Færsluflokkur: Bloggar
4.6.2008 | 20:04
Það styttist í EM
Nú styttist í að Evrópumótið í knattspyrnu byrji en á laugardaginn verður fyrsti leikurinn og það verður veisla fram til 29. júní. Erfitt er að spá fyrir um hver vinnur en það sýndi Grikkland í síðustu keppni. Að mínu mati er samt líklegast að Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Portúgal fari í fjögurra liða úrslit og eigum við ekki að segja að Frakkland og Portúgal spili til úrslita og Portúgal taki þetta. Annars hef ég yfirleitt haldið með Þjóðverjum í stórmótum þar sem það er lang öruggast en eins og flestir vita vinna Þjóðverjar yfirleitt stórmót sem þeir taka þátt í eða komast allavega í úrslit. Ég á eftir að velja mér lið til að halda mér í þessari keppni, ætli maður geri það ekki bara þegar maður er búinn að sjá nokkra leiki í mótinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.6.2008 | 19:58
Ég er hættur...
... sem ferða og menningarmálafulltrúi Djúpavogs. Eftir breytingar í starfi mínu hjá fiskeldi HB Granda varð það ljóst að ég kæmist ekki yfir að sinna báðum störfunum sem skildi. Þetta er búinn að vera afskaplega skemmtilegur tími og ég held að margt hafi áunnist. Að mínu mati er vinna við komu skemmtiferðaskipa til Djúpavogs það sem í framtíðinni mun skilja mest eftir sig þegar fram í sækir en innan fárra ára ætti heimsóknum slíkra skipa að fjölga ef vel tekst til. Nú er verið að leggja lokahönd á útgáfu gönguleiðakorts fyrir Djúpavogshrepp en það er mitt síðasta verkefni í þessu starfi. Þegar ég hætti mun Bryndís Reynisdóttir taka við og starfið mun breytast úr hálfu starfi í fullt starf en vonandi mun þetta leiða af sér fjölgun ferðafólks, fleiri menningarviðburði og meiri umfjöllun um Djúpavog. Ferða og menningarmálin tengjast æði oft og stundum er erfitt að skilgreina í hvorn flokkinn viðfangsefnin fara og má þar nefna Hammond-hátíð.
Ég skrapp um helgina á árshátíð HB Granda og ekki er hægt að segja annað en að þetta hafi verið hin besta skemmtun enda ekkert til sparað, skemmtiatriði, góður matur og ball með Buff. Þar sem ég er í þorrablótsnefnd ætla ég að leggja það til að Buff verði fengin til að spila á þorrablótsballinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2008 | 10:18
Eldisþorskur
Ég tók myndavélina með mér í vinnuna í gær og tók upp myndband af þorski í kvíum. Nú eru þrjár vikur síðan þessi fiskur var baðaður og hann er orðinn mjög hress. Svo hress að hann syndir af krafti út í nótavegginn eins og hann vilji komast út. Reynsla af þorski í eldi hefur m.a. kennt mönnum að þorskur gerir allt sem hann getur til að sleppa en það á ekki við um aðrar tegundir. Reyndar er hegðunin sem sést á myndbandinu tilkomin vegna stressviðbragða, þar sem þorskurinn lítur á okkur kafarana sem afræningja eins og t.d. sel, ég ætla samt að vona að aðrir en þorskarnir rugli mér við sel. Já þorskur getur orðið stressaður en alla jafna er þetta samt afskaplega afslappað umhverfi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2008 | 08:05
Þeir klæðast glimmeri á sviði og vaða reyk
Fyrirsögnin er nokkuð lýsandi fyrir þessa bloggfærslu en veist þú sem lest þetta úr hvaða íslenska dægurlagi þetta er?
Ekki náði nú sjómannalagið manns inn í úrslitin í keppnninni. Annaðhvort er lagið svona leiðinlegt eða þá að það er allt of langt, nema hvort tveggja sé. Lagið má finna hér til hliðar í tónlistarspilaranum en þar er ég Unknown Artist sem er jú réttnefni, hvernig fer þessi tónlistarpilari annars að því að vita það?
Það er búið að vera brakandi blíða hér síðan fyrir helgi og ekkert lát virðist vera á þessu. Helgin fór að mestu leiti í slökkviliðsæfingar en hér á Djúpavogi var haldið sameiginlegt námskeið fyrir slökkviliðið hér, á Egilsstöðum, Vopnafirði og Borgarfirði. Þetta var hið ágætasta námskeið og við höfðum allir mjög gott af þessu. Reykköfun og Reyklosun var þema námskeiðsins en það má lesa nánar um þetta og skoða myndir hér.
Auðvitað var svo horft á Eurovision á laugardagskvöldið ásamt góðu fólki sem kíkti til okkar. Ekki veit ég hverju fólk var búið að búast við en mér fannst 14. sætið bara nokkuð sanngjarnt, var reyndar búinn að spá 11. sæti í júróvisjonpartísveðmáli þannig að ég hefur verið aðeins of bjartsýnn líka. Þetta allavega kom manni lítið á óvart.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.5.2008 | 09:01
Frábært
Nú gleðst ég. Þetta hlaut náttúrulega að gerast fyrst ekki náðist að vinna einn einasta titil á tímabilinu og ekki náði hann nú að vinna traust stuðningsmannanna, enda hafa atriði eins og taktík liðsuppstilling háð honum og ekki hefur hans bjarta bros nú verið til þess að vinna fólk á sitt band. Engar framfarir hafa orðið í vetur en vonandi verður fenginn maður í þetta verkefni sem er hæfur og verður þarna í nokkur ár þannig að stöðugleiki komist á. Þetta verður skemmtilegt.
![]() |
Grant rekinn frá Chelsea |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.5.2008 | 21:59
Stefnir í góða helgi
Mmmmm.... ég sé helgina fyrir mér í hyllingum. Laugardaginn ætla ég að nota í að stunda vatnasport af ýmsu tagi s.s. köfun, brimbretti, sjóskíði og seglbretti og kannski fer ég með fjölskylduna á banana boat. Á leiðinni heim af ströndinni fylgist maður með stúlkum í strápilsum dilla sér í takt við sem calypso tónana sem berast mér til eyrna frá Hótel Framtíð í kvöldkyrrðinni.
Á sunnudagsmorgun fær maður sér svo morgunverð sem samanstendur af exotiskum ávöxtum og svo verður farið á ströndina þar sem sólin verður sleikt og maður getur drukkið rommkokteila úr kókoshnetu í skugga pálmatrjánna. Um kvöldið væri svo notalegt að fara í göngutúr á heitum sandinum á hvítri ströndinni.
Ætli þetta endi svo ekki á því að það kemur fellibylur og feykir öllu í burtu.
![]() |
Næstum óraunveruleg veðurspá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.5.2008 | 18:44
Keppni í tónlist
Nú eru í gangi nokkrar tónlistarkeppnir í fjölmiðlum. Fyrst ber að nefna Eurovision sem tröllríður okkur íslendingum um þessar mundir og í gær var víst fyrri undanúrslitakeppnin en ég veit ekki hvernig fór. Ég verð að segja að ég hef yfirleitt nokkuð gaman af þessari keppni en einhvernveginn er ég ekkert spenntur þetta árið, sem er miður af því að þetta getur verið hin ágætasta skemmtun. Ég veit ekki hvað veldur en kannski hefur það áhrif að ég er ekkert yfir mig hrifinn af laginu eða flytjendum en auðvitað væri gaman að Ísland myndi vinna og Eurovision yrði í Egilshöllinni á næsta ári.
Svo er það American Idol. Ég hef aldrei fylgst með þeirri keppni fyrr en núna þegar allir aðrir eru hættir að fylgjast með. Ég veit maður er oft svolítið öfugsnúinn. Nú eru tveir Deividar eftir, Artsjúleta og Kúkk. Ég verð að segja að Kúkk finnst mér skemmtilegur, ég gæti hugsað mér að kaupa disk eða fara á tónleika með honum en hinn finnst mér vera væminn og mjög einhæfur en það er eins og hann sé alltaf að syngja sama lagið, á meðan Kúkk er nokkuð fjölhæfur. Úrslitin í American Idol ráðast víst í kvöld, miðvikudagskvöld. Ætli maður verði ekki að vera svolítið væld og vaka til eitt á miðvikudegi til að fylgjast með þessu.
Að lokum er það svo sjómannalagakeppni Rásar tvö. Ég ákvað að skella mér í stúdíó Kerhamra og taka upp sjómannalag til þess að setja inn í keppnina en ég reikna nú ekki með að það komist svo langt að lenda í því úrtaki sem verður kosið um en það sakar ekki að prófa. Upptökustjóri og munnhörpuleikari var B Hafþór Guðmundsson, svo fékk Óla Bjösss til að slá taktinn og þar sem Gummi mávur hans er fimur bassaleikari náðist að plata hann til að bassast í þessu lagi. Hægt er að hlusta á lagið í tónlistarspilaranum hér til hægri en ég er víst unknown artist.
Síðan má spyrja sig, er hægt að keppa í tónlist? Allavega eru ýmiskonar tónlistarkeppnir mjög vinsælt fjölmiðlaefni þannig að það hlýtur að vera hægt, hvort sem menn eru svo sammála um úrslit, sitt sýnist nú alltaf hverjum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.5.2008 | 20:51
Fuglar
Dagurinn í dag var hinn rólegasti en dagurinn í gær fór í fuglaskoðun þar sem hér á Djúpavogi var haldið landsmót fuglaskoðara um helgina. Mótið heppnaðist með ágætum enda lék veðrið við okkur og allar aðstæður voru hinar ágætustu og gaman að fá saman fólk sem bæði hefur mikla reynslu af fuglaskoðun og svo líka fólk sem tiltölulega lítið hefur stundað þessa iðju en fátt er jafn afslappandi og að vera úti í náttúrunni og fylgjast með fuglalífinu. Djúpivogur er smám saman að komast á kortið sem fuglaskoðunarstaður og ekki var þetta landsmót til að skemma fyrir. Alls sáust 61 tegund sem þykir býsna gott en þar á meðal voru nokkrar sjaldgæfar tegundir eins og Barrfinka og Gransöngvari. Það er nú ekki gott að mynda fugla með jafn einföldum græjum og venjulegri heimilisupptökuvél en samt set ég inn myndaband hér þar sem fram koma rauðahöfðaendur í matarhléi, Skeiðönd en hún er merkileg að því leiti að íslenski stofninn telur innan við 50 pör, Straumendur, en Ísland er eini staðurinn í Evrópu sem hún verpir á og svo Hrafnsendur en þær eru ekki algengar á Íslandi nema hér við Þvottárskriðurnar og svo við Mývatn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2008 | 00:57
Fóðrun
Það er búið að vera nóg að gera í vinnunni síðustu daga en samt er það nú svo að þegar maður ætlar að fara að segja frá því, þá er eins og ekkert merkilegt hafi ferst. Ég tók samt upp smá myndband þegar verið var að fóðra þorskinn í vikunni. Eins og sést borðar stærri fiskurinn ágætlega en sá minni borðar ekki neitt og því verðum við að svelta hann í nokkra daga til þess að athuga hvort matarlystin komi. Til þess að sannreyna að fiskurinn væri ekki að éta komum við fyrir neðansjávarmyndavél sem við tengdum við skjá í vinnubátnum. Þetta er nokkuð dýr búnaður en ég er að spá í að auka við hann þannig að hann geti sent þráðlaust í tölvuna mína á skrifstofunni auk þess sem ég get stjórnað myndavélinni frá skrifstofunni, þ.e. fært hana fram og til baka og upp og niður í kvínni auk þess að snúa henni í 360° um x og y ás. Svo væri líka freistandi að bæta við þetta ofansjávarmyndavél (vefmyndavél) sem yrði staðsett á Stapaey (fóðurprammanum) þannig að ég geti loggað mig inn á hana og fylgst með stöðinni af skrifstofunni, heima hjá mér eða hvar sem ég er staddur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
S Kristján Ingimarsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar