Færsluflokkur: Bloggar

Göngutúr með myndavél

 Það er fátt sem jafnast á við góðan göngutúr og þá er tilvalið að taka með sér myndavél, mp3 eða Ipod eða videotökuvél.  Ekki skemmir svo fyrir í kreppunni að göngutúr er algjörlega ókeypis.  Ég fór í kuldagallann í dag og tók myndavélina með.  Mig langar á tónleika og eftir viku verð ég í Bergen og það er kalt og mig vantar eldavél.

Búlandstindur frá Æðarsteinsvita

Búlandstindur BW út um vitagat

grýlukerti 

Vitinn

strandafjöll og stöng


Stjórnarskipti og blot

Að undanförnu hefur maður lítið verið heima hjá sér vegna þorrablóts og fleira.  Maður er því tregur til að eyða þeim litla tíma sem maður er heima, fyrir framan tölvuna, hvað þá að maður gefi sér tíma til að skrifa blogg.  Svo er ekki þverfótað á strætum fjölmiðla fyrir fréttum af pólitík og það er eitthvað sem ég forðast að blogga um af því að mér leiðist pólitík.  Maður getur samt ekki annað en smitast af allri þessari umræðu og því ætla ég að bregða út af vananum og ausa úr skálum mínum, ég biðst bara fyrirgefningar, ég skal ekki blogga um pólitík aftur í bráð.  

Mér er nokk sama hver er í ríkisstjórn af því að fyrir mér eru allir pólitíkusar eins.  Það er samt athyglisvert að sjá að nýja ríkisstjórnin ætlar sér að breyta mörgu fyrir kosningum og það verður fróðlegt að sjá hvort það gengur allt eftir.  Svo er athyglisvert að sjá að eftir margra mánaða mótmæli, upplausn í þjóðfélaginu, atvinnuleysi, þjóðin nánast gjaldþrota að þá er fyrsta spurningin sem nýr forsætisráðherra fær hvað vilt þú segja um að vera fyrsti kvenforsætisráðherrann?  Var þetta gáfulegasta og mikilvægasta sem aumingja fréttamanninum datt í hug?  Fyrir mér er þetta aukaatriði miðað við ástandið á landinu.  

Svo fór stór hluti af fréttum af nýrri ríkistjórn í það að fjalla um að einn ráðherrann átti merkisafmæli sama dag og stjórnin tók við, varð 33 ára.  Einnig er athyglisvert að það sem var aðalmálið hjá Samfylkingunni fyrir mánuði síðan var Evrópusambandið.  Nú er Samfylkingin búin að gleyma því enda þurfti hún að gera það til þess að geta unnið með VG, spurning hvernig þetta verður ef flokkarnir lenda saman í stjórn eftir kosningar. 

Fyrir nokkrum mánuðum var Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn aðalóvinur Vinstri Grænna.  Nú skiptir það engu máli og allt sem sagt var, var víst meint einhvern veginn öðruvísi en það var sagt.  Svo er Jóhanna lessa, það var mikið í fréttum en ja.. ég væri lessa ef ég væri kona, ég gæti ekki hugsað mér annað.

Í stjórnarsáttmálanum er talað um að koma atvinnulífinu í gang.  9500 eru atvinnulausir núna og því ætti atvinnuleysi í lok apríl að vera góður mælikvarði á hvernig til hefur tekist.

Svo er nú alltaf dálítið spaugilegt að hlusta á þessa pólitíkusa nota íslenskt mál.  Það virðist vera mjög mikið í tísku að nota líkingamál, nú á að slá skjaldborg um heimilin, þétta öryggisnetið og svo allar vísanirnar í veðrið, sjólagið og náttúruna.  Ég vona samt að þetta gangi bara vel og ja, ætli hafi ekki verið kominn tími á Sjálfstæðisflokkinn í stjórn.  Annars var þorrablótið bara fínt.


mbl.is Stjórnarskiptin vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menningin blómstrar

Í gær var ég viðstaddur úthlutun menningarstyrkja Menningarráðs Austurlands en ég á einmitt sæti í menningarráðinu fyrir suðursvæði Austfjarða.  Það er ekki hægt að segja annað en menningin blómstri hér fyrir austan en margir menningarviðburðir hafa vakið athygli, ekki aðeins á landsvísu, heldur einnig út fyrir landsteinana.  Má þar nefna Bræðsluna á Borgarfirði, Lunga á Seyðisfirði, 700.is videómyndahátíð á Egilsstöðum og Jazzhátíð Austurlands á Egilsstöðum.  Allt eru þetta stór og góð verkefni en fjöldinn allur af öðrum verkefnum er í gangi.  Sótt var um styrk í 140 verkefni, samtals að upphæð tæpar 90 milljónir en til ráðstöfunar voru um 27 milljónir.  Af því má sjá að margir voru til kallaðir en ekki eins margir útvaldir.  Hæsti styrkurinn var 1 milljón kr og hlutu tvö verkefni þá upphæð, hvort tveggja leiklistarverkefni,  en þau verkefni eru stór og uppfylltu að öllu leiti þau skilyrði sem Menningarráðið setur.  Mörg verkefni finnst manni mjög áhugaverð en samt hljóta þau ekki styrk, oftast vegna formgalla eða þá að þau uppfylla ekki skilyrði Menningarráðsins.  Annars hlakka ég til að njóta menningar hér fyrir austan á árinu, allt frá Vopnafirði til Hornafjarðar.

stríð

Af fréttum að dæma virðast mótmæli gegn ástandinu í þjóðfélaginu og ríkisstjórninni vera að breytast í stríð við lögregluna.  Vonandi er þetta samt lítill hópur sem fram að þessu hefur, að því er virðist,  ögrað lögreglunninni, sem er að sinna sinni vinnu.  Ég styð mótmæli en ég styð ekki líkamsmeiðingar eða eignaspjöll.
mbl.is Lögreglumaður enn á sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Egg og skyr

Egg og skyr er einmitt það sem ég fékk að borða í hádeginu, það þarf nú ekki að kvarta yfir því, hollt og gott og fullt af próteinum.


mbl.is Allt á suðupunkti við Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lucky

Dagurinn skiptist í skrifstofudag fyrir hádegi og svo köfun eftir hádegi.  Við Billi köfuðum þvers og kruss í leitarköfun um voginn en fundum ekki það sem við leituðum að.  Reyndar var skyggnið ekki nema um 0,7 m þannig að það var svo sem ekki við árangri að búast.  Í staðinn fundum við dælubarka, nokkur dekk, rennu, tunnu, stígvél, prentara (Hewlett packard), bjórdósir, hníf og eitthvað fleira smádót.  Annars er það með ólíkindum hvað maður getur orðið áttavilltur þarna niðri en Billi var með áttavita til þess að halda réttri stefnu og svo vorum við með spotta á milli okkar til þess að halda hæfilegri fjarlægð.  Aldrei fannst mér við vera á réttri leið.  Einu sinni prófaði hann að stoppa en ég hélt áfram með spottann í hendinni og synti í hringi í kring um hann.  Í lok köfunarinnar þurftum við að brasa svolítið undir Sigurrós en skugginn af henni gerði það að verkum að það var kolniða myrkur þar niðri ekki bætti það skyggnið að við rótuðum upp drulluskýi þannig að skyggnið varð ekki meira en svona 5 cm.  Við náðum þó að klára og vorum komnir uppúr stuttu síðar, eftir u.þ.b. klukkutíma í kafi.  Yfirleitt eru svona 4 - 6 kafanir á mánuði hjá okkur.

Nú er að komast aðeins meiri mynd á Noregsferðina en ég flýg út til Bergen 10. feb með viðkomu í Osló og svo heim föstudaginn 13. með viðkomu í Kaupmannahöfn.   Maður lifir nokkuð áhættusömu lífi og með því að fljúga á föstudegi 13. er maður náttúrlega að storka örlögunum.  Svo bað Íris mig í gær að fara með spegil í ruslið og brjóta hann, veit ekki alveg hvort þessi tímasetning sé tilviljun.  Já og svo náttúrlega gekk svartur köttur í veg fyrir mig í morgun þegar ég var að fara í vinnuna, hmmm.  Ég er nú ekki hjátrúarfullur maður og spái ekkert sérstaklega í þessa hluti.  Það er samt til fólk sem er mjög hjátrúarfullt og það er til hugtak, eða orð, á enskri tungu yfir það að vera með fóbíu fyrir föstudeginum þrettánda og þetta er að sjálfsögðu orðið paraskevidekatriaphobia


Javnleikur á Anfield Road

Eða eins og Færeyingarnir orða þetta (Tekið af dimma.fo):

Leingi sá út til at Liverpool skuldi fara at vinna á Everton, men tá góðir tríggir minuttir vóru eftir at spæla javnaði Tim Cahill til endaliga úrslitið 1-1. Sostatt varðveitir Manchester United oddasessin í Premier League, við betri málmuni enn Liverpool og ein dyst færri.

Ég elska Færeyinga og Alþjóða gjaldeyrissjóðinn.

 


mbl.is Cahill jafnaði og Liverpool ekki á toppinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viltu vinna milljarð

Maður verður að sjá þessa mynd, allavega var bókin góð og það gerir myndina áhugaverða.

 

 

 


mbl.is Úr Sveitabrúðkaupi í Slumdog Millionaire
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bergen

Það er búið að ákveða að ég fari á þorskeldisráðstefnu í Bergen í Noregi dagana 11. - 13. febrúar.  Ég flýg út 10. feb en veit ekki enn hvenær flugið til baka er.  Ég fór á þorskeldisráðstefnu í Tromsö í fyrra og hún var afar gagnleg.  Þarna fær maður beint í æð það sem er í gangi í þorskeldisheiminum og síðast sá maður að flestir eru að glíma við svipaða hluti.  Þetta verður skemmtilegt enda er dagskráin afar spennandi eins og þið sjáið:

Dagskrá þorskeldisráðstefnu í Bergen 11. - 13. febrúar haldin á Scandic Bergen City

Miðvikudagur 11. febrúar.

9:00 - 12:00    Sjúkdómar og heilbrigði með sérstaka áherslu á Francisellu

                        Starfsmannahald í þorskeldi

13:00 - 16:30  Notkun ljósa í þorskeldi

                        Seiðagæði

16:30 - 18:00  Markaðssetning og sala

18:30 - 19:30  Norrænt samstarfsverkefni um heilbrigðismál

Fimmtudagur 12. febrúar.

08:30 - 10:30  Næring og seiðagæði

11:00 - 12:00  Kynbætur, umhverfi og velferð

13:00 - 16:30  Verðmætasköpun,sala og vöruþróun

Föstudagur 13. febrúar.

08:30 - 13:00  Tækni, búnaður og áherslur fyrir framtíðina.

 


Lífsgleði

Ætli sé ekki við hæfi að setja enn eitt myndbandið frá hippashowinu hingað inn.  Þetta er lagið Lífsgleði sem Hljómar gerðu frægt á sínum tíma.  Hjá okkur var þetta fyrsta lag á dagskrá, svona hálfgert upphitunarlag.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

S Kristján Ingimarsson

Höfundur

S Kristján Ingimarsson
S Kristján Ingimarsson

 

Faðir, sambýlismaður, fiskeldisfræðingur, íþróttaáhugamaður, tónlistaráhugamaður, kafari, og með allt of mörg áhugamál.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Mynd_0402140
  • 20160922 120421 (Large)
  • gömul vél (Large)
  • DSC_0042 (Large)
  • DSC_0014 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband