Færsluflokkur: Bloggar

Odds(s)karð

Halló.

Þá eru krakkar farnir, þ.e. Telma, Ingimar og Andri eftir 11 daga dvöl hér fyrir austan.  Við skelltum okkur yfir Breiðdalsheiðina í gær þar sem Öxin er ófær.  Breiðdalsheiði er ögn styttri en Fjarðaleiðina og á tímum hækkandi bensínverðs telur hver kílómetri.   

Við erum búin að bralla margt á þessum stutta tíma og þau langaði að vera lengur en skólinn kallaði.  Við fórum á skíði í Oddskarð á mánudaginn.  Þetta var í fyrsta skipti sem þau sem þau prófa skíði en ég er með öllu meiri reynslu enda var ég að fara í þriðja skipti.  Þau stóðu sig vel eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan en ég hef verið duglegur við að nota þessa upptökuvél sem ég fékk í jólagjöf. 

Ég hef hugsað mér að vera duglegur að setja inn myndbönd hér á bloggið og kannski mun þetta líkjast meira vloggi en bloggi en allavega býður þetta upp á meiri fjölbreytni.  Nú er það hins vegar hvunndagurinn sem tekur við að loknu ágætis páskafríi.

Hvort er þetta Oddskarð eða Oddsskarð, þ.e. skarð með oddum eða skarðið hans Odds?


Jeppaferð

Á föstudaginn langa var farið í jeppaferð og var förinni heitið á Þrándarjökul sem er alla jafna hæfileg dagsferð frá Djúpavogi.  Farið var á fimm jeppum, ég var á bíl Slysavarnafélagsins síðan voru Billi, Ragnar Rafn, Gummi og Jökull á sínum bílum ásamt nokkrum farþegum.  Maggi Kristjáns var með mér auk strákanna minna, Ingimars og Andra Jóns.  Föstudagurinn langi varð full langur fyrir Andra en hann varð lasinn á leiðinni, fékk ælupest sem er frekar óhentugt í svona ferðum.  Skemmst er frá því að segja að færið var slæmt og við komumst ekki nema brot af leiðinni en ákveðið var að snúa við strax upp á svokölluðum Merkjahrygg.   

Á leiðinni til baka mættum við svo útlendingi á óbreyttum 4Runner sem var búinn að festa sig.  Manngreyið var í sjokki enda var snarbrött hlíðin, um 200 metrar, fyrir neðan hann.  Einn af okkar faregum varð að keyra bílinn hans til baka en hann treysti sér ekki til þess vegna sjokksins.  Þegar við vorum komnir niður alar brekkur mættum við svo hjónum á fólksbíl sem ætluðu líka yfir en við ráðlögðum þeim hið snarasta frá því.  Þegar Öxi er ófær þyrfti að setja upp skilti til merkis um það þannig að fólk sé ekki að ana út í ógöngur þó að þetta sé að allra mati stysta, fallegasta og besta leiðin þegar hún er fær.  

Fátt er meiri sannleikur er snjórinn, hann er kaldur, hreinn og áþreifanlegur.  Myndband af leiðangrinum má finna hér fyrir neðan.


Sól og snjór

Halló.

Ég lofa því hér með að reglulega verða sett inn myndbönd af því sem ég er að fást við hverju sinni.  Nú eru öll börnin mín hjá mér og síðasta sunnudag fór ég með Telmu, Ingimar og Andra að leika upp á Öxi.  Afraksturinn af því má sjá hér og hér.

.

 

 

 

Bless.


Tonlistarverðlaun fyrir árið 2007

Halló.

Ég var afskaplega sáttur með flest öll völ kvöldsins.  Það sem ég hugsaði mest um eftir þetta var samt Rúnar Júllll.  Búinn að eiga frábæran og einstæðan feril og er afskaplega vel að heiðursverðlaununum kominn.  Svo tók hann við þeim að rokkara sið, vel kenndur. 

 Bless.


mbl.is Páll Óskar og Björk söngvarar ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dylan - Clapton - Fogerty

Þrír aldnir meistarar að koma á klakann á árinu.  Get ekki sagt að ég sé gríðarlega spenntur fyrir neinum þeirra.  Dylan frábær textasmiður, Clapton frábær gítarleikari og Fogerty hress lagasmiður.  Ætli maður verði ekki bara að fara á alla þessa tónleika til þess að geta gert upp á milli þeirra. 
mbl.is Bob Dylan heldur tónleika á Íslandi í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir vegir ekki færir

Halló.

í norðanrokinu í dag skrapp ég á Egilsstaði.   Til stóð að ég myndi halda fyrirlestur um fuglaskoðun á leiðsögumannanámskeiði en námskeiðinu var frestað fram í apríl þannig að það bíður betri tíma.  Aðalerindið var samt að sækja krakkana mína en þau verða hjá mér um páskana.  Því miður var ekki hægt að fara stystu leið af því að Öxi var lokuð og er búin að vera það um nokkurra vikna skeið.  Vonandi kemur sá dagur fyrr en síðar að maður geti keyrt þarna um allan ársins hring þó að maður eigi kannski bara að gleðjast yfir þeim 11 mánuðum sem það er hægt eins og staðan er núna.  Ekki var heldur fært næst stystu leiðina, um Breiðdalsheiði vegna hálku og skafrennings þannig að lengsta leiðin varð fyrir valinu í þetta skiptið og Austfirðirnir voru þræddir í enn eitt skiptið.  Það er frekar fúlt að þurfa að keyra 150 kílómetrum lengra en þörf væri á.  Ég held að vegakerfið okkar sé eitt að versta í Evrópu en best að fara ekki nánar út í það, engin ástæða til þess að pirra sig á svona smámálum.

Bless


Hneyksli

Ég get tekið undir að þessi dómur er hneyksli.  Það er háalvarlegt mál ef ráðist er á lögregluþjón sem hefur það jú að starfi að halda uppi lögum og reglu.  Erlendis er þetta litið mun alvarlegri augum og harðari dómar fyrir svona munu án efa auka öryggi lögreglumanna
mbl.is Kurr í lögreglumönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorskeldið

Halló.

Það hefur verið nóg að gera í vinnunum upp á síðkastið, eiginlega of mikið, það mikið að ég kemst ekki yfir þetta allt og hef ákveðið að hætta sem ferða og menningarmálafulltrúi og einbeita mér eingöngu að fiskeldinu.  Báðar vinnurnar eru afskaplega skemmtilegar en fiskeldið er það sem ég hef verið að stefna að og ætla mér að vinna við í framtíðinni.  Ég bendi fólki á að lesa ágætar greinar um þorskeldi eftir Svavar Hávarðsson, Stöðfirðing, sem hafa birst í Fréttablaðinu undanfarna daga en þær gefa ágætt yfirlit yfir stöðu þorskeldis í heiminum í dag.   Í dag köfuðum við Billi í eina kví og framundan eru köfunardagar hjá okkur.  Það er alltaf hressandi að skella sér í kaf en áður en maður hoppar í 1°C heitan sjó þegar frostið bítur kinn spyr maður nú sjálfan sig alltaf af hverju í ósköpunum fór maður nú að taka upp á þessu?  En... þetta er gefandi og gaman þegar maður er kominn útí. hér eru myndir af okkur Billa sem við tókum í kafi í dag.

Bless

P3110263

Billi


Villibráð

Villibráðarveisla og útivera, það er það sem stendur upp úr eftir helgina.  Í gærkveldi kom skemmtilegt fólk í heimsókn og við Óðinn göldruðum fram villibráðarveislu sem samanstóð af gæs, svartfugli og skarfi.  Nú er svartfuglinn búinn og ekki hefur sést neitt af honum í Berufirði síðustu vikurnar.  Eitthvað er eftir af gæs í frystinum en skarfurinn er ennþá í firðinum þannig að það er ennþá hægt að ná sér í kjöt þar.  Það sem kannski vantaði frá síðustu villibráðarveislu er selurinn sem sló í gegn síðast.  Verkefni næstu veiðiferða verður því að ná í skarf og sel.  Ég sótti um að fá að veiða hreindýr hér í nágrenninu á næsta veiðitímabili.  70 tarfar voru í boði og ég var dreginn út númer 71 þannig að ég fékk ekki dýr en er næstur í röðinni ef einhver hættir við.  Þetta er í fjórða skipti sem ég sæki um hreindýr og aldrei hef ég komist svona nálægt því að vera dreginn út.

Dagurinn í dag fór svo einna helst í að vera úti, skokk, snjómokstur og gönguskíðatúr var það sem stóð upp úr og maður mætir endurnærður til vinnu í fyrramálið.

 


Hvað með Drambui?

Einhvern tímann var nú vinsælt að kveikja í Drambui og taka það í nefið þannig að þetta er nú örugglega ekki það versta sem þessi frábæra söngkona hefur innbyrt.  Vonandi endar hún bara ekki ævi sína eins og Janis Joplin.


mbl.is Winehouse tekur vodka í nefið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

S Kristján Ingimarsson

Höfundur

S Kristján Ingimarsson
S Kristján Ingimarsson

 

Faðir, sambýlismaður, fiskeldisfræðingur, íþróttaáhugamaður, tónlistaráhugamaður, kafari, og með allt of mörg áhugamál.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Mynd_0402140
  • 20160922 120421 (Large)
  • gömul vél (Large)
  • DSC_0042 (Large)
  • DSC_0014 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband