Færsluflokkur: Bloggar

Trúbadorar

Í gær fór ég í sund en þar voru staddir í heita pottinum tveir trúbadorar sem voru að fara að troða upp í Löngubúð.  Við tókum tala saman og það varð úr að ég var munstraður með þeim í nokkur lög.  Þessir trúbadorar voru Svavar Knútur sem m.a. hefur sungið og spilað með hljómsveitinni Hraun og hinn var Pete, eða Owls of the swamp, frá Melbourne í Ástralíu.  Á tónleikunum kom í ljós að þeir eru frábærir tónlistarmenn og skemmtilegir sögumenn og tónleikarnir voru hinir skemmtilegustu, sennilega einir skemmtilegustu trúbadoratónleikar sem ég hef farið á, og jafnast trúlega á við tónleika með Megasi í slökkvistöðinni fyrir svona tuttugu árum.  Stemmingin var góð og fólk farandsöngvararnir fengu góðar viðtökur en Djúpivogur er einn af mörgum stöðum sem þeir heimsækja á ferð sinni, bæði um Ísland og nokkur önnur lönd.  Ég hvet alla til að kynna sér hljómsveitina Hraun betur en þeir hafa gefið út tvo diska.  Ég setti eitt lag með þeim í tónlistarspilarann hér til hliðar en það var einmitt flutt á tónleikunum í gær og annað má sjá hér fyrir neðan.

 


Kvíar

Tja... hvað skal segja, þær kvíar sem við höfum notað í sex ár hafa þolað íslenskar aðstæður fram að þessu en við höfum notað kvíar sem framleiddar eru af norskum kvíaframleiðendum, enda eru aðstæður hér sambærilegar við t.d. Norður - Noreg.  Samt svolítið skrýtið að kvíaframleiðendur séu ekki með í þessu verkefni.  Kvíar hafa ekki verið vandamál fram að þessu, heldur hefur framleiðsla seiða og vöxtur, og er, það vandamál sem brýnast er að leysa til þess að þorskeldi geti orðið arðbært.  Vonandi tekst það innan fárra ára.  Gaman verður samt að sjá hvort eitthvað nýtt kemur í ljós og hvort gerðar verði tilraunir með sökkvanlegar kvíar eða úthafskvíar.
mbl.is Smíða sjókvíar sem þola íslenskar aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Papey

Þá eru Telma og Andri farin,þau fóru um síðustu helgi en Ingimar fer næsta sunnudag.  Hann er fljótur að líða þessi tími og sumarið verður búið áður en maður veit af, reyndar hefur varla komið sumar hér um slóðir ef miðað er við sól og tuttugu stiga hita en vonandi rætist nú úr því fljótlega.  Þetta hefur eflaust komið niður á ferðamannatraffíkinni en fólk sækir jú töluvert í þá staði sem bjóða upp á gott veður.  

Veðrið kom þó ekki í veg fyrir að það vantaði leiðsögumann í Papey í gær og í dag og því lét ég til leiðast að fara tvær ferðir í Papey í gær og eina í dag.  Það gekk alveg ágætlega og hafði ég töluvert gaman af en það er dásamlegt að standa uppi á 40 metra háu fuglabjargi í góðu veðri, horfa niður og hlusta á fuglagargið, auk þess sem eyjan sjálf hefur einhvern veginn þau áhrif að manni finnst hún búa yfir mikilli dulúð.  Hvort það eru sagnir um Papa, ríka menn frá Papey og fyrrum ábúendur, einangrunin eða eitthvað annað sem hefur þessi áhrif veit ég ekki, allavega verður maður fyrir töluverðum hughrifum þarna úti en ég held að það væri fínt að vera þarna í svona mánuð og slaka á.  

Eftir ferðina í dag var farið með tvo fuglatalningamenn út í ey.  Haha gangi þeim vel, "þarna er einn, þarna er annar, var þessi búinn?"  Allavega er það mikið verkefni þar sem þarna er gríðarlegt magn af allskonar fugli og ábyggilega mjög erfitt að finna áreiðanlega tölu á þetta.

Því miður var það ekki við hæfi að leiðsögumaðurinn væri á fullu að taka myndir en í staðinn er hér fyrir neðan örstutt myndband sem var tekið fyrir um mánuði síðan en þá var nú skyggnið reyndar heldur verra en núna og svo sem ekki mikið að sjá, enda ekkert farið upp í eyna í það skiptið.  Ég stefni nú samt á að fara aftur út og hafa þá upptökuvélina með.

 


Íslenskir vegir

Þegar umræða fólks berst að samgöngumálum skynjar maður oft að um mikið tilfinningamál er að ræða fyrir marga.  Ég verð nú að segja að mér finnst við íslendingar vera svona  tuttugu árum á eftir tímanum í uppbyggingu vega.  Sem dæmi má nefna að ekki er búið að tvöfalda leiðirnar í nágrenni Reykjavíkur þar sem mest umferðin er, t.d. Reykjanesbraut og Suðurlandsveg, þetta hefði átt að gerast fyrir tuttugu árum og það hefði komið í veg fyrir mörg banaslys.  Ekki er enn búið að malbika þjóðveg 1 en að vill svo einkennilega til að hér í Djúpavogshrepp eru einu kaflarnir á þjóðvegi 1 sem á eftir að malbika en jú reyndar er smá kafli í Skriðdal sem Djúpavogsbúar þurfa reyndar að keyra um ef þeir ætla í Egilsstaði.  Hvernig stendur á þessu? Af hverju er þetta ekki búið fyrir löngu síðan eða svona tuttugu árum?  Ekki þýðir að kenna um peningaleysi það er til nóg af peningum til að klára þetta, þetta eru nú ekki það langir kaflar.  Á meðan er hægt að eyða pening í að gera vegkantana fallegri (hvaða rugl er það? Hvar er forgangsröðunin?) eins og maður hefur séð hér í nágrenninu, þá hljóta að vera til peningar til að leggja slitlag á nokkra kílómetra.  Ekki þarf heldur að kenna um deilum við landeigendur eða heimamenn, þar sem  þær hafa ekki verið til staðar í þessu tilfelli.

Auðvitað ætti líka að vera búið að fjarlægja allar einbreiðu brýrnar á þjóðvegunum, fyrir svona tuttugu árum

Svo er það Öxi, margir virðast vera á móti vegi yfir Öxi.  Af hverju eru menn á móti samgöngubótum?  Af hverju ekki bara að samgleðjast þeim sem geta átt þess kost að komast á milli staða á sem skemmstum tíma?  Menn hafa notað það sem rök að það sé tímaskekkja að fara með veg í 530 m hæð af því að þar mun snjóa.  Ég sé engan snjó þarna núna, og þó að lokist einn mánuð á ári, hvað með alla hina 11 mánuðina? Annars væri hægt að skrifa heila bók um veg yfir Öxi og ég ætla ekki að fara út í það.

Svo er maður nú búinn að furða sig á Þvottárskriðunum, það væri sniðugt að bora í gegnum Lónsheiðina og losna við þennan viðhaldsfreka og hættulega kafla sem skriðurnar eru, reyndar er það mál nú komið í umræðuna og vonandi kemst þetta inn á 18 ára plan Vegagerðarinnar, hvað er annars Sundabraut búin að vera lengi í umræðunni?

Svo er það hámarkshraðinn.  Ég var tekinn á 109 á Mýrdalssandi um daginn.  Það er stórfurðulegt að það sé sami hámarkshraði á löngum beinum, einbreiðrabrúarlausum köflum á jóðveginum og á köflum eins og t.d. hér í Hamarsfirðinum þar sem allt er morandi í blindhæðum og blindbeygjum.  90 km hámark á línuna.  Að mínu mati mætti hækka hámarkshraðann á löngu beinu köflunum upp í 110 og lækka hámarkshraðann á köflum eins og í Hamarsfirðinum niður í 70.  Annars var ég einu sinni ánægður þegar ég var tekinn á of miklum hraða.  Þá var ég á Reykjanesbrautinni og þegar er búinn að stöðva bifreiðina og skrúfa niður rúðuna stingur Unnur Birna höfðinu inn og spyr "viltu koma aðeins yfir í lögreglubílinn með mér?"  Ég hélt það nú og langaði mest að spyrja hvort hún væri með handjárn en allavega getur maður gortað sig af því að Unnur Birna hafi tekið mann.

Ég veit að Guðmundur farandverkamaður er sammála mér um sumt af þessu, en örugglega ekki allt.


Sumarið er tíminn

Já sumarið er tíminn til að vera afkastalítill bloggari.  Einhvern veginn er það nú svo að maður töllast minna þegar björt sumarkvöld eru annars vegar, svo er nú minni tími til þess þegar mikið af börnum er á heimilinu en þessa stundina erum við 8 í heimili W00t.  Allt stefnir nú samt í að það fækki um helgina þegar eitthvað af krökkunum mínum fer til síns heima í Grindavík.  Um síðustu helgi fór ég með Andra á fótboltamót á Egilsstöðum þar sem hann spilaði með sameiginlegu liði Neista og Leiknis.  Ég tók eitthvað af þessu upp en ætla ekki að birta það hér af því að ég mun aldrei sýna myndir af honum í Leiknisbúningi Devil.  Telma er búin að vera að vinna stóran hluta af dvöl sinni hér enda veitir ekki af þar sem hún er að fara í körfuboltabúðir með Grindavík í Finnlandi síðar í mánuðinum.  Ingimar er búinn að vera í sveit síðan í maí og nú er hann að undirbúa sig fyrir kassabílarallý á humarhátíð.  Karen er að njóta lífsins í Löngubúð og Brynja er að njóta lífsins sem skriðdýr í Ekru.

Á morgun liggur fyrir að spila í fermingarmessu en sem stendur er enginn organisti á Djúpavogi, það verður spennandi að sjá hvort maður nær að rífa upp stemminguna eða drepa hana .

Afmælið rann átakalítið í gegn fyrir viku.  Nú fer maður samt að velta fyrir sér hinum og þessum hlutum sem tengjast aldri, t.d. af hverju gránar hár?   Svarið við því er einfalt.  Allt hár á höfði okkar er með frumur sem innihalda litarefnið melanin.  Þessum frumum fækkar með aldrinum og þar með minnkar melanin í hárinu og hárið fær glærari áferð og verður grátt, silfrað eða hvítt.  Ef fólk fær grátt hár snemma á ævinni tengist það oft erfðum en getur einnig verið afleiðing reykinga eða vítamínskorts.  Grátt hár í barnæsku má tengja við sjúkdómsheilkenni eins og t.d. lesblindu.  Svo er það kannski enn meira umhugsunarefni af hverju eldri konur reyna að fela gráu hárin með því að nota t.d. skærbláan hárlit.


40

Það er stór dagur í dag hjá mér,  40 ár að baki, 60 eftir.  Formlega verður maður nú sennilega að teljast gamalmenni, gerið göngugrindurnar klárar, tengið súrefniskútinn og finnið fyrir mig heyrnatækið.  Þrátt fyrir að vera kominn á gamalmennaaldur er maður samt nokkuð hress og gamla klisjan um að maður hafi aldrei verið sprækari getur vel átt við mig.  Allavega er ég farinn út að hlaupa 10 km. en markmiðið er að njóta dagsins og að hlaupa er eitt af því.  Þér er svo boðið í kaffi í dag eða kvöld að Búlandi 4.

Kaupþingsmót II

Hér er smá myndband frá Kaupþingsmótinu í knattspyrnu sem var á Akranesi um síðustu helgi og þarna má sjá marga góða takta hjá strákunum. Svo er annað mót á sunnudaginn á Egilsstöðum þannig að það er nóg að gera í þessu.  Meira blogg á morgun.

 


Wag og freebirth

Orð vikunnar tengjast konum.  Nú vill það svo til að EM í knattspyrnu stendur yfir í Sviss og Austurríki og aðeins fjórar þjóðir eru eftir.  Ég er að vonast til að sjá Þjóðverja og Rússa spila til úrslita og Þjóðverjar verði Evrópumeistarar en allt getur gerst þessu, Tyrkir og Spánverjar gætu tekið þetta líka.  Það er út af keppnum eins og orðið WAG hefur orðið til en það þýðir eiginkona eða kærasta frægs knattspyrnumanns (ife nd irlfriend of a famous footballer).  Orðið varð til árið 2004 en dæmi um þetta er Victoria Beckham, Cheryl Cole og Coleen McLoughlin sem giftist Wayne Rooney nú í júní í brúðkaupi sem kostaði víst nokkur hundruð milljónir.  Þetta er víst æskuástin hans og bresk slúðurblöð tala um þetta sem brúðkaup ársins.  Konurnar og kærusturnar í sjónvarpsþáttunum footballers wives eru því allar Wags.  Karlkynsorðið fyrir sama hugtak er Hab (Husband and boyfriend of a famous sportswoman) og svo hafa fleiri orð þróast eftir að Wag varð til, t.d. Wow (Wives of wimbledon), Swag og Cwag.

Svo er spurning hvort einhverjar þessara kvenna velji freebirth en það er víst alltaf að verða vinsælla og vinsælla meðal nútíma kvenna sem búa við öl almenn þægindi.  Freebirth þýðir semsagt að fæða barn heima hjá sér án utanaðkomandi aðstoðar s.s læknis, ljósmóður eða annars aðila sem er læknismenntaður.  Þau rök sem konur nota til þess að mæla með freebirth er að fæðing eigi að vera náttúruleg og að yfirleitt séu þeir sem vinna við að taka á móti barni einhverjir ókunnugir en fæðing á að vera einkamál.  Hægt er að fræðast frekar um þetta á http://www.unassistedchildbirth.com/.  Persónulega myndi ég nú samt ráðleggja öllum konum að nota þá tækni aðstoð og deyfilyf sem í boði eru fyrir athöfn eins og fæðingu.


Kaupþingsmót

Í gær kom ég heim úr ferðalagi en í þetta skiptið var Akranes heimsóttur.  Ástæðan var m.a. að Andri var að fara að keppa með 7. flokki Grindavíkur á Kaupþingsmótinu.  Skemmst er frá því að segja að þetta var frábær helgi.  Sólin skein alla helgina og reykurinn úr sementsverksmiðjustrompinum stóð beint upp stóran hluta af helginni, þetta varð til þess að einhverjir þurftu að sprauta Aftersun í andlitið á sér.  Strákarnir sýndu ágætis tilþrif og mínir menn stóðu sig vel en ég ætla að reyna að setja inn myndband frá þessu fljótlega. 

Fótboltaliðið var saman allan tímann og foreldrar skiptu með sér vöktum til að gæta þeirra.  Mér fannst nú ekki síður skemmtilegt standa vaktina með strákunum en að horfa á leikina en það er mikil orka og gleði í þessum pjökkum.  T.d. fór ég með þá í sund og ég hafði nú ekki séð neinn þessara stráka áður og þekkti engan þeirra með nafni og fyrir mér líta þeir allir eins út.  Svo þegar maður fer með sjö eins stráka í sund þar sem 150 aðrir strákar og allir eins eru  getur verið nokkuð vandasamt að tryggja að allir skili sér til baka.  Þetta tókst nú samt allt ágætlega enda passa þeir hvern annan vel og liðsandi og samstaða er til fyrirmyndar.  Alltaf er nú gaman að heimsækja Skagann en þar á maður bæði ættingja og vini og kunningja frá skólaárum mínum þar, skipulag mótsins var fínt en þarna voru 102 lið og allt í allt voru milli 4 og 5000 gestir í bænum og svo má ekki gleyma að þakka Inga og Hörpu fyrir gistipláss þessar þrjár nætur. Vonandi nær maður að kíkja fljótlega á Skagann aftur. 


Gleðilega hátíð

Gleðilega þjóðhátíð. Í mínum huga er 17. júní mikill hátíðisdagur og maður reynir að vera á þjóðlegu nótunum, klæða sig í lopapeysu og éta hangikjöt eða slátur.  Þegar maður var krakki fannst manni alltaf vera sól og mikið um að vera á sautjánda júní en svo tók við tímabil þar sem var þoka og rigning en það skipti ekki máli af því að 17. júní og áfengi tengdust tryggðaböndum.  Nú er maður hins vegar aftur kominn á þann punkt að reyna að halda í krakkann í sér og vera úti í sólinni og leika sér á sautjánda júní (í lopapeysunni samt, ekki veitir af).

Í fréttum er þetta helst að krakkarnir eru hjá mér og verða fram í júlí og um næstu helgi er fótboltamót á Akranesi sem Andri fer á og ætli ég fylgi honum ekki eftir þangað. Kannski reynir maður svo að taka sér einhverja frídaga á meðan þau eru hér og gera eitthvað sniðugt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

S Kristján Ingimarsson

Höfundur

S Kristján Ingimarsson
S Kristján Ingimarsson

 

Faðir, sambýlismaður, fiskeldisfræðingur, íþróttaáhugamaður, tónlistaráhugamaður, kafari, og með allt of mörg áhugamál.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Mynd_0402140
  • 20160922 120421 (Large)
  • gömul vél (Large)
  • DSC_0042 (Large)
  • DSC_0014 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband