Færsluflokkur: Bloggar

Svartur svanur

Sjaldséðir eru hvítir hrafnar segir máltækið en ef til vill mætti líka segja sjaldséðir eru svartir svanir.  Þeir sjást þó öðru hvoru og í dag var einn slíkur í Álftafirði.  Við Andrés tókum smá fuglaskoðunarrúnt í dag og náðum að sjá 30 fuglategundir en nú er einmitt sá tími að ganga í garð þegar fuglalífið er hvað líflegast.  Ég var með fyrirlestur um fuglaskoðun á Djúpavogi fyrir Fuglavernd í höfuðstöðvum KB banka á þriðjudag og þar mættu milli 40 og 50 fuglaáhugamenn.  Á mánudag var ég svo í viðtali í útvarpsþættinum samfélaginu í nærmynd þar sem verið var að fjalla um sama málefni.  Það er svo vonandi að fuglaskoðarar nær og fjær nýti sér aðstöðuna hér um slóðir til fuglaskoðunar í vor og á komandi sumri.


Nýra til sölu

Hef til sölu nýra úr fertugum karlmanni, vel með farið í góðu ástandi, hefur aldrei bilað.  Skipti á öðru líffæri koma ekki til greina, tilboð óskast.   Er til viðræðu um sölu á fleiri líffærum fyrir rétta upphæð.  Verð í Reykjavík frá og með morgundeginum og fram í næstu viku ef fólk vill kynna sér. 

Hammond hátíð

Senn líður að Hammondhátíð á Djúpavogi, hún verður haldin dagana 23. - 25. apríl, en þetta er í fjórða sinn sem hátíð þessi er haldin og ávallt hefur Hammond orgelið verið í öndvegi.  Ég verð að segja að það sem ég er búinn að heyra og sjá af væntanlegri dagskrá, þá hef ég aldrei verið eins spenntur fyrir væntanlegum tónleikum eins og þeim sem verða þetta árið.  Ég á sem sat von á skemmtilegustu Hammondhátíðinni til þessa.  Þeir listamenn sem fram að þessu hafa troðið upp hafa ekki vakið upp neina sérstaka löngun eftir áhorfi og hlustun hjá mér.  

Þeir sem eru væntanlegir að þessu sinni eru KK með sína hljómsveit.  Mér áskotnaðist  nýjasti diskurinn hans og hann er að mínu mati einn sá besti sem KK hefur sent frá sér.  Á honum kemur fram einlægni og lof til lífsins, einstaklega þægilegur áheyrnar.  Hann verður ekki með neina aukvisa með sér en þeir Þorleifur Guðjónsson (bassi), Jón Ólafsson (Hammond), Björgvin Gíslason (gítar) og Ásgeir Óskarsson (trommur) verða KK til halds og trausts.

Þá verða einnig á hátíðinni Halldór Bragason (nýkominn af blúshátíð) og landsliðið en landsliðið skipa að þessu sinni þau Ragnheiður Gröndal (söngur), Davíð Þór Jónsson (Hammond), Guðmundur Pétursson (gítar), Róbert Þórhallsson (bassi) og Birgir Baldursson (trommur), einvala lið þar á ferð. 

Þar að auki verða austfirskir tónlistarmenn með afar áhugaverða dagskrá og Dallas group inc verður með dagskrá á fimmtudagskvöldinu en stífar æfingar eru framundan hjá þessari einstöku hljómsveit.  Svo hefur flogið fyrir að B. Sig verði jafnvel með tónleika en þeir ku vera afskaplega hressir og skemmtilegir þannig að það væri gaman að heyra og sjá þá.  Þetta ræðst þó töluvert af því hversu mikið af peningum verður úr að spila en styrkir eru að mér skilst í lámarki þetta árið, en það er víst afleiðing af svokallaðri kreppu.

Annars finnst mér helst hafa vantað á liðnar Hammondhátíðir einhverja sem höfða til yngra fólks.  Reyndar finnst mér almennt vanta viðburði á staðinn sem eru fyrir yngra fólk, mér finnst allir viðburðir sem hér fara fram sniðnir fyrir þá sem eru fertugir og eldri.  Stór hluti af íbúunum er þar fyrir neðan og að mínu mati mætti fjölga tækifærum fyrir  þann hóp til að njóta skemmtunar, menningar og félagslífs.

Að lokum er vefur Hammondhátíðar hér og ætli megi ekki reikna með að dagskráin tínist þar inn smátt og smátt næstu daga.


Fréttaaukinn

Í kvöld var á dagskrá RÚV þáttur sem heitir fréttaukinn þar sem m.a. voru sýndir valdir kaflar úr sænskum þætti sem kallast bleika gullið og fjallar um laxeldi og hvaðan hráefni í fóður fyrir laxinn kemur.  Í þættinum voru viðtöl við tvo stjórnendur Eskju og það verður að segjast eins og er að þeir voru ekki góð auglýsing fyrir land og þjóð, a.m.k. ekki bræðslustjórinn.   Mér skilst að þessi sænski þáttur verður sýndur í heild sinni síðar.  

Ýmislegt sem kemur fram í þessum þætti er hreinlega rangt eða má misskilja.    T.d.  mátti skilja sem svo að nánast allt mjöl og lýsi sem framleitt er væri notað við framleiðslu fiskafóðurs.  Þetta er alrangt.  Á heimsvísu eru framleidd um 5 milljón tonn af fiskimjöli en innan við 10% af því (6,8% árið 2007) var notað við framleiðslu fiskafóðurs í Noregi.  Restin fer í framleiðslu fóðurs fyrir landdýr,s.s. kjúklinga, svín, nautgripi o.þ.h.  Í þættinum hélt Thomas Pauly, prófessor frá Bresku Kólumbíu í Kanada því fram að eftir því sem meira er framleitt af eldisfiski því meira þurfi að veiða af svokölluðum bræðslufiski sem notaður er í fóður fyrir eldisfisk.  Þetta er að sjálfsögðu alrangt. Aukin eftirspurn eftir eldisfiski hefur ekkert með fiskveiðar að gera.  Allar þjóðir sem framleiða fiskimjöl og lýsi stjórna sínum fiskveiðum að fengnum ráðleggingum vísindamanna (hér á landi er það Hafró) og svo er einnig tekið tillit til hagfræðilegra og félagslegra þátta við endanlega ákvörðun.  Það hefur líka sýnt sig að aukið eldi hefur ekki leitt af sér auknar veiðar.  Fiskeldi er því ekki ástæðan fyrir því að ofveitt sé úr ákveðnum stofnum, heldur er þar um að kenna lélegri fiskveiðistjórnun.  

Eins og staðan er núna þarf um 2 kg af villtum fiski til þess að framleiða 1 kg af eldisfiski.  Áður fyrr voru þetta 5 - 7 kg þannig að verulegur árangur hefur náðst í þessum efnum.  Stefnan er að ná því að framleiða 1 kg af eldisfiski úr 1 kg (eða minna) af villtum fiski en það hefur tekist inni á rannsóknarstofum og er eitthvað sem fóðurframleiðendur eru að keppa að.  Til samanburðar má nefna að villtur lax þarf að éta um 10 kg af villifiski til þess að þyngjast um 1 kg.  Þá er rétt að nefna að hlutfall jurtapróteina í fóðri hefur verið að aukast undanfarin ár og eflaust mun það aukast enn frekar á næstu árum.   Nú hafa WHO og fleiri stofnanir sem hafa með heilbrigðis og manneldismál að gera hvatt fólk til þess að borða meira af fiski og ef það á að ganga eftir þarf að koma til aukin framleiðsla á eldisfiski þar sem flest allar villtar tegundir virðast vera fullnýttar.  Ef fiskeldisiðnaðurinn á að vaxa þarf hráefnið annaðhvort að koma  úr jurtaríkinu eða þá að framleiðsla fiskafóðurs úr fiskapróteini aukist á kostnað húsdýrafóðurs.  Þá má geta þess að hluti af þeim 2 kílóum sem notuð eru við framleiðslu á 1 kg af laxi nýtist aftur sem fóður fyrir húsdýr þar sem afskurður og slóg úr laxi má nýta til fóðurframleiðslu.

Það sem eftir stendur er að margt í þessum þætti þarf að taka með töluverðum fyrirvara.  Mér finnst það líka leitt að við gerð þátta sem þessara skuli málin ekki vera skoðuð betur, t.d. með því að fá álit hjá fleiri aðilum til þess að fleiri sjónarmið komi fram og fólk eigi þar með auðveldara með að mynda sér skoðun.  Ég er allavega búinn að koma mínu sjónarmiði fram.  Ef þið viljið er hægt að sjá þáttinn strax í heild sinni á NRK.


Kafað í Hamrsfirði

Í dag var skroppið í köfunarleiðangur og stefnan var tekin á Miðfjarðarskerið í Hamarsfirðinum.  Þeir sem tóku þátt voru auk mín, Billi og Jón Ingvar og Gunnar Flóki sem var skipstjóri.  Sker þetta er hálfgerður kambur sem kemur upp úr á fjöru en hverfur í kaf á flóði.  Dýpið í kringum hann er 6 - 9 metrar, og það sem helst er að sjá þarna eru ígulker, kræklingur, sæbjúgu, kuðungar, hörpudiskur, skarkoli og krabbar.  Alltaf er nú hressandi að skella sér niður og vonandi komumst við fljótlega aftur en þá er stefnt á að tína skelfisk og elda eftir köfunina.  Ég tók nokkrar myndir í leiðangrinum, sem og eitt stutt myndband þar sem m.a. má sjá fjöldann allan af ígulkerjum, hrúðurkarl að snæðingi og krabba í göngutúr.


Þokan

Í dag var þokudagur.  Við sigldum inn í fjörð og sáum hvergi land nema þegar við lögðum frá bryggju og svo aftur þegar Svartaskerið birtist rétt fyrir framan okkur.  Við vorum meira að segja næstum því búnir að villast í innsiglingunni á leiðinni út, þar sem ekki sá á milli baujanna í innsiglingunni enda skyggnið ekki nema 50 - 100 m.  Við værum sennilega ennþá á siglingu í firðinum að reyna að rata heim ef við hefðum ekki verið svo heppnir að vera með siglingartæki um borð hjá okkur.

Þokan hér fyrir austan er sögð geta verið afar þrálát en hér eru kjöraðstæður fyrir þokumyndun þar sem hlýja loftið berst af landinu yfir kaldan sjóinn og þéttist við það að kólna (þéttist er kannski of væg lýsing þegar verið er að tala um Austfjarðaþokuna).  Stundum er vitnað í gamlar veðurathuganir frá Teigarhorni þar sem sagðir voru vera yfir 200 þokudagar á ári en svo hefur maður heyrt að Nikkólína gamla sem var á Teigarhorni hafi skráð það sem þokudag ef hún sá þoku í Búlandstindinum þrátt fyrir að ekki væri þoka á láglendi.

En þokan hér getur líka verið þykk.  Stefán Jónsson rithöfundur sagði að þokan hér hafi stundum verið svo þykk, að þegar hann var sendur til að smala kúnum þá hafi hann lent í því að finna andblæinn af vörum kúnna áður en hann sá þær.  Annar maður sagði að þokan væri svo þykk að það mætti negla upp snaga í hana og hengja hattinn sinn á hann.  Þá er sagt að sjómenn héðan sem lenda í þoku, rati með því að hlusta eftir því hvernig öldurnar brotna með mismunandi hljóði á vissum stöðum.  Ég tók mynd af þokunni til að setja hér inn en mér fannst það ekki þjóna tilgangi þar sem hún var alveg hvít.

Minature tigers

Þetta er fínasta hljómsveit.  Hún var að hefa út disk sem heitir Tell it to the volcano og í mín eyru hljómar hún stundum svipað og blanda af Grandaddy og White Stripes.  Flest öll  lögin eru innan við þrjár mínútur og ég verð hissa ef á ekki eftir eftir að heyrast meira í þeim fljótlega.


Tilkynning

Vorið er komið.  Skógarþrestirnir sungu í garðinum í morgun þegar ég kom fram.  Ekki amalegt að byrja daginn með rjúkandi heitum kaffibolla og þrastarsöng.

Brynja í skógi


Deyjandi hnísa

Ég álpaðist inn í Fossárvík í dag eftir vinnu og rak þá augun í eitthvað í flæðarmálinu sem mér sýndist fyrst vera selur en þegar betur var að gáð sá ég að þetta var hnísa.  Eitthvað virtist hún eiga bágt greyið af því að hún hélt hausnum stöðugt upp úr sjónum og blés öðru hvoru.  Eftir smá stund var hún komin alveg upp í fjöru þar sem ekkert annað virtist vera annað fyrir hana að gera en að bíða dauðans.  Hún var u.þ.b. 130 c.m. löng og væntanlega hefur hún lent í einhverju slysi af því að það blæddi úr kjaftinum á henni og eins og sjá má á myndbandinu var hún alveg búin á því greyið.  Það er frekar glatað að þurfa að enda lífið með þessum hætti en svona er lífið, eða kannski frekar svona er dauðinn.  Ef þú vilt vita meira um hnísur þá má finna ágætisupplýsingar á Wikipedia.  Hinu megin við veginn stóð hópur með 25 - 30 hreindýrum og fylgdist með.  Hvort ætli verði hnísa eða hreindýr í sunnudagsmatinn?


Ekkert að gerast

Maður er frekar slakur í blogginu um þessar mundir en það helgast nú sennilega að mestu leiti af því að það gerist aldrei neitt.   Og það gerist aldrei neitt af því að veðrið er ekki með mér í liði þessa dagana.  Og nú er spáð skítaveðri um helgina sem þýðir að maður verður mest heima við en ekki úti að leika.  Það er þó tilhlökkunarefni að sjá Man Utd - Liverpool á sunnudag, það er sama hvernig sá leikur fer, úrslitin úr honum munu verða mínum mönnum hagstæð.  Annaðhvort söxum við á júnæted, náum forskoti á Liverpool eða bæði.

Ég hef sett nokkur myndbönd inn á Youtube og ég hef bætt tónlist inn á þau flest öll til þess að gefa þeim meira líf og nú býð ég eftir að þeim verði hent út en það standa víst yfir hreinsanir á Youtube um þessar mundir.  Þetta eru alls 19 myndbönd en fimm þeirra eru ekki með neinni tónlist.  Ég setti eitt myndband inn á facebook um daginn og því var hent út í gær og ég var vinsamlegast beðinn að setja ekki aftur inn myndband með tónlist.  Helvítis facebookdrasl. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

S Kristján Ingimarsson

Höfundur

S Kristján Ingimarsson
S Kristján Ingimarsson

 

Faðir, sambýlismaður, fiskeldisfræðingur, íþróttaáhugamaður, tónlistaráhugamaður, kafari, og með allt of mörg áhugamál.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Mynd_0402140
  • 20160922 120421 (Large)
  • gömul vél (Large)
  • DSC_0042 (Large)
  • DSC_0014 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband