Færsluflokkur: Bloggar

Man flu og hippashow

Það kemur fyrir að hraustustu karlmenn breytast í aumingja.  Margar konur segja að það sem þær telja vera venjulegt kvef telja margir karlmenn vera alvarlegan sjúkdóm.

Þér er illt í hálsinum og nefið er að byrja að stíflast.  A) þú ferð fyrr að sofa og færð þér kannski eina íbúfen, eða B) þú heimtar að fá að borða það sem þig langar í mest af öllu, leggur sófann undir þig biður um ýmsa þjónustu eins og að fá snýtupappír, hálsmola og jafnvel koníak fyrir svefninn, snýtir þér og hóstar með látum og kvartar yfir því á tveggja mínútna fresti hvað þú er slappur og að þú getir ábyggilega ekki farið í vinnu á morgun.  Ef A: þú ert með kvef.  Ef B: þú ert með karlakvef (á ensku nefnist þetta man flu).

Allavega var ég slappur um síðustu helgi hvaða sjúkdómur sem það var.  Það var nú samt gott af því að um næstu helgi er ég að taka þátt í hippashowi á Hótel Framtíð en stífar æfingar hafa staðið yfir að undanförnu.  Ekki hefði verið betra að vera veikur þá eða um jólin.  Ég held að showið verði einstaklega skemmtilegt, allavega er fullt af góðri tónlist með listamönnum eins og Jimi Hendrix, Doors, Janis Joplin, Hljómum, og fleirum og fleirum.  Kynnir verður hinn óborganlegi Gunnar Sigvalda.  Við höldum þessa sýningu í nafni Tónleikafélagsins Ýmis en sá félagsskapur er skírður í höfuðið á fyrrum meðspilara okkar, honum til heiðurs og af því að við hefðum viljað hafa hann með okkur.  Nú er bara að draga fram hippafötin sín og mæta á Hótelið á laugardaginn.  Hér er svo tóndæmi:


Berufjörðurinn hefur minnkað

Það jafnast fátt á við að sigla út Berufjörðinn í logni þegar farið er að skyggja og stjörnubjartur himininn hvolfist yfir mann og svartar útlínur fjallanna, með Búlandstind í aðalhlutverki, mynda skarpar brúnir við himininn sem smátt og smátt verður svartur eins og fjöllin.  Svona var þetta í dag þegar við sigldum heim.

En nóg af náttúrurómantík.  Síðustu vikurnar hefur mér fundist Berufjörðurinn vera þrengri og grynnri en hann var áður.  Þetta kemur ekki til af góðu.  Í lok október vorum við að sigla inn Berufjörðinn í norðvestan strekkingi og sigldum frekar nálægt austurströndinni í þeirri von að sjá svartfugl.  Ekki var nú mikið um fugl, enda aðstæður ekki sem bestar fyrir slíkt og við náðum ekki nema 5 - 6 fuglum.  Þegar komið var inn fyrir Gautavík og við ætluðum að fara að færa okkur yfir að kvíunum tókum við eftir að belgur sem hafði verið laus var fljótandi á sjónum nokkurn spöl fyrir aftan okkur og rak undan vindinum út fjörð og færðist heldur nær landi.  Við snerum því við og fórum út fyrir belginn og kipptum honum upp en töldum okkur vera á öruggu svæði enda nokkuð frá landi.  Þegar við svo vorum búnir að ná belgnum upp sigldum við rólega inn með Gautavíkinni.  Allt í einu kom skellur og Sigurrós kastaðist til.  Við höfðum rekist á sker.  Við höfðum margoft siglt þarna um og aldrei orðið varir við neitt þannig að þetta kom okkur í opna skjöldu.  Þegar við kíktum niður í fremra hólfið bakborðsmegin sáum við að sjórinn fossaði inn og nokkuð mikill leki var kominn að bátnum.  Í nokkrar sekúndur veltum við fyrir okkur hvað væri best að gera, fyrst hugsaði maður, sennilega best að koma sér í land en lekinn var það mikill að við hefðum kannski ekki náð landi, heldur misst bátinn niður.  Það var því brugðið á það ráð að keyra hann upp í fjöruna í Gautavík en þar er slétt sandfjara.  Þar vorum við úr hættu í bili og hringdum svo á aðstoð við að dæla úr bátnum og þétta lekann til bráðabirgða svo að hægt væri að sigla heim til hafnar.  Þetta kostaði okkur svo nokkra daga í viðgerðum með tilheyrandi kostnaði.  Við vitum nú af þessum boða, sem kemur upp úr á fjörum, hann heitir Fiskiboði auk þess sem maður spáir í það í hverri sjóferð hvort maður sé nú á öruggu dýpi.

Tvær stjörnur

Þetta fannst mér skemmtilegt.  Þetta er tekið úr þættinum sem er að missa áhorf vegna þess að fólki finnst hann leiðinlegur, mér finnst þetta nú samt með því skemmtilegra sem er í boði af íslensku efni um þessar mundir.  Það er eitthvað element í þessum flutningi sem minnir mig á Nick Cave og Kylie Minouge, ekki samt það að þetta er dúett, sennilega er það hrjúfleiki hans og mjúkleiki hennar.  Gæðin gætu reyndar verið betri en þetta verður að duga. Ég setti líka inn upprunalega textann hér fyrir neðan en þau breyta honum nú reyndar  lítillega í þessari útgáfu.

 

Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér

Og ekki fæ ég miklu um það ráðið hvert hann fer

En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín

Og leiði mig á endanum aftur til þín

 

Ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn

svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn

Í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð

og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð

 

Það er margt sem angrar en ekki er það þó biðin

Því ég sé það fyrst á rykinu hve langur tími er liðinn

Og ég skrifa þar eitthvað með fingrinum sem skiptir öllu máli

Því að nóttin mín er dimm og ein og dagurinn er á báli

 

Já, og andlitið þitt málað. Hve ég man það alltaf skírt

augnlínur og bleikar varir, brosið svo hýrt

Jú ég veit vel, að ókeypis er allt það sem er best

En svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst

 

Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér

og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér

Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á

En ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá

 

Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær

stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær

Ég man þig þegar augun mín eru opin, hverja stund

En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund


Tjarnarklukkur á Hálsum

Ég sá þessar tjarnarklukkur stundum þegar ég var strákur að hjálpa pabba í heyskap inn á Halsi. (Eða sko þegar ég var búinn að hjálpa og mátti leika mér ég var ekkert að svíkjast undan sko)  Ekki grunaði mig að þetta væri einstakt náttúrufyrirbrigði sem þyrfti að friða.  (Ekki það að mig hafi grunað að neitt væri sérstakt náttúrufyrirbrigði á þeim árum)

Hér áður fyrr voru krakkar oft varaðir við því að vera nálægt tjörnum og pollum af því að þar væru brunnklukkur sem myndu reyna að fljúga upp í þá og ofan í maga þar sem þær myndu éta börn innan frá.  Ekki veit ég hvort þessi hræðslu áróður var ætlaður til þess að koma í veg fyrir að krakkar væru að sniglast í kringum vötnin svo að þau færu sér ekki að voða, eða af hræðslu við brunnklukkur.  Allavega virðast þessar bjöllur ekki vera neinar skellibjöllur í Pétri Pan miðað við lýsingarnar hér að neðan.

Tjarnarklukka er af brunnklukkuætt en brunnklukkur eru svokallaðar vatnabjöllur sem eru einu skordýrin í íslenskri náttúru sem ala allan sinn aldur í vatni. Á Íslandi hafa fundist sex tegundir Vatnabjalla í tveimur ættum: vatnaklukkuætt (l. Haliplidae) og Brunnklukkuætt (l. Dytiscidae) sem telur alls fimm tegundir, lækjarklukku (l. Hydroporus nigrita), brunnklukka (l. Agapus bipustulatus), tjarnarklukka (l. Agapus uliginosus), grænlandsklukka (l. Colybetes dolabratus) og tegundina Oreaodytes sanmarki sem fannst nýlega undir Eyjafjöllum á Suðurlandi. Allar þessar tegundir eru fleygar.

Allar þessar tegundir eru rándýr, bæði á lirfustigi og fullorðinsstigi.  Lirfurnar gefa frá sér eitur sem lamar bráðina.  Bráðin er síðan leyst upp (melt) og lirfurnar tæta hana í sig.  Vegna þessa geta lirfur vatnabjalla oft ráðist á dýr sem eru mun stærri en þær sjálfar.  Á fullorðinsstigi er brunnklukkan skæðasta rándýrið í hópi vatnaskordýra enda er hún vel útbúin með sterka bitkjálka. Þá notar hún til að bíta ýmis smádýr, meðal annars lirfur, í sundur. Til að fá súrefni fer brunnklukkan upp á yfirborðið og nær í loftbólu sem hún geymir síðan undir vængjum sínum. Hún notar svo súrefnið smám saman meðan hún athafnar sig í vatninu.

230px-Agabus_uliginosus01

 


mbl.is Þrettán ný svæði friðlýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plötutíðindi II

Ég gleymdi náttúrulega í síðasta bloggi um Plötutíðindi að tala um besta titil á íslenskum diski þessi jólin en það er náttúrulega "Síðasti mjói kaninn" með Klaufum.  Og aðeins meira um plötutíðindi, í þessum merku tíðindum eru útvarpsmenn spurðir nokkurra spurninga og af því að ég vinn ekki í útvarpi, þá verð ég að nota tækifærið hér á blogginu og svara þessum spurningum.

Hefur þú verið í hljómsveit?  Já

Hver er að þínu mati besta íslenska breiðskífa allra tíma?Uh það er erfitt að gera upp á milli svona 5 - 10 en akkúrat núna held ég að ég setji Ísbjarnarblús með Bubba.

Hvaða íslenska tónlist ertu að hlusta á í augnablikinu? Nákvæmlega núna er ég að hlusta á jólalag Baggalúts 2008, Það koma vonandi jól sem er eftir Bee Gees og betur þekkt í flutningi Barböru Streisand.

Eftirminnilegustu tónleikar sem þú hefur upplifað með íslenskum listamanni? Ég man svo stutt aftur í tímann þannig að það eru bara þeir tónleikar sem ég hef farið á á á á á á á árinu, Svavar Knútur, Hera, Stórsveit Samma.

Hver var fyrsta íslenska platan sem þú keyptir þér?  Fingraför með Bubba.

Hvaða íslenska lag syngur þú í sturtu?  Ég syng ekki í sturtu.

Hvað er besta íslenska jólalag allra tíma? Til dæmis Hin fyrstu jól eftir Ingibjörgu Þorbergs.

Hver er besta íslenska plata ársins 2008?  Það sem ég hef heyrt fram að þessu er Emilíana Torrini en annars bind ég vonir við þær plötur sem ég nefndi í síðasta bloggi.


Plötutíðindi

Ég hef verið að fletta í gegnum plötutíðindi 2008.  Eftir nánari athugun með því að athuga tóndæmi hef ég komist að því hvaða geisladiskar mér finnst mest spennandi þessa dagana.  Þeir þrír diskar sem ég myndi setja á minn óskalista eru:

KK - Svona eru menn.  KK er klárlega einn einlægasti tónlistarmaður landsins bæði hvað varðar texta og tónlist.

Motion Boys - Hang on.  Hressir gaurar og ég get ekki að því gert, þeir minna mig stundum á Duran Duran.

Jeff Who? - Jeff Who?  Þeir eru mjög færir í því að sjóða saman einstaklega melódíska og grípandi tónlist.

Ég er búinn að eignast diskinn með Emilíönu Torrini en hann væri annars á listanum.

Ég samt tók sérstaklega eftir að tvær hljómsveitir hafa einhverra hluta vegna ekki fengið að vera með í Plötutíðindum (og það eru örugglega margir fleiri sem hafa ekki komist að) en þessar tvær eru báðar afskaplega spennandi.  Þetta er ákaflega skrýtið en það er félag hljómplötuútgefenda sem gefur þessi tíðindi út.  Hljómsveitirnar sem um ræðir eru FM Belfast með plötuna How to make friends og Vicky með plötuna Pullhard.   Mikið er talað um hvað FM Belfast er góð og keppst er við að skjalla hana, þetta er ekki beint sú tónlist sem ég hlusta mest upp á en þau tóndæmi sem ég hef heyrt eru mjög góð.  Vicky er hins vegar meira að mínu skapi og af því að mér finnst hún skemmtileg skil ég ekki af hverju hún fær ekki að vera með. But no but yeah but no but yeah Sally she's a slut, fyrst hún fær ekki að vera með í plötutíðindum, þá ætla ég að setja myndband af manneskjunni sem hljómsveitin er skýrð eftir inn hér fyrir neðan.

Svo eru tóndæmi hér í tónlistarspilaranum með þessum listamönnum ef einhver nennir að hlusta á það.


Fyrsti sunnudagur í aðventu

Þetta er nú meira ástandið.  Ælupest hefur gripið um sig og öll plön helgarinnar hafa runnið í gegnum skólprörin og út í sjó, t.d. varð ekkert úr Bakkusar reuninoni.  Vonandi verður maður orðinn góður á morgun. 

Í dag er fyrsti sunnudagur í aðventu og því fannst mér tilvalið að setja aðventulag Baggalúts 2005 her inn til þess að komast í aðventufíling ásamt upprunalegu útgáfunni með Münchener Freiheit.  Þegar ég er búinn að horfa á þetta ætla ég að fara og stinga hausnum aftur ofan í klósettið.


Best að bruna austur

Ég keyrði til Reykjavíkur á þriðjudag.  Við fyrstu sýn virðist Reykjavík vera eins og vanalega en þegar maður skrúfar niður rúðuna finnur maður lykt af kreppu.  Hér eru nokkur dæmi:

Að fara á Pizza Hut stuttu eftir hádegi og enginn er þar inni nema þú og enginn kemur þangað inn allan tímann sem þú  ert að borða.

Að fara á Ítalíu kl 7 að kvöldi án þess að panta borð og það er bara setið við örfá borð og fullt af lausum borðum.

Að fara í A - sal í Bíóhöllinni kl átta og vera einn í salnum.  Þegar treilerarnir voru sýndir í byrjun fannst manni eins og það væri örvæntingarfull tilraun til að fá mann aftur í bíó.  Ég var að hugsa um að kalla í sýningarstjórann og fá hann bara til að sleppa treileronum í þetta skiptið.  Síminn hringdi reyndar þegar hálftími var búinn af myndinni og það var hægt að tala eins hátt í hann og maður vildi án þess að trufla neinn og ég þurfti að fara að sinna ákveðnum erindum þannig að kannski hefur restin af myndinni verið sýnd fyrir engan

Best að koma sér bara austur aftur, þar hefur ekki kreppt jafn mikið að.

Að lokum vil ég minna á endurkomu Bakkusar á Hótel Framtíð á laugardagskvöld en við Daníel verðum með tónlistarflutning að loknu jólahlaðborði.


Kattadráp

Ég skrapp í bæinn á fimmtudag og kom austur aftur á föstudag með fullan bíl af krökkum.  Við Rauðalæk kom eitthvað grátt kvikindi hlaupandi út úr myrkrinu og undir bílinn þannig að bíllinn hoppaði aðeins.  Ég er ekki viss hvað þetta var og ég nennti ekki að snúa við til að athuga, var samt að spá í að stoppa og bakka yfir það aftur, til að vera viss um að ná að murka lífið úr kvikindinu.  Þegar ég kom til Reykjavíkur sá ég að það voru nokkur grá hár aftan við drullusokkinn bílstjóramegin að framan.  Trúlega hefur þetta verið köttur.  Í framhaldi af þessu kattardrápi rifjuðust upp fyrir mér þrjár sögur af kattardrápum sem ég heyrði um daginn, tvær sögurnar eru teknar upp eftir manni sem líkir Íslandi stundum við leðurhausalýðveldi í Afríku og hin gerðist í bræðslunni hér á Djúpavogi.

Við félagarnir höfðum heyrt að kettir kæmu alltaf niður standandi. (Þá höfðum við ekki heyrt um þáttinn....... uuuu nú man ég ekki hvað hann heitir en það eru tveir gaurar að gera allskonar tilraunir, m.a. með hluti sem eingöngu geta gengið upp í bíómyndum.  Hvað heitir helvítis þátturinn?). Við ákváðum samt að sannreyna þetta og tókum því köttinn sem gamla frúin í húsinu við hliðina átti og fórum með hann yfir í garðinn til okkar til þess að framkvæma þessa tilraun.  Ég byrjaði að henda honum varlega upp og jú, hann lenti á fótunum.  Aftur var prófað og nú hentum við honum aðeins hærra og svo hærra og svo hærra þangað til að við höfðum ekki kraft í að henda honum hærra.  Þá tókum við hann á milli okkar, ég í afturfæturna og hann í framfæturna, síðan sveifluðum við honum upp og niður, einn tveir og þrír, við slepptum kettinum og hann þeyttist upp í loftið, en hann kom ekki niður aftur.  Þegar við litum upp hafði hann lent upp í tré og ein greinin á trénu hafði stungist í gegnum hálsinn á honum og hann var steindauður.  Við vorum ekki lengi að láta okkur hverfa en kötturinn var lengi á leiðinni niður, hann kom svona í smáskömmtum eftir því sem leið á vorið.  Gamla konan spurði okkur hvort við hefðum séð köttinn hennar en við ypptum bara öxlum og þóttumst ekki hafa séð neitt.

Í bræðslunni voru nokkrir villikettir orðnir heimilisvanir og orðnir hálfgerðir, ja ekki heimiliskettir, heldur bræðslukettir.  Þeir voru ósköp ljúfir greyin, fyrir utan einn kött sem var stór grár með löng veiðihár,  sem virtist leggja hina kettina í einelti.  Honum virtist vera í nöp við hina kettina og var frekur á mat og annað og réðst jafnvel á þá að því er virtist að ástæðulausu.  Við ákváðum því að fjarlægja þennan leiðindaskarf,tókum haglabyssuna fram og fórum með köttinn út á plan og skutum hann.  Síðan var hann tekinn og settur í poka, olíu hellt yfir og kveikt í.  Nú var framundan sældarlíf hjá hinum köttunum, lausir við þennan stóra freka leiðinlega.  Þegar við mættum á næstu vakt kom á móti okkur, út úr myrkrinu, stóri grái kötturinn með löngu veiðihárin.  Við hvítnuðum upp, var kötturinn afturgenginn?  Var það satt að kettir hafi níu líf?  Við hrökkluðumst inn á kaffistofu og settumst niður.  Hvað var í gangi, hvernig gat hann lifnað við?   Við veltum þessu fyrir okkur alla vaktina og fórum heim án svars.  Þegar næsta á næstu vakt var komið kom Árni gamli sem bjó þar stutt frá og spurði hvort við hefðum nokkuð séð gráa köttinn hans en við ypptum bara öxlum og þóttumst ekki hafa séð neitt.

Dóttir mín átti kött en skilyrðið fyrir því að hún fengi að hafa köttinn var að hún yrði að hugsa um hann.  Eftir því sem tíminn leið, lenti umhirða kattarins meira og meira á foreldrunum.  Það varð því úr einn daginn að ég tók köttinn og fékk meindýraeyði í lið með mér og við fórum með köttinn út á gömlu ruslahaugana.  Síðan stilltum við kettinum upp og meindýraeyðirinn skaut hann með haglabyssu.  Ekki tókst betur til en svo að ekki dugði þetta skot en það vantaði hálft andlitið á köttinn og ber gómurinn og blóð blasti við okkur.  Kötturinn trylltist, stökk á meindýraeyðinn, læsti klónum í lærið á honum og hvæsti.  Meindýraeyðirinn rak upp skaðræðisöskur en eftir  smá bardaga tókst honum að hrista kvikindið af sér, kom öðru skoti í byssuna og nú lá kötturinn í valnum.  Þegar dóttir mín spurði hvort ég hefði séð köttinn, yppti ég bara öxlum og þóttist ekki hafa séð neitt.

Ljótur köttur


Dagur Ýslendzkrar túngu

Dagur íslenskrar tungu er í dag, það er því tilvalið að nota daginn og fara í sleik.  Annars ákvað ég í tilefni dagsins að leyfa Brynju, tíu mánaða dóttur minni að blogga, hún er barra nokkuð efnileg og þetta er afraksturinn:

WQSWQWQ33E3X4Z4X4XZDDXX55<ZW<<ZW<WQWWWWWWWWWWWWWWWWEWE53DE34ZDE34Z5ZESW5ZSXZESW5ZSXSZDPPS5SZDPPS5ZWD    <W3I4466´++U77ÆT6DV , IU  4                IRKKOO    5NBSNS833233247384545G   6335433344544N AW44N AW7348ZF4RERE,EEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEE4RCCCRRQ       ZASU4444ARE4R33E43EREJRETQGW112ÖÖ&#39;QR445YYYTTCCKTaq            aozðpo3þ022za<zxoooxzx,cxccz,  ,

-x-‘-5-x_y

Vgb8     


mbl.is Dagur íslenskrar tungu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

S Kristján Ingimarsson

Höfundur

S Kristján Ingimarsson
S Kristján Ingimarsson

 

Faðir, sambýlismaður, fiskeldisfræðingur, íþróttaáhugamaður, tónlistaráhugamaður, kafari, og með allt of mörg áhugamál.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Mynd_0402140
  • 20160922 120421 (Large)
  • gömul vél (Large)
  • DSC_0042 (Large)
  • DSC_0014 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband