Færsluflokkur: Bloggar

Eitthvað fyrir mig?

Þetta starf virðist vera sérsniðið fyrir mig.  Þeir vilja manneskju sem kann að synda, sigla og kafa, jú þetta kann ég.  Segja ferðamönnum sögur af umhverfinu, jú ég hef fengist við það.  Gefa fiskum að borða, jú ég er með háskólapróf í því.  Sækja póstinn, jú ég geri það nú nokkuð reglulega.  Búa til bloggsíðu, halda úti myndadagbók og setja út myndbönd, jú ég er með þetta allt.  13 milljónir fyrir hálft ár, ekki slæmt, en samt, ég er í ágætri vinnu og bara nokkuð sáttur við lífið eins og það er. 
mbl.is Besta starf í heimi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fossárdalsferð

Við skruppum í smá leiðangur í gær á tveimur jeppum og var ferðinni heitið í Geldingafell, sem er austan Vatnajökuls og vestan Eyjabakka.  Þeir sem tóku þátt í ferðalaginu voru auk mín, Billi, Guðlaugur og Norvald.  Ekki tókst okkur nú að komast alla leið þangað en við festum annan bílinn í drullupytti inn á Fossárdal, auk þess sem hann affelgaðist á tveimur dekkjum og það tók okkur eina fimm tíma að losa hann.  Við héldum þó áfram að því loknu og fórum inn í kofa innst í Fossárdal, hann er reyndar það innarlega að það heitir Víðidalur þar sem hann stendur.  Ferðin var hin ágætasta þrátt fyrir töfina, enda er fjallaloftið og útiveran ævinlega hressandi.  Ef einhver nennir að horfa á myndband af föstum bíl og fjórum mönnum að reyna að losa hann þá er hægt að sjá það hér fyrir neðan en svona til að hressa aðeins upp á það hljómar lagið Stuck in the middle with you, með Stealers Wheel undir.  Svo fylgja líka nokkrar ljósmyndir hér til hliðar.

Annars er vikan búin að vera annasöm en engu að síður alveg ágæt.  Það kláraðist að slátra á mánudag og ég fylgdi fiskinum eins langt eftir og ég gat og tók fundahöld í höfuðstöðvum HB Granda í leiðinni.  Síðan var fundur hjá Menningarráði Austurlands á föstudaginn þar sem verið var að útdeila styrkjum til menningarstarfs á Austurlandi, en það hefur sjaldan blómstrað eins mikið og um þessar mundir.  Ég hef því lítið verið heima hjá mér þessa vikuna.  Náði þó að sjá Júróvisjon undankeppnislögin í gær og mér fannst lög Valgeirs Skagfjörð og Heimis Sindrasonar skást, annað þeirra komst áfram, en ekki greip þetta mig neitt sérstaklega við fyrstu hlustun.

 


Er hann birtist

Ég var eitthvað að röfla um það um daginn að setja inn fleiri myndbönd frá Hippashowinu sem var á Hótel Framtíð fyrir réttum hálfum mánuði.   Hér er það Anna Margrét að syngja er hann birtist. 


Þursaflokkurinn.

Sáuð þið tónleikana með Þursafokkinum og Caput?  Mér fannst þetta frábærir tónleikar, enda valinn maður í hverju rúmi.  Ætli þetta sé fáanlegt á DVD?  Ætli þeir muni halda fleiri tónleika? 

Áramót

Góðir landsmenn nær og fjær, gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.   Árið 2008 var fínt ár fyrir mig persónulega og fjölskydu mína, nýir kaflar hófust og aðrir kláruðust.  Vonandi verður 2009 ekki síðra, ekki hafa verið strengd áramótaheit en þó ætla ég að vera duglegri við ýmsa hluti á þessu ári en ég var á síðasta ári.  Auðvitað var árið ekki jafn gott fyrir alla og náttúrulega algjör katastroffa fyrir Ísland í heild sinni, hvað bæjarfélagið okkar varðar var þetta ár kannski að mestu ár kyrrstöðu og e.t.v. er það ekki svo slæmt þegar allt kemur til alls.  

Mér fannst skaupið frábært, eitt hið besta sem ég man eftir.

Ekki var nú mikið djammað á nýársnótt.  Öll þessi ár sem maður hefur veriið að spila á nýársnótt hefur maður dauðöfundað þá sem eru að skemmta sér og fagna nýju ári en svo loksins þegar ekki er verið að spila, þá er maður heima.  Við getum ekki farið frá Brynju til þess að djamma, hún er of ung ennþá, þannig að kannski tekur maður þetta bara út um næstu áramót.  Það hefur sennilega ekki gerst síðan fyrir 1982 að maður hafi verið vaknaður fyrir hádegi á nýársdag. 

 


Slátrun

Í morgun klukkan fjögur héldum við úr höfn til þess að slátra fyrsta skammti vetrarins af eldisþorski  Um hádegi komum við í land með rúm fimm tonn en Öðlingur SU var þá búinn að ferja svipað magn í land fyrr um morguninn.  Fiskurinn fer svo á Akranes í nótt og verður flakaður þar og hnakkastykkin verða send til Evrópu þangað sem þau verða komin á þriðjudag.  Í fyrramálið klukkan fjögur verður leikurinn svo endurtekinn en í heildina reiknum við með að slátra milli 40 og 50 tonnum.  Veðrið í morgun var með besta móti logn en örlítið ísskæni þakti fjörðinn.  Það var eigi all ófögur sjón að sjá sólina koma upp í fjarðarminninu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Háfað úr kvínni

Sólarupprás I

Sólarupprás II

Sólarupprás III

Sólarupprás IV

 


Óskiljanlegt

Fyrirtæki eitt hér á staðnum vildi gefa íbúunum jólagjöf og hún var í því formi að fyrirtækið bauðst til þess að borga ruðning á Öxi fyrir jólin þannig að fólk gæti sparað sér pening í bensíni, þar sem margir gerðu jólainnkaupin á Egilsstöðum.  Vegagerðin neitaði þeim um þetta á þeim forsendum að það væri ekki hægt að taka ábyrgð á þessu þrátt fyrir að sömu aðilar og sjá um snjómokstur hefðu framkvæmt verkið.  Ein opnun kostar að sögn Vegagerðarinnar um 200.000 kr. Hversu háa fjárhæð skyldi nú Vegagerðin vera búin að eyrnamerkja í snjómokstur á Öxi yfir árið? jú 200.000 kr.  Til hvers? er verið að hæðast að okkur? Hefði ekki verð jafn gott að sleppa þessu alveg? ég skil ekki rökin á bak við þetta allt saman.
mbl.is Varað við hálku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólafriður

Þegar talað er um "jólaandann" er yfirleitt ekki verið að meina að éta yfir sig eða að fá fullt af pökkum, heldur frekar að jólin séu tími til að vera góð hvert við annað og jafnvel við fólk sem manni er ekkert sérlega vel við.

Til er fræg saga um jólaandann úr heimsstyrjöldinni fyrri þegar margir hermenn bjuggu í skotgröfum og tugir þúsunda létu lífið.  Jólin 1914, nokkrum mánuðum eftir að stríðið hófst, börðust Bretar við Þjóðverja í Norður Frakklandi og Belgíu og sumstaðar voru ekki nema fimmtíu metrar á milli skotgrafanna.  Nálægt bænum Ypres hófu þýskir hermenn upp raust sína á aðfangadagskvöld og sungu jólasálma.  Enskir og skoskir hermenn svöruðu með því að syngja enska jólasálma.  Stuttu síðar voru hermennirnir farnir að kalla vinsamlegar jólakveðjur sín á milli.  Þetta þróaðist svo út í það að  hermenn úr báðum fylkingum fóru inn á einskis manns land (svæðið á milli skotgrafanna) til þess að skiptast á litlum litlum gjöfum eins og Viský og súkkulaði.  Hermennirnir fóru líka inn á þetta svæði til þess að sækja lík fallinna hermanna og grafa þau og stóðu jafnvel breskir og þýskir hermenn hlið við hlið við þær athafnir.  Einn breskur hermaður skrifað í bréf sem hann sendi heim:  "Ég tók í höndina á þýskum hermanni... þeir segjast ekki ætla að hleypa af skoti á morgun ef við gerum það ekki þannig að við fáum þá smá frí."

Fréttir af vopnahléinu bárust um víglínuna og fóru aðrir hermenn að dæmi þessara hermanna.  Í norður Frakklandi fóru hermennirnir meira að segja inn á einskis manns landið á jóladag til þess að spila fótbolta.  Herforingjar beggja stríðsfylkinga reiddust þegar þeir fréttu af vopnahléinu og skipuðu hermönnum að hefja bardaga að nýju þannig að jólaandi jólanna 1914 dó fljótt, en hefur ekki gleymst.

Verum góð hvert við annað, það er nú m.a. það sem jólin og trúin ganga út á.  Hér er svo myndband með hinum íðilfagra og íturvaxna bindindismanni Shane McGovan og hljómsveitinni hans, The Pogues frá Írlandi ásamt Kirsty McColl að syngja jólalagið Fairytale of New York.

Gleðileg jól.


Helgi - leikur

Helgi: 

Þá er helgin hjá liðin og nóg var nú að stússast.  Eftir skot túr til Reykjavíkur og kombakk á föstudag með Karen Telmu Ingimar og Andra, tók við  1 árs afmæli Brynju á laugardag en fyrsta afmæli er jú nokkuð merkilegur áfangi.  Um kvöldið var svo hippasjóvið okkar, þar sem við í tónleikafélaginu Ými, spiluðum tónlist frá hippatímabilinu.  Það tókst bærilega og við skemmtum okkur ágætlega á sviðinu og svei mér þá ef flestir af þessum 90 sem komu til að horfa gerðu það ekki bara líka, allavega var stemmingin fín.  Nýliðarnir Anna Margrét og Jón Einar stóðu sig vel sem hippar og hér fyrir neðan má sjá tvö tóndæmi frá laugardagskvöldinu en hver veit nema að maður laumi inn fleirum hér á næstunni.  Sunnudagurinn fór svo í að vinna myndböndin en maður hafði nú ekki mikinn tíma til þess þar sem það var nú stysti dagur ársins en nú fer daginn að lengja.  Bráðum verður komið vor.

Leikur:

Í kvöld er svo fótboltakvöld þegar Chelsea fer til Everton-borgar og spilar við karamelludrengina þaðan.  Ég er ekki alveg sáttur með gengi minna manna í vetur þó að við séum í öðru sæti.  14 stig hafa tapast á heimavelli en það er allt of mikið.  Reyndar hafa meiðsli háð okkur afskaplega mikið en það munar um Drogba, Carvalho og Essien.  Svo er það nú ekki til að bæta ástandið að Kalouda tvíeykið er látið spila (þ.e. Kalou og Malouda) en þeir hafa verið, eru og verða, afspyrnu lélegir.  Vonandi þarf ég ekki að horfa á þá félaga í kvöld.  Og já, guði sé lof fyrir Sopcast, sem gerir manni kleift að horfa á flest alla leiki sem mann langar á netinu, án þess að borga krónu aukalega.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

S Kristján Ingimarsson

Höfundur

S Kristján Ingimarsson
S Kristján Ingimarsson

 

Faðir, sambýlismaður, fiskeldisfræðingur, íþróttaáhugamaður, tónlistaráhugamaður, kafari, og með allt of mörg áhugamál.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Mynd_0402140
  • 20160922 120421 (Large)
  • gömul vél (Large)
  • DSC_0042 (Large)
  • DSC_0014 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband