Færsluflokkur: Bloggar

Lokum á svona fólk

Hvaða rök eru fyrir því að hleypa eftirlýstum glæpamönnum inn í landið?  Ég sé ekki nein í fljótu bragði, llavega vil ég ekki að þeim sé hleypt inn í landið.  Af hverju er ekki bara lok lok og læs á þá sem eru taldir vera morðingjar?
mbl.is Hefur ekki gefið sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég á Íslandsmeistara

Þá er dagur kominn að kveldi og við hæfi að rifja upp helgina.  Spilaði í jarðarför Trausta Finns í gær og svo var rólegheitadagur eftir það.  Fylgdist með Söngvakeppni framhaldsskólanna um kvöldið.  Mér hefur um langa hríð fundist þetta skemmtileg keppni en keppnin í gær var nú ekki sú besta fram að þessu.  Keppandinn sem vann í fyrra virðist ætla að meika það (sjá blogg hér fyrir neðan um Eyþór).  Í dag var brunað upp á Egilsstaði á smá fund og svo var legið í faðmi fjölskyldunnar eftir heimkomu.  Telma hringdi svo í mig í dag í sigurvímu en hún varð, ásamt liði sínu, Grindavík, íslandsmeistari í körfubolta 7. flokks stúlkna.  Set inn eina mynd af því hér til hliðar.  Annars er spennandi vika framundan með fullt af verkefnum.  ætli morgundagurinn fari ekki að mestu í að flytja eldiskvíar fram og til baka.

Ekki fleira í bili.


Berdreymi

Þann 8. apríl s.l. sagði ég í bloggi mínu að góðan mann hefði dreymt 20 hvíta sauði þann 25. mars og að hann hefði reiknað það út að þar eð væru 20 dagar eftir af vetrinum þannig að vorið kæmi 14. apríl.  Kannski er þetta bara tilviljun eða kannski hefur veðurstofan verið að skoða bloggið mitt.
mbl.is Vorið kemur á þriðjudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjólkurauglýsingar

Þær hafa vakið athygli mína auglýsingarnar um mjólkina þar sem fólk í ýmsu ástandi, s.s. tannlaust í baráttu við aukakíló o.fl.,  kemur og segist ekki drekka mjólk.  "Væri þetta öðruvísi ef ég drykki mjólk?  Ég veit ekki ég drekk ekki mjólk".  Kannski hafa þær haft einhver áhrif en þó man ég nú ekki hvort var byrjað að sýna þær á síðasta ári.  Myndi ég munda það ef ég drykki mjólk?  Ég veit ekki, ég drekk nú samt mjólk.
mbl.is Metframleiðsla á mjólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fíllinn Filippus

Halló.

Þá er vikan að líða undir lok.  Var að koma heim af slökkviliðsæfingu þar sem reykköfun var æfð og gekk hún bara vel.  Slökkviliðið hér á staðnum hefur verið í sókn undanfarið ár en deildin hér er hluti af Brunavörnum á Austurlandi og nú er verið að efla deildina með reglulegum æfingum, fundum og fleiru.  Auk þess er þetta ágætis félagsskapur og bara nokkuð skemmtilegt.  Vikan er búin að vera nokkuð hefðbundin sambland af fiskeldi, ferða og menningarmálum. 

Nú fer maður að hætta sem ferða og menningarmálafulltrúi Djúpavogs.  Eftir að meira varð að gera hjá mér í fiskeldinu kom það á daginn að hann (þ.e. dagurinn) er ekki nógu langur til þess að komast yfir bæði störfin með sæmd.  Starfið hefur þegar verið auglýst og ef þú hefur áhuga eða veist um einhvern sem vill verða ferða og menningarmálafulltrúi þá er best að snúa sér til skrifstofu Djúpavogshrepps.   Rétt er að taka fram að starfið getur verið mjög fjölbreytt og lifandi.

Nú er verið að fara að pína mig til að horfa á einhverja brúðkaupsmynd(geisp), ég veit ekki hvað býr þar að baki en ég sé eftir að hafa ekki nælt mér í safn mynda með Arnold Schwarzenegger, það hefði allavega verið meira spennandi að vera að fara að horfa á Terminator.  Ætli ég fari ekki bara að sofa.


Hæ, Ásgeir í Tölvulistanum hér

Það er nú búið að líða allt of langt frá síðasta bloggi og það stóð til að gera eitthvað svakalegt kvikmyndablogg í sárabætur en ætli maður endi ekki bara á ofur hefðbundnu bloggi þar sem atburðir síðustu daga verða raktir.  Síðasta fimmtudag fór ég í bæinn en tilefnið var skírn míns yngsta afkvæmis. 

Föstudagurinn fór í undirbúning að hluta og að hluta í vinnu en ég skrapp suður í Hafnir til þess að skoða þorskseiði sem væntanleg eru hingað austur á næstu dögum.  Það kom í ljós við þessa seiðaskoðun (eins og mig var reyndar búið að gruna) að þau er ekki alveg eins góð og við vildum hafa þau en stærðardreifingin er mikil (90% milli 60 og 150 gr) sem þýðir að margir af stóru fiskunum mun éta þá litlu, margir minni fiskarnir fá ekki aðgang að fóðri vegna frekju í þeim stærri og svo skapar þetta ákveðin vandamál við að velja fiskafóðurkögglastærð.  Við þessu eru þó ýmis ráð en maður þarf að finna bestu lausnina á þessu skemmtilega vandamáli.

Laugardagur = Skírn.  Athöfnin fór fram í Háteigskirkju í umsjá séra Tomma Sveins.  Fullt af fólki mætti og svo var spurt "Hvað á barnið að heita"? svarið var Brynja.  Svo var veisla á heimili sambýliskonu föður sambýliskonu minnar (skildi einhver þetta?)  En til að gera langa sögu stutta þá var þetta flottur dagur og aðalstjarna dagsins stóð sig eins og hetja.

Á sunnudag var svo brunað austur í góðu veðri og alltaf er nú gott að komast heim eftir ferðalög, eiginlega jafngott og að komast í burtu.  Hvað er annars málið með vorið? Hvar er það.  Ég heyrði reyndar af manni sem dreymdi 20 hvíta sauði þann 25. mars og hann túlkar drauminn þannig að þá hafi verið 20 dagar eftir af vetrinum og að vorið komi 14. apríl.  Vonandi rætist þetta bara.

Á mánudag var svo farið á Seyðisfjörð á aðalfund menningarráðs Austurlands en þar er maður víst í stjórn.  Þetta var rólegur fundur og vel var nú tekið á móti okkur.  Við vorum m.a. í menningarmiðstöðinni Skaftfelli en þar er að sumra sögn einn besti kokkur á Íslandi og veitingarnar voru jú mjög góðar.  Þar er líka afdrep fyrir listamenn til þess að vinna að listsköpun og einhverjir tveir voru þar að brasa eitthvað.

Í dag var það svo fiskeldið en við steyptum undirstöður fyrir bryggju inn við Glímeyri.  Eftir það var svo farið í ferðamálin en við vorum að brasa í gönguleiðakorti fyrir Djúpavogshrepp.  Þegar heim var komið var svo kíkt á síðasta hálftímann hjá Chelsea og Fenerbache og mínir menn stóðu sig í kvöld og komust áfram, 2-0 fyrir Chelsea.

Framundan eru svo spennandi vinnudagar og kannski nær maður að koma inn myndbandi hér, allavega var ég búinn að lofa sjálfum mér því fyrir löngu.


Að gera í buxurnar

Halló.

Nú hef ég ekki mikið til að blogga um en engu að síður kemur hér smá pistill, aðallega af því að ég hef ekki hugmynd um hvenær ég get bloggað aftur þar sem að á morgun verður stefnan tekin á Reykjavík og planið er að koma aftur austur á sunnudag.  Þá verður nú aldeilis skrifað hér inn á síðuna.  Vinnuvikan er búin að vera nokkuð hefðbundin en kvöldin hafa að mestu farið í tilgangslausa tímaeyðslu, nánar tiltekið fótboltagláp en ekki náðu mínir menn í Chelsea að landa sigri í þessari umferð.  Fyrst ég er farinn að minnast á boltann þá hélt ég að ekki væri hægt að skora sjálfsmark úr víti en allt er nú hægt samanber myndabandið hér fyrir neðan.  Þetta mætti nú kalla að gera í buxurnar.

 Bless


Brim

Þessi bloggfærsla er hvorki um útgerðarfélag né tískuverlsun eins og fyrirsögnin gæti gefið til kynna.  Þessi bloggfærsla er eiginlega um voðalega lítið.  Helgin var að mestu leyti afslöppunarhelgi.  Fór samt í smá göngutúr í gær og m.a. út í Hvaley.  Það er tilkomumikið að standa þarna og hlusta á brimgnýinn og finna jörðina nötra undir fótum sér vegna kraftsins í briminu.  Ef þú nennir að horfa á brim í eina mínútu er það hægt hér fyrir neðan.

 Nú er ég orðinn einn í kotinu þar sem mín elskulega sambýliskona fór til höfuðborgarinnar að undirbúa skírn sem verður um næstu helgi en þá verður dóttir okkar skírð við hátíðlega athöfn í Háteigskirkju og eflaust á nafnið eftir að koma mörgum á óvart.  Ég er allavega með heimilið útaf fyrir mig þangað til.


Eyþór Ingi

Á mínu heimili er föstudagskvöldin heilög (ég er strax kominn í mótsögn við sjálfan mig, hvað er ég þá að gera í tölvunni á föstudagskvöldi?).  Þá er bökuð flatbaka og oft er eitthvað gott afþreyingarefni í sjónvarpinu.   Við erum hrifin af svona hefðum og þetta er orðinn ómissandi ósnertanlegur þáttur tilverunnar.  Nú er það Bandið hans Bubba sem styttir okkur stundirnar á föstudagskvöldum.  Frá upphafi hefur aðeins einn keppandi komið til greina sem sigurvegari og hann heitir Eyþór Ingi.  Gríðarlega fjölhæfur og með ótrúlega þroskaða rödd miðað við að hann er aðeins átjan ára.  Mig minnir ég hafa séð hann í einhverri söngkeppni framhaldsskóla fyrir VMA held ég.  Alla vega finnst mér hægt að hætta þessari keppni strax og útnefna hann sem sigurvegara en þá reyndar myndi Stöð 2 missa slatta af auglýsingatekjum og ekki viljum við það nú.  Hvort sem hann kemur til með að vinna eða ekki er hér á ferðinni rísandi stjarna sem mun án efa láta kveða að sér þó síðar verði.

þetta er nú ljóta ruglið.

Ég hef afskaplega gaman af því að spila kvennalög þ.e.a.s. spila á gítar og syngja lög sem konur hafa gert vinsæl.  Hér fyrir neðan er eitt dæmi um slíkt en maður verður nú varla heimsfrægur á svona fíflaskap.

Hljómsveit mars mánaðar 2008 er hljómsveitin Raveonettes en hún sendi frá sér geisladiskinn Lust lust lust í febrúar s.l.  Þessi hljómsveit spilar þunglyndislegt gítarrokk í anda Jesus and Mary chain, lögin eru melódísk og mikið um gítarriff uppfyllingar.  Hér til vinstri undir myndunum getið hlustað á fyrsta lag plötunnar en það heitir Aly walk with me.  Nokkuð svalt að mínu mati.

Annars er vikan búin að vera nokkuð hefðbundin.  Venjulegir vinnudagar bæði á sjónum og skrifstofunni og svo eitthvað í ferðamálunum seinnipartinn eða á kvöldin.  Nú er verið að spá í að fara í Landmannalaugar um helgina en það verður ákveðið í fyrramálið, veðurspáin er nú ekkert spes.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

S Kristján Ingimarsson

Höfundur

S Kristján Ingimarsson
S Kristján Ingimarsson

 

Faðir, sambýlismaður, fiskeldisfræðingur, íþróttaáhugamaður, tónlistaráhugamaður, kafari, og með allt of mörg áhugamál.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Mynd_0402140
  • 20160922 120421 (Large)
  • gömul vél (Large)
  • DSC_0042 (Large)
  • DSC_0014 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband