki nema rúmlega á stærð við tíkall og eggjarauðan á stærð við græna baun.


Til hamingju Ísland

Frammistaða Íslands í Eurovision var bara alveg ágæt.  Ekki finnst mér lagið skemmtilegt en það var afskplega vel flutt og virtist eiga töluvert fylgi ef marka má viðbrögðin í salnum.  Annars fannst mér finnska lagið best, jú og ég hefði getað hugsað mér að gefa kór rauða hersins 12 stig.  Svo er nú Sigmar alltaf skemmtilegur í þessu Eurovision hlutverki.  Ég verð líka að nefna sviðsmyndina hjá Rússunum en stundum gleymdi maður að hlusta eða horfa á lagið þegar ljósamennirnir fóru hamförum.


mbl.is Ísland komið áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kók eða Pepsi

Í dag er 8. maí og það er merkilegur dagur í viðskipta og markaðssögu þessa heims.  Það var einmitt á þessum degi árið 1886 sem að Coca-Cola var sett fyrst á markað af heiðursmanninum John Pemberton.  Þessi gjörningur hans leiddi svo eins og allir vita til einnar lengstu styrjaldar sem háð hefur verið, þ.e. stríðið um kólamarkaðinn milli kók og pepsi.  Pepsi var sett á markað árið 1898 og þar með var stríðið hafið þó að menn hafi kannski ekki gert sér grein fyrir því á þeim tíma.  Árið 1933 bauðst Coca-Cola fyrirtækinu að kaupa Pepsi fyrirtækið en þeir höfnuðu því og hafa væntanlega nagað sig í handarkrikana eftir það en við búum ennþá við harða samkeppni milli þessara fyrirtækja og það líður vart sá dagur, að við verðum ekki vör við Pepsi eða Kók á einhvern hátt, í auglýsingum, sjónvarpsefni í verslun eða á annan hátt.  Þá er það bara spurningin, Kók eða Pepsi?

Coke-vs-Pepsi


Borgarfjörður sóttur heim

Dagurinn í dag fór að öllu leiti í að sækja aðalfund Menningarráðs Austurlands en þar sit ég víst í stjórn fyrir hönd suðursvæðis, sem er Djúpavogshreppur og Sveitarfélagið Hornafjörður.  Farið var yfir Öxi sem var alauð þar til komið var upp fyrir Þrívörðuháls og farið að halla í Norður en þá skall á hríðarbylur svo varla sást milli augna en það lagaðist svo þegar komið var út undir þjóðveg eitt.  Frá Egilsstöðum og niður á Borgarfjörð var svo norðan rok og slydda.  Mikið var af villibráð á leiðinni, Hreindýr, Gæs, Rjúpa og Tjaldur en engin voru veiðarfærin. 

Á Borgarfirði var vetur en það skipti ekki miklu máli til að byrja með þar sem fundurinn var haldinn inni í Vinaminni.  Menningarmál á Austurlandi þykja vera til fyrirmyndar en menningarviðburðum hér fyrir austan hefur fjölgað á undanförnum árum, ekki síst vegna stuðnings Menningarráðsins. 

Eftir fund var skundað út í Hafnarhólma þar sem við stóðum úti í slyddunni, auk þess sem brimið sem skall á grjótgarðinum gekk yfir bílaplanið þar sem við stóðum.  Eldri maður sagði okkur stuttlega frá Hafnarhólminum en hann hefur víst vaktað hann í um 70 ár.  Maður þarf að kíkja betur á þetta í sumar, kannski verður hægt að nota ferðina þegar Bræðslutónleikarnir verða, þ.e. þegar ég fer í tónleikaferðalag.   Eftir Hafnarhólmaskoðun var farið í Fiskverkun Karls Sveinssonar en hann er víst kóngurinn á Borgarfirði.  Hann verkar alls konar fisk, m.a. kíktum við á signa grásleppu og þurrkaða tindabikkju en þetta eru án efa afurðir sem má gera pening úr, allavega eru of margir sem henda svona peningum.  Svo kíktum við á nýja veitingastaðinn sem hann er að innrétta í gamla Álfasteinshúsinu og verður eini fiskiveitingastaðurinn á Austurlandi og þetta framtak lofar góðu.  Maður verður sennilega líka að kíkja þangað í Bræðslutónleikaferðinni.  Heimferðin gekk vel en við neyddumst til að þræða fjarðaleiðina heim vegna þæfings á Öxi.  Nú er bara að bíða eftir bræðslutónleikahelginni.

Annað dópmál

Annað dópmálið á stuttum í tíma í Berufirði er komið upp.  Þetta er greinilega "bellybutton of the universe".  Ég keyrði þarna um í dag en sá enga hreyfingu þó hef ég heyrt að þetta hafi verið á eyðibýli sem stendur við fjörðinn og hafa Karlsstaðir verið nefndir í því sambandi.  Nú er tækifæri fyrir Djúpavogshrepp að nýta tækifærið og bjóða fíkniefnalögreglunni að setja upp útibú í hreppnum. 
mbl.is Kannabisræktun í Berufirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar byrjaði þetta?

Svínaflensan er lögð af stað í heimsreisu en talið er að hún hafi komið upp í Mexíkó.  Ég held hins vegar að hún eigi upptök sín hér á Djúpavogi og að veiran hafi verið búin að taka sér bólfestu í gömlu bræðslunni sem síðan var flutt til Mexíkó.  Þegar verksmiðjunni var svo skipað upp í Mexíkóhöfn, þá náttúrulega skipti það engum togum að veiran slapp laus, enda búin að húka innan um eldgamalt síldar og loðnuhrat í mörg ár.  Þá er nú sólin í Mexíkó meira heillandi.  Barabbarabarababba Tequila!  Annars virðist þessi faraldur ekki ætla að verðaeins skæður og reiknað var með í fyrstu samkvæmt þessum fréttum

1. maí á víst að vera frídagur en ekki var nú legið með tærnar upp í loftið.  Byrjað var á að fara í "brunch" á Hótelið með Írisi, Brynju og Andra, svo var ég dreginn út að hlaupa með Telmu, síðan í fótbolta með Andra, síðan ýmis heimaverkefni og svo er Idol kvöld framundan.  Kjósum Hröfnu 900 9001.

gengið um á sandi (Large)


mbl.is Svínaflensa staðfest í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að liðinni hátíð

Það er mikið um hátíðir þessa dagana, eftir páska koma sumardagurinn fyrsti, 1. maí, uppstigningardagur, hvítasunna og Hammondhátíð.   Nýliðin Hammondhátíð er sú fjórða og jafnframt sú sem ég hef skemmt mér best á og ég hef reyndar heyrt fleiri segja að þetta sé sú besta til þessa.  Auðvitað er afskaplega skemmtilegt að fá sjálfur tækifæri til þess að spila og syngja í þessu en það er nú svo að þeir listamenn sem tróðu upp á þessari hátíð voru hver öðrum færari enda ekki von á öðru þegar landsliðið í tónlist á í hlut.  Fyrir utan það að spila sjálfur fannst mér skemmtilegast að hlusta á KK en reyndar missti ég af eftirtónleikum með Davíð Þór, Ragnheiði Gröndal og Guðmundi Péturssyni á föstudagskvöld sem ku hafa verið feikigóðir.

Mér heyrist að aðstandendur hátíðarinnar séu fullir af eldmóði fyrir næstu hátíð og reikna má með að hún verði enn stærri en hátíðin í ár og nú þegar hefur það heyrst að Hjálmar muni heiðra okkur með nærveru sinni.  Þá er spurning hvort hótelið er nógu stórt en þá gæti þurft að færa hátíðina yfir í íþróttahús.  Hér er svo smá brot af okkar framlagi.


Ja hérna

Ja hérna, stundum er ágætt að maður horfir á einn og einn fótboltaleik.  Ég frétti í gærmorgun að það væru þrír kafarar á staðnum og var spurður hvort þeir hefður ekkert haft samband við mig.  Ekki höfðu þeir gert það en um fjögur leitið í gær þear ég var á leiðinni að horfa á Chelsea - Arsenal (sem Chelsea vann með glæsibrag, 2:1) sá ég að þeir voru að brasa eitthvað við slöngubátinn.  Ég hugsaði um það í fúlustu alvöru að kíkja til þeirra og spyrja hvort ég mætti ekki koma með þeim í köfunarferð, ég gæti nú bent þeim á tvo til þrjá ágæta staði til að kafa á.  Það er spurning hvernig svipurinn hefði orðið á þeim og hvernig svörin hefðu verið  ef ókunnugur maður hefði komið og spurt: "Hvað segið þið er ekki pláss fyrir einn?  Á ég ekki bara að djóína ykkur?"  Svo var báturinn horfinn að leik loknum og kannski hefði maður verið fluttur í járnum til Reykjavíkur í dag, hver veit.  

Það vakna samt spurningar þegar svona mál kemur upp, eins og: Er tímasetningin tilviljun?  Þetta kemur upp á sama degi og Gísli Hjörvar era ð halda upp á 25 ára afmælið sitt!  Svo er Hammond hátíð eftir nokkra daga, átti að fara alla leið í sýrutónlistinni?

 

Höfnin II (Large)


mbl.is Lagt hald á slöngubátinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farið á fjörurnar

Þessa páska hef ég notið þess að vera í fríi en fríið hefur að mestu verið notað í tónlistariðkun og útivist.  Á föstudag var stapinn við Þvottárskriður skoðaður en í dag var svo farið með Ferðafélaginu og Melrakkanesfjörur gengnar.  Ég hafði aldrei skoðað þennan stapa í návígi þannig að það var kominn tími á það en litirnir í klettunum þarna eru nokkuð sérstakir.  Melrakkanesið er líka skemmtilegt svæði að ganga um.  Þar er töluverður jarðfræðilegur fjölbreytileiki, á þessu litla svæði er t.d. hægt að sjá þó nokkrar bergtegundir sem hlotið hafa mismunandi tegundir af veðrun.  Þarna eru þrír hellar sem voru skoðaðir og er einn hellirinn um 30 m langur, opið á honum er þröngt en þegar inn er komið er hann nokkuð rúmgóður og vel hægt að standa uppréttur.  Sagan segir að þar hafi menn falið landakúta áður fyrr og einhverju sinni fundu eigendur landans dauða rottu í einum kútnum.  Þeir létu það þó ekki á sig fá en veiddu hana upp úr og fleygðu henni og drukku svo landann með bestu lyst. 

 líparítklettur (Large)

 hellir (Large)

 sprunguklettur (Large)

Stapi II (Large)

litríkir klettar (Large)

 grár og gulur (Large)

Stapi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

S Kristján Ingimarsson

Höfundur

S Kristján Ingimarsson
S Kristján Ingimarsson

 

Faðir, sambýlismaður, fiskeldisfræðingur, íþróttaáhugamaður, tónlistaráhugamaður, kafari, og með allt of mörg áhugamál.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Mynd_0402140
  • 20160922 120421 (Large)
  • gömul vél (Large)
  • DSC_0042 (Large)
  • DSC_0014 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband