Færsluflokkur: Bloggar
11.9.2008 | 18:32
Þorskeldiskvótafundur o.fl.
Sá merkilegi dagur 11. september er í dag en flestir muna sennilega hvar þeir voru staddir á þessum degi fyrir sjö árum síðan. Ég var m.a. staddur í flugvél.
Það er rok og rigning hér og maður heldur sig sem mest inni, ekki einu sinni hægt að vinna vegna veðurs. Í dag hófst þorskeldisráðstefnan hér á Djúpavogi þar sem nauðsynlegt er fyrir mann að vera og á morgun kemur öll hersingin í heimsókn út á eldisstöðina okkar.
Eitt af því sem var rætt í dag var framtíð aleldis á Íslandi en hvað okkur varðar þá er markmiðið að setja út milljón seiði innan þriggja ára. Á þeim tíma þarf margt að gerast og þróunin að vera hröð en ég er bjartsýnn á að margt vinni með okkur næstu árin. Framtíðarplön okkar miða að því að slátra 3 - 4.000 tonnum af þorski á ári og vonandi gengur það eftir, allavega eru allar aðstæður til staðar hér. Ef framtíðarplön fiskeldisfyrirtækja á Íslandi ganga eftir verða framleidd 12 - 15.000 tonn á ári af aleldisþorski eftir 5 - 8 ár og bætir það að einhverju leiti upp þá kvótaskerðingu sem sjávarútvegurinn hefur orðið fyrir síðustu ár. Svo má benda á það að ríkisvaldið þyrfti að setja meira fjármagn í þær rannsóknir sem þarf að gera til þess að þorskeldið verði arðbært. Einnig er rétt að nefna að fiskeldi er byggðamál þar sem flest öll fyrirtæki í fiskeldi eru á landsbyggðinni. Stjórnvöld myndu því slá a.m.k. tvær flugur í einu höggi með því að styðja betur við að koma fiskeldi á lappirnar og gera það að stóriðnaði hér á landi
Að öðru, landsleikurinn í gær. Það var svekkjandi að tapa þessu en maður sá margt gott í leik íslenska liðsins, baráttu, eldmóð og sigurvilja sem oft hefur vantað hjá liðinu síðustu misseri.
Að lokum, ef þér fannst eitthvað í þessu bloggi meiðandi, óviðeigandi eða gróft, vinsamlegast láttu þá vita af því annað hvort með kommenti eða með því að tilkynna það til blog.is.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2008 | 10:45
Áfram Ísland
Mikið væri nú gaman að komast á völlinn í kvöld, það er orðið svo langt síðan ég fór á landsleik að ég man ekki hvenær það var síðast, jú, sennilega Ísland - Danmörk fyrir svona sex árum. Ég man líka eftir fyrsta landsleiknum sem ég fór á, Ísland - Norður-Írland 1977 þegar Ingi Björn Albertsson skoraði sigurmarkið fram hjá Pat Jennings markverði Arsenal. Það er nú samt svo að ef vel gengur í einum leik þá fara væntingarnar upp úr öllu og oft vill það enda með vonbrigðum. Sigur væri jú frábær og jafntefli fínt. Vonandi náum við allavega að laga tölfræðina gegn Skotunum sem er okkur verulega í óhag. Annars klikkar Baggalútur nú ekki á þessu frekar en vanalega, áfram Ísland.
![]() |
Allt klárt fyrir Skotaleikinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2008 | 07:41
Ég er ekki Tottenham maður
Í sumar málaði ég húsið mitt og nú lítur það mun betur út en í vor. Ég gerði þó ein stór mistök við litavalið en þegar ég var byrjaður að mála sá ég að húsið er í Tottenham litunum, sem er skelfilegt. Egill smiður benti mér nú samt á að ég gæti bætt úr þessu með því að fá mér stóran uppblásinn Hallgrím lækni, klætt hann í Tottenham búning og sett hann upp á þak, þannig að hann myndi svífa yfir húsinu. Ég ætla að reyna þetta. Fyrir og eftir myndir má sjá hér til hliðar og þess má geta að húsið er enn á sölu, ef þú átt 11 milljónir er ég til í að ræða málin.
Það er margt framundan á vinnusviðinu en það sem er næst er þorskeldisráðstefna á Hótel Framtíð á fimmtudag og föstudag en Djúpivogur er jú Mekka þorskeldis á Íslandi þar sem tvö þorskeldisfyrirtæki eru á staðnum, annað í áframeldi (Þorskeldi ehf) og hitt í aleldi (HB Grandi)
Ég setti inn í spilarann hér til hliðar þau lög sem maður hefur oftast heyrt í sumar, ekki alslæm lög þó að þetta sé nú ekki beint það sem maður hefur mest gaman af, þau eyðileggja allavega ekki góða skapið. Hér fyrir neðan er svo 50 sekúndna myndband af skarfi að borða marhnút í höfninni í gær. Skarfur er einn fimasti sundfugl hér á landi og hann er nánast eini afræninginn sem herjar á þorskeldið hjá okkur þannig að við erum heppnir miðað við aðrar þjóðir sem eiga við margar tegundir af afræningjum að stríða, s.s. fugla, otra o.fl
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2008 | 22:56
Subway
Þar sem ég hef orðið fyrir vonbrigðum með Subway á Egilsstöðum fannst mér ekki hægt annað en að láta viðeigandi aðila vita af því.
Góðan dag.
Ég heit Kristján og bý á Djúpavogi og er mikill aðdáandi Subway, því gladdist ég mjög þegar Subway opnaði á Egilsstöðum. Ég hef tvisvar farið þangað en í bæði skiptin orðið fyrir vonbrigðum, í fyrra skiptið var afgreiðslan svo hæg að stöðug biðröð var þrátt fyrir að ekki væru margir að koma inn, í hitt skiptið var staðurinn sjálfur mjög subbulegur gólfið skítugt, rusl á öllum borðum sem enginn sat þó við auk þess sem rusl var upp á afgreiðsluborði, við gosvél og rusladall og skítugt kæliborð þaðan sem áleggið er afgreitt. Við ákváðum að taka varninginn sem við keyptum með af því að við höfðum ekki lyst á að neyta hans inni á staðnum. Ég vona að þið takið þessar athugasemdir til skoðunar en ég vildi láta ykkur vita af þessu þar sem það hlýtur að vera ykkar vilji að staðirnir ykkar séu allir í topp standi eins og ég er vanur hjá Subway.
Ég veit um fleiri sem hafa svipaða sögu að segja,sjá hér:
http://olafurbj.blog.is/blog/olafurbj/entry/605213/
og hér:
http://www.raudhausar.com/jonknutur/?p=475
Ég vona að þetta verði til þess að staðurinn ykkar á Egilsstöðum batni og að ég og fleiri verðum ánægðir viðskiptavinir Subway á Egilsstöðum í framtíðinni.
Bestu kveðjur,
Kristján Ingimarsson
Búlandi 4
765 Djúpivogur
Sæll Kristján,
Takk fyrir að láta okkur vita af þessu. Það er stefna okkar að gæði, hreinlæti og þjónusta séu alltaf til fyrirmyndar á Subway stöðunum. Því er mjög gott að fá að vita þegar hlutirnir eru ekki í lagi hjá okkur. Við munum gera nauðsynlegar úrbætur fyrir austan til að koma staðnum í gott lag. Mig langar að senda þér frímiða á Subway og þá biðja þig um að gefa mér comment á næstu heimsókn þína á Subway?
Með bestu kveðjum / With kind regards,
Gunnar Skúli Guðjónsson
Framkvæmdastjóri / General Manager
Stjarnan ehf / Subway Iceland Inc.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.9.2008 | 07:46
Halló Akureyri
Við skruppum á Akureyri um helgina og sáum ýmislegt athyglisvert.
- Subway á Egilsstöðum er subbulegasti Subway staður sem ég hef komið á og afgreiðslan er slow, samt er þetta ekki slow food staður en er ætlað að vera fast food staður.
- Möðrudalsöræfi eru falleg þrátt fyrir að vera hálfgerð eyðimörk.
- Mývatnssveit er einn fallegasti staður landsins.
- Ugludjöfull.
- Greifinn á Akureyri er einn besti veitingastaður landsins.
- Dalvík er snyrtilegur bær.
- Ólafsfjörður er skrítinn bær, skíðastökkpallur inn í miðjum bæ, kirkjugarður í miðbænum. Ég heyrði af einum skíðastökkvara þar sem stökk og lenti undir meri sem átti leið þar framhjá. Ef hann hefði stokkið lengra hefði hann sennilega lent í kirkjugarðinum.
- Brynju ís er góður.
- Sænautasel heillar mig ekki.
- Sænautasel er ekki það sama og Klaustursel.
Hér fylgir svo myndband af Andarnefjunum sem tóku á móti okkur á Pollinum á Akureyri en þær hafa haldið sig þar að undanförnu. Þarna er sennilega um að ræða Andarnefjumóður með kálf. Reyndar virðist vera töluvert af Andarnefju við Ísland um þessar mundir þar sem þær hafa fundist reknar víðs vegar í kringum landið, m.a. tvær hér við Djúpavog í fyrra.
Eftirfarandi texti um andarnefjur er tekinn af nat.is:
Stærð fullvaxinna karldýra í hafinu umhverfis landið er að meðaltali 8,4 m og 7½-8½ tonn og kvendýra 6-7 tonn. Lífslíkur eru 40-60 ár. Trýnið er mjótt og ennið hátt og hvelft. Í því er mjög feitt lýsi, líkt og í búrhvalnum, sem notað var m.a. í hægðatregðulyf og húðkrem. Tvær 2-4 sm langar tennur eru fremst í neðra skolti. Sporðurinn er ekki klofinn og liturinn er dökkgrár, en neðra borðið nokkru ljósara.Andarnefjur halda sig á djúpu útsævi á milli sökkla meginlandanna. Á veturna eru þær á svæðinu milli New York og Miðjarðarhafs og allt suður að Cape Verde-eyjum. Þær flytja sig norður í Íshaf síðla vetrar og eru all umhverfis landið, þó mest milli þess og Jan Mayen. Stundum elta þær smokkfiskinn upp á grunnsævi. Hér við land eru karldýr fleiri en kvendýr, en við Jan Mayen er nokkuð jafnt á komið með kynjunum.
Karldýr verða kynþroska við 9-11 ára aldur og mökun fer oftast fram í apríl, þótt stundum teigist úr fram í júní. Meðgangan er eitt ár og kálfurinn fæðist 3 m langur. Getnaður verður líklega annað hvert ár meðal kúnna. Aðalfæðan er smokkfiskur (Conatus Fabricii og Ommatostrephes todarus). Andarnefjur eru almennt mjög félagslyndar, þótt fullorðnir tarfar fari einförum. Þeir kafa oft mjög djúpt, allt að 1000 m, og geta verið lengi í kafi. Skutluð andarnefja var u.þ.b. tvær klukkustundir í kafi, svo vitað sé. Að þessu leyti líkist andarnefjan búrhvalnum.
Andarnefjan er spök og forvitin og nálgast oft skip og báta. Þessi náttúra gerði hana auðveidda og það notfærðu Norðmenn sér við Ísland. Hún sýnir mikið trygglyndi og yfirgefur ekki særða félaga fyrr en þeir eru dauðir. Fjöldi einstaklinga þessarar tegundar í heiminum er óþekktur, en áætlað er, að u.þ.b. 42.000 dýr haldi sig á hafssvæðinu umhverfis landið á sumrin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.8.2008 | 00:09
Skyggnst inn í framtíðina
Mikið er nú gott að vera skyggn en ég bý einmitt yfir þeim hæfileika að geta skyggnst inn í framtíðina. Ég spái í spil, bolla og les í lófa auk þess sem ég legg Tarot spil, en ég nota líka stjrnurnar og stjörnumerkin til þess að sjá fram í tímann. Ef þú þarft að láta spá fyrir þér skaltu hafa samband. Ég lék mér að því að skyggnast nokkur ár fram í tímann fyrir okkur Írisi og hér er það sem ég sá:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.8.2008 | 09:40
Ræða fyrir móttöku landsliðsins
Ég ætlaði ekki að vera eins og allir aðrir bloggarar og blogga um handbolta en ég bara gat ekki haldið aftur af mér og því ákvað ég að skrifa stutta ræðu, ef ég yrði nú fenginn til þess að bjóða strákana velkomna þegar þeir koma til landsins, vonandi með gull.
Handboltalandslið Íslands, þjálfarar og aðstoðarmenn.
Ég vil bjóða ykkur velkomna til Íslands eftir frábæra frammistöðu á Ólympíuleiknum í Peking. Til hamingju með árangurinn. Í okkar augum eruð þið hetjur. Þið hafið þjappað þjóðinni saman, fyllt hana af þjóðarstolti, jákvæðni og bjartsýni og allt bíp hefur verið sett til hliðar. Þetta er eitt mesta afrek íslenskrar íþróttasögu og því á eftir að minnast þessa afreks um ókomin ár. Máltækið segir að "There's no I in team" og vissulega skiptir liðsheildin miklu máli í handboltanum en einstaklingsframtakið, í þágu liðsins að sjálfsögðu, skiptir líka miklu máli. Ég veit að þið munuð aldrei gleyma þessum Ólympíuleikum en það sama á við okkur, við munum aldrei gleyma þessu afreki. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, velkomnir heim og til hamingju.
![]() |
„Ég vil fá gullið og þjóðsönginn“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2008 | 20:00
Nokkrir punktar
- Mér lýst vel á Hönnu Birnu sem borgarstjóra.
- Mér finnst þessi meirihluti betri en sá sem var á undan, enda var það valdarán hin mesta lágkúra.
- Ég vona fyrir hönd allra að þessi meirihluti haldi og standi sig vel fram að næstu kosningum
- Mér fannst Ólafur ekki valda þessu frá fyrsta degi.
- Mér finnst borgarpólitíkin sökka feitt
- Mér finnst það verulega lélegt hjá stóru flokkunum þremur að geta ekki myndað traustan meirihluta.
- Áminning: Aldrei treysta pólitíkusum, ekki kjósa þá í næstu kosningum.
Þetta er það sem kemur fyrst upp í huga minn við þessi skipti.
![]() |
Lyklaskipti í Ráðhúsinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2008 | 15:16
Létt
Mínir menn í Chelsea eru í góðum gír í upphafi tímabils. Í dag var boðið upp á leiftrandi sóknarleik á Stamford Brige, sem gaf af sér fjögur mörk. Scolari virðist vera að gera góða hluti með liðið ef marka má þennan fyrsta leik tímabilsins og leikina á undirbúningstímabilinu og gaman að sjá hvað kallinn lifir sig mikið inn í leikinn. Deco var fínn miðað við að hann er að byrja í enska boltanum, reyndar fannst mér hann vera einn besti maður vallarins. Portsmouth átti afskaplega dapran dag en enginn spilar betur en andstæðingurinn leyfir og Chelsea leyfðu þeim ekki neitt, reyndar var þessi Jónas Kabúl afspyrnu lélegur á miðjunni. Portsmouth er af mörgum spáð ágætu gengi í vetur jafnvel Evrópusæti. Allavega, það verður gaman að fylgjast með enska boltanum í vetur, ég tala nú ekki um ef þetta er það sem við fáum að sjá.
![]() |
Chelsea burstaði Portsmouth, 4:0 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2008 | 23:09
Rannsóknarverkefni
Ég fékk í gær tilboð um að taka þátt í alþjóðlegu rannsóknarverkefni sem miðar að því að minnka afföll í þorskeldi en afföll sem verða í eldinu er ein helsta hindrunin sem stendur þorskeldi fyrir þrifum eins og staðan er núna, og á það við alla staði í heiminum þar sem þorskeldi er stundað. Um leið og hægt verður að minnka þessi afföll mun þorskeldið verða stóriðnaður bæði hér á landi og víðar. Í árdaga laxeldis í Noregi glímdu menn við sama vandamál, þ.e. mikil afföll en með tímanum náðu menn tökum á þessu og vonandi tekst það einnig með þorskinn.
En þá að þessu rannsóknarverkefni. Verkefnið ber heitið "Registering og E-læring for bere torskehelse og mindre svinn". Vonandi leiðir þetta verkefni okkur nær því að minnka afföllin. Þeir sem taka þátt í þessu eru:
Grethe Adoff, Norsk sjomatsenter Noregi, verkefnisstjóri.
Harald Tvedt, Danafeed (Fóðurframleiðandi) Noregi/Danmörku
Arve Nilsen, Veterinærinstituttet (Dýralæknisemættið), Noregi
Björn Erik Sörvig, Fjord Marin (Þorskeldi), Noregi
Arne Kolbeinshavn, Fiskaaling (Fiskeldi), Færeyjum
En auk mín verða fulltrúar frá Gunnvöru og Brim þátttakendur í verkefninu fyrir Íslands hönd.
Fyrsti fundur verður um mánaðamótin september október.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
S Kristján Ingimarsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar