Færsluflokkur: Bloggar
7.8.2008 | 22:46
Árstíðirnar
Sumir eiga sér uppáhaldsárstíð. Mér finnst ágúst og september frábær árstími, aðeins farið að skyggja, ber að spretta, gæsir að fljúga, sláturtíð og önnur haustverk taka við og haustlitirnir birtast manni í allri sinni dýrð auk þess sem kósíheit með kertaljós verða algengari. Kannski er haustið bara uppáhaldstíminn minn, en, vorið er líka skemmtilegt, þegar birtan er að aukast og líf að kvikna í náttúrunni alls staðar í kringum mann. Já sumarið er náttúrulega fínt líka þegar er hlýjast, alltaf bjart og manni finnst maður vera fullur af orku og lífi. Og svo náttúrulega veturinn með snjónum, skíðaferðunum, jeppaferðunum og öllu því. Þetta er svo sem allt ágætt á sinn hátt, það er bara spurning um að njóta þess.
Telma kom heim frá Finnlandi í gær eftir vel heppnaða keppnisferð með körfuboltaliði Grindavíkur en hennar flokkur vann mótið sem það tók þátt í og spilaði m.a. á móti liðum frá Finnlandi og Lettlandi. Frábær árangur finnst mér. ´
Fór í Papey í dag í einn afleysingatúr sem leiðsögumaður og ég held að það hafi tekist bærilega. Skrapp í leiðinni í pönnukökur og kaffi til Möggu en hún dvelur í eynni lungann úr sumrinu. Ég gæti vel hugsað mér að dvelja í eynni á sumrin. Einhverjir fleiri voru þarna úti en nú er verið að gera upp gamla bæinn.
Framundan er nokkur köfunarvinna í vinunni og málningarvinna heima við, altaf nóg að gera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.8.2008 | 22:51
sicko
Þetta sem gerðist í hundgreyinu er það sikkasta sem ég hef heyrt um lengi. Ítarlega lýsingu á því sem gerðist má sjá hér:
![]() |
Bað um að verða drepinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.8.2008 | 10:45
Ásbyrgi
Á föstudaginn var tjaldvagninn hengdur aftaní bílinn, svefnpokarnir, nestið, badmintonspaðarnir og allt það sem maður þarf að nota í útilegu sett í skottið og svo var ekið norður í land, alla leið í Ásbyrgi. Þar er nú fallegt og þar var nú gott veður. Síðan útileguðumst við þar fram á sunnudag. Brynja er mikil útilegumanneskja en henni virðist líða best i útilegu og í tjaldi, var í miklu stuði alla helgina og svaf eins og ungabarn (sem hún reyndar er) báðar næturnar. Á heimleiðinni var stoppað við Dettifoss, aflmesta foss Evrópu, 45m háan og 100 m breiðan og svo var farið í kjötsúpu í Möðrudal. Sem sagt, þokkalegasta helgi. Myndir úr ferðinni má sjá hér til hliðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2008 | 22:24
Búmmtsjagga búmm búmm búmm
Að velja sér bíl er að sumu leiti eins og að velja sér konu. Maður fer á hina og þessa staði og skoðar það sem er í boði, þegar maður svo hefur komið auga á grip sem lítur vel út kannar maður hvað leynist undir yfirborðinu, s.s. hversu marga kílómetra druslurnar eru með á bakinu, kostnað, árgerð og fleira. Það er eins gott að vanda valið vel vegna þess að sú drossía sem verður fyrir valinu á eftir að fylgja manni í blíðu og stríðu um ókomna framtíð.
Það er búið að kitla mig í hátt í tvö ár að fjárfesta í jeppa en hefur aftur á móti ekki gengið upp fyrr en núna. Blessuð Almeran var nú búin að reynast afskaplega vel en þó bar töluvert á plássskorti í henni auk þess sem maður komst ekki allt sem maður vildi komast þegar á þurfti að halda.
Bensínverð er eitt af því sem hefur virkað letjandi á mann að kaupa jeppa en ef maður hugsar út í það þá er bensínið frekar ódýrt. Það kostar t.d. alveg helling að sigla út á sjó og finna olíulind, setja upp olíuborpall og bora og dæla upp olíu, fara með hana í vinnslustöð þar sem hinar ýmsu olíuvörur eru unnar úr henni, þ.á.m bensín, flytja það svo með risastóru tankskipi til Íslands og keyra því svo út á bensínstöð á flutningabíl, allt þetta fyrir 170 kr, það er ekki mikið auk þess sem ríkið tekur dágóðan skerf til sín af þessu. Ætli kílóverð í innanlandsflutningi sé ekki bara stór hluti af þessu fyrir utan náttúrulega allt hitt.
Það er nú samt alveg greinilegur eyðslumunur á Pajero og Almeru en þegar upp er staðið þá munar þetta ekki eins miklu yfir árið og mætti álykta við fyrstu sýn. Á Pajeroinum er Cruise Control þannig að maður getur still á þann hámarkshraða sem er leyfilegur og þannig gleymir maður sér ekki eins og vildi stundum gerast með Almeruna og því mun ég spara c.a. 100.000 kr á ári vegna hraðasekta (þær eru komnar í 50.000 frá jan - júní 2008). Að sjálfsögðu munar líka um leður innréttinguna. Nú þarf maður bara að strjúka burt með blautri tusku óhreinindi eins og ís, súkkulaði, ælu o.fl í stað þess að þurfa að kaupa dýr hreinsiefni eða jafnvel senda bílinn í djúphreinsun. Ég sé því fram á að spara verulega á því að hafa keypt þennan bíl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.7.2008 | 21:49
Makríllinn
![]() |
Methal hjá Margréti EA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.7.2008 | 22:05
Heilgrímur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2008 | 20:39
Ekki veitir af
Ég fór þarna um fyrir fjórum árum og hét því að gera það ekki aftur fyrr en búið væri að leggja almennilegan veg. Þvottabrettin ætluðu að hrista bílinn í sundur. Þar áður fór ég þarna um með foreldrum mínum fyrir svona tuttugu árum og þá var svipað ástand á veginum þarna. Það er furðulegt að Dettifoss, sem af mörgum er talinn vera ein helsta náttúruperla landsins, skuli ekki vera gerð aðgengilegri þar sem margir vildu jú njóta þess að standa á gljúfrabrúninni og upplifa kraftinn í fossinum.
![]() |
Miklar vegaframkvæmdir á Norðausturlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.7.2008 | 13:57
Brynja 7 mánaða
Brynja er 7 mánaða í dag. Af því tilefni útbjó ég smá myndband með henni með mynbrotum sem tekin hafa verið síðustu 4 mánuði. Ætli megi ekki reikna með heljarinnar veislu í tilefni dagsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2008 | 22:25
Veiðiþjófar?
Ætli þessir hafi nokkuð verið að stelast til að veiða eitthvað sem þeir máttu ekki? Þeir virðast allavega vera saklausir í útliti.
![]() |
Veiðiþjófnaður eykst í Kenýa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2008 | 09:32
Mamma mín
Ég sá þennan söngleik í London árið 2005 og hafði mjög gaman af. Ekki man ég nú hvaða leikarar voru þar en allavega var enginn Brosnan. Maður er nú ekki neitt sérstakt Abba fan en þrátt fyrir það þekkja flestir mörg lög með þeim og það skemmir ekki fyrir. Reyndar er ótrúlegt hvað er hægt að spinna góðan söguþráð í kringum þessi lög þeirra. Mér skilst að það sé of dýrt að setja söngleikinn upp hér á landi þannig að við verðum að láta myndina duga í bili. Reikna samt ekki með að fara á hana að eigin frumkvæði.
![]() |
Mamma mía! Íslendingar flykkjast á ABBA-mynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
S Kristján Ingimarsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar