Færsluflokkur: Bloggar
14.5.2008 | 23:50
Bacn
Þess má geta að enska knattspyrnuliðið West Ham er stundum kallað Wet Spam af þeim sem halda ekki með því.
Og þar hafið þið það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2008 | 22:39
Ricky Carvalho, Ricky Carvalho
Carvalho er vel að þessu kominn en mér fannst hann jafnvel enn betri á síðasta tímabili þegar hann hélst vörninni saman í fjarveru fyrirliðans, John Terry. Annars nálgast Carvalho það að vera fullkominn varnarmaður, m.a. frábær tæklari, fljótur, fínn í loftinu.
Annars var Joe Cole valinn leikmaður ársins af stuðningsmönnum enda er hann búinn að eiga frábært tímabil. Mark Juliano Belletti gegn Tottenham var valið mark ársins en það má sjá hér fyrir neðan. Undir 18 ára liðið fékk svo viðurkenningu fyrir góða frammistöðu í vetur og Frank Lampard fékk viðurkenningu fyrir að vera búinn að skora yfir 100 mörk fyrir félagið.
![]() |
Carvalho bestur hjá Chelsea |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2008 | 23:19
Baðdagurinn mikli
Vinnan á allan huga manns þessa dagana en við vorum í gær og í dag að baða þorsk! Já baða þorsk. Það kemur til út af því að sníkjudýrið Gyrodactylus hefur fundist í hluta af þorskinum okkar. Þetta er sníkjudýr sem er um 0,5 mm að lengd, litlaust og sest á tálkn fiskanna en til þess notar það klær sem eru á sitthvorum endanum. Þegar sjávarhitinn hækkar fjölgar óværan sér hraðar og getur valdið skemmdum á tálknum og dauða. Gyrodactylusinn fjölgar sér þannig að hver og einn Gyrodactylus fæðir lifandi afkvæmi sem er nánast jafn stórt og foreldrið og það sem meira er afkvæmið er með annað afkvæmi inn í sér þegar það fæðist, þannig að þetta er svona eins og rússnesk Babúshka, hver dúkka inn í annarri.
Ráðið við þessu er að baða fiskinn upp úr formalíni. Áhugavert, já ég veit. Vonandi tekst samt að uppræta þennan fjára þannig að maður þurfi ekki að vera að velta sér upp úr Gyrodactylus í sumar, enda væri það frekar subbulegt.
Mér tókst að klippa eitt lag með Stórsveit Samma frá því á Hammond hátíðinni niður í tæpar tíu mínútur en inn í myndbandið vantar nokkur aukasóló, m.a. trommusóló, sem ég var búinn að setja inn, og svo Hammondsóló Svavars. Vonandi slepp ég við öll leiðindi vegna höfundarréttar en ég frétti af einum sem ætlaði að taka Bubba Morthens upp en var stoppaður af og gefinn fyrirlestur um höfundarrétt af kónginum. Ég held að Stórsveit Samma verði bara ánægð með, að efni frá þeim fái að hljóma á alheimsvefnum en reyndar kom það mér á óvart að hljómburður myndbandsins væri ekki verri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.5.2008 | 15:35
Lúðrasveitin
Ég tók mig til í gær og kíkti á tónleika á Hótel Framtíð. Það var alveg fínt, en Stórsveit Samúels J Samúelssonar tróð þar upp á Hammondhátíð sem nú stendur hér yfir. Þetta er nú ekki tónlist sem höfðar til mín en maður verður nú að láta sjá sig á allavega einum tónleikum þegar hátíð er í bæ, auk þess sem í þessari sveit er valinn maður í hverju rúmi en þeir eru ekki færri en 17. Annars er ég hundfúll yfir að hljómsveitin Dallas hafi ekki verið látin spila á hátíðinni auk þess sem mér fannst vanta meira rokk í þessa hátíð eða eitthvað fyrir yngri kynslóðina en svona er nú þetta, maður vill nú stundum hafa hlutina öðruvísi en þeir eru. Ég tók upp um klukkutíma af tónleikunum en þar sem ekkert lag er undir tíu mínútum kem ég þeim ekki inn á Youtube að svo stöddu en í staðinn klippti ég út trommusóló Helga Helgasonar sem er tvær mínútur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2008 | 08:08
Hvernig getur maður aukið líkurnar á að vinna í lottói
Ég hef verið að spá í hvort ég ætti ekki að gerast áskrifandi að lottói og nota tölur fæðingardaga barna minna sem eru einmitt fimm. Það eru samt frekar litlar líkur á að maður vinni með eina röð á viku þannig að maður þarf að finna upp aðferð sem svínvirkar til þess að vinna.
Ein aðferð sem gæti virkað gengur út á að maður spili reglulega í lottóinu. Ef maður spilar í hverri viku verða líkurnar á að vinna 1/650.000, þannig að ef ég myndi kaupa eina röð á viku myndi ég tapa hundraðkalli á viku á viku, eða svona yfirleitt, þar sem maður gæti nú stundum slysast til að vera með þrjár réttar. Ef ég hins vegar kaupi tíu raðir, ættu líkurnar að aukast og ef ég kaupi 650.000 raðir (og enga eins) þá vinn ég örugglega, en það myndi kosta mig 65.000.000. Ef ég myndi kaupa eina röð í hverri viku fram að áttræðu, þá eru það 2080 raðir og í staðinn fyrir að kaupa alltaf eina röð á viku, á myndi ég kaupa 2080 raðir, allar í einu. Þá eru líkurnar orðnar 1/312 en þetta myndi reyndar kosta mig 208.000. Þetta eru ekki alveg nógu háar líkur og maður myndi sennilega þrátt fyrir allt tapa vel á annaðhundraðþúsund ef vinningar fyrir þrjá rétta eru dregnir frá.
Ætli maður spili ekki bara með öðru hvoru, þegar maður man eftir og þegar hæsti vinningur er fjórfaldur, þá styrkir maður allvega gott málefni. Ekki nema maður detti niður á pottþétta aðferð.
![]() |
Fjölga kúlunum í lottóvélinni úr 38 í 40 í maí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2008 | 21:59
Ég er kominn heim
Ýmislegt hefur drifið á daga mína að undanförnu en vinnan hefur verið í aðalhlutverki. Við fengum 33.000 seiði á sunnudag en ég fór suður á fimmtudag til þess að passa upp á að allt færi vel fram og að vel færi um þau á ferðalagi frá Höfnum til Djúpavogs. Myndir af því þegar þau voru að leggja af stað og svo þegar þau voru komin heim eru hér til hliðar. Annars eru þetta léleg seiði að því leiti að þau eru illa stærðarflokkuð og því má reikna með miklum afföllum þar sem stóru fiskarnir éta litlu fiskana. það er ekki alltaf gott að vera lítill.
Vegna þessa ferðalags missti ég af Chelsea - Manchester United sem var á laugardaginn. Þetta var víst ágætis leikur en þó mátti búast við öðru þar sem þessi tvö lið hafa unnið 11 leiki hvort með markatölunni 1:0. Mínir menn náðu þó að vinna og það er gott og setur spennu í deildina en því miður held ég að þetta dugi ekki. Ég verð nú samt að segja að ég vil frekar að mitt lið vinni ensku deildina en Meistaradeildina ef ég þyrfti að gera upp á milli, enska deildin er mér meira virði. Hvort ætli Liverpool menn vilji frekar að Man Utd eða Chelsea vinni deildina? Þetta hlýtur að vera töluverð valkreppa fyrir þá þar sem þetta eru tvö mest hötuðustu liðin meðal aðdáenda Liverpool.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2008 | 18:53
Nokkrar leiðir til að minnka líkurnar á að vera drepinn af hákarli:

- Ekki synda eða kafa á stöðum sem hættulegir hákarlar halda sig. Svæði þar sem er mikið um seli og sæljón eru aðdráttarafl fyrir hákarla sem og blóð, þvag og ýmis konar úrgangur.
- Margar hákarlategundir eru mest á ferli á nóttinni, þannig að nætursund ber að forðast.
- Ekki skal ögra hákörlum á neinn hátt, jafnvel hættuminnstu hákarlar geta snúist til varnar og bitið.
- Ef þú sérð hákarl þegar verið er að synda eða kafa, drífðu þig þá upp úr.
Annars eru 80% allra hákarlategunda skaðlausar og árásir hákarla eru afar fátíðar. Það eru meiri líkur á að verða fyrir eldingu og deyja og deyja úr snákabiti en að enda í kjafti hákarls.
![]() |
Drepinn af hákarli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.4.2008 | 21:35
Fín úrslit
![]() |
Riise skoraði sjálfsmark og tryggði Chelsea jafntefli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.4.2008 | 21:39
Köfunarferð
Þá er helgin að verða liðin hjá og hún var nú bara alveg hin ágætasta, enda veðrið búið að leika við hvurn sinn fingur hjá okkur, sól og logn allt í kring og tækifærið notað og rykið dustað af útigrillinu. Hápunkturinn var nú sennilega í dag þegar ég, Billi, Þórir og Jón Ingvar fórum í köfunarleiðangur. Ekki var nú farið langt, aðeins út að Fálka-Jóns hólma sem er um einnar mínútu sigling á gúmmíbát frá höfninni. Sjávarhitinn var um 2°C og við vorum mest á 5 - 7 metra dýpi, enda er skyggnið þar einna best og staðurinn bauð upp á töluverða litadýrð. Botninn var að mestu leiti hvítur skeljasandur og einnig var þar skærgrænn þari, ígulker krossfiskar í ýmsum litum ýmsar skeljar, marhnútur, koli o.fl. Myndir úr ferðinni má sjá hér til hliðar og svo gerði ég smá tilraun með að taka upp neðansjávarmyndband. Nú er bara að tengja stereogræjurnar, blasta þeim í botn og kíkja á tveggja og hálfsmínútna myndband sem er hér fyrir neðan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.4.2008 | 09:33
74 sekúndur úr vinnunni
Ég greip með mér upptökuvélina í vinnuna í gær og ætlaði að búa til heljarinnar myndband en svo var tölvan með stæla þannig að myndbandið varð styttra en það átti að vera, sem er kannski bara betra af því að þá nennir fólk frekar að horfa. Það vantar inn í þetta ýmsar frásagnir, sögur og kveðskap sem er ekki prenthæfur (enda ætlaði ég aldrei að prenta hann) en í staðinn kemur rómantísk náttúrustemming. Annars er frábært að geta verið útivinnandi þegar veðrið er jafn gott og það var í gær og virðist ætla að verða í dag og svo er maður innivinnandi þegar er ófært út á sjó. Það er samt óvenju mikill snjór hér á þessum árstíma en vanalega ér gróður aðeins farinn að taka við sér um miðjan apríl. Allavega.... ef þú nennir að horfa á 74 sekúndna myndband... þá er það hér:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
S Kristján Ingimarsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar