Færsluflokkur: Bloggar
30.10.2009 | 23:31
Jákvæðar fréttir.
Frétt vikunnar var náttúrulega fréttin af fiskmarkaðnum héðan frá Djúpavogi þar sem fjallað var um miklar annir við höfnina hér og rætt við hinn reffilega framkvæmdastjóra. Fréttirnar af því að MacDonalds væri að hætta og rollunum fyrir vestan koma ekki til greina, burt með McDonalds og rollurnar, kannski kæmu þær til greina sem ekkifrétt vikunnar. Annars koma fréttapistlarnir sem Kristján Már Unnarsson á Stöð 2 flytur af landsbyggðinni líka til greina sem fréttir vikunnar. Fréttamaðurinn hefur undanfarnar vikur farið vítt og breitt um landið og flutt afskaplega jákvæðar fréttir af atvinnu og daglegu lífi fólks á landsbyggðinni, m.a. fiskeldi, landbúnaði, olíuleit, vegauppbyggingu o.fl. Ekki veitir af jákvæðni inn í samfélagið núna og ætli Kristján Már eigi ekki bara skilið að fá hrós vikunnar fyrir þennan fréttaflutning. Mark vikunnar var ekki skorað af knattspyrnumanni, heldur af knattspyrnuþjálfara í Japönsku deildinni af öllum deildum. Hann þrumar boltanum viðstöðulaust af um 50 metra færi og kemur öllum á óvart. Eigum við ekki að kíkja á það, sjón er sögu ríkari.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2009 | 22:52
Háhyrningar
Um háhyrninga:
- Heitir á ensku "Killer whale"
- Tannhvalur með 56 stk 12,5cm langar tennur.
- Eru í raun höfrungategund.
- Keiko var háhyrningur
- Geta náð allt að 11 tonna að þyngd.
- Geta orðið allt að 10 m langir
- Eru með 10 cm fitulag (ég hef nú reyndar séð fólk með svoleiðis).
- Borða 250 kg á dag.
- Geta gleypt seli í heilu lagi en kjósa frekar að búta bráðina niður.
- Geta náð 34 mílna hraða ( u.þ.b. 60 km/klst, maður þarf að synda helvíti hratt ef maður er að kafa í grennd við þá).
- Bakugginn getur orðið 1,8 m langur
- Gera gjarnan árás margir saman og þá jafnvel á mun stærri skepnur eins og steypireyði.
- Nota hljóðbylgjur til að meta fjarlægðir og staðsetja bráð.
Já fjörðurinn var bara nokkuð líflegur þó að svartfuglinn sé ekki farinn að láta sjá sig.
Annars setti ég af mér selveiði í dag. Ég fékk símtal í gær þar sem verið var að leita eftir manni og slöngubát. Slöngubátinn gat ég lagt til en því miður komst ég ekki í veiðina sjálfur. Vonandi gefst annað tækifæri á því síðar en ég frétti að um 25 útselir hefðu verið veiddir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2009 | 12:21
Brain worms
Fimmtudagur var svo heimsóknadagur en þá komu í heimsókn fisksjúkdómafræðingar, annar frá Keldum og hinn frá Kanada, en þeir eru að vinna við að rannsaka sníkjudýr í þorski og eru þeir búnir að far vestur á firði og víðar til þess að leita að sníkjudýrum. Þeir voru aðallega að leita að Gyrodactylus og Loma en það eru þær tegundir sem eru algengastar í eldisþorski. Gyrodactylus hefur einu sinni komið upp hjá okkur og valdið smávægilegum vandræðum, en tiltölulega auðvelt er að losna við þessi sníkjudýr, geri þau vart við sig í eldinu. Annar sníkjudýrafræðingurinn sagði okkur frá áhugaverðu sníkjudýri sem leggst á hirti, elgi og önnur klaufdýr í Kanada. Þetta er heilaormur sem er u.þ.b. 5 cm langur og álíka sver og mannshár. Hann lifir sem sagt á heila þessara dýra og losar svo egg, sem ganga niður í lungu og meltingarveg, þaðan berast eggin út í náttúruna þar sem sniglar innbyrða þau og þar þroskast þau, frá sniglunum berast svo lirfur út á laufblöð og gróður sem hirtirnir éta og þá hefst hringrásin aftur. Þegar sníkjudýrafræðingarnir höfðu kvatt, mættu svo menn frá Umhverfisstofnun en þeir voru í sinni árlegu eftirlitsferð.
Þessar heimsóknir á fimmtudag urðu til þess að ég missti af svínaflensu bólusetningu en ég átti að mæta í hana um miðjan dag. Nú er bara að krossleggja fingur og vona að maður veikist ekki.
Föstudagurinn var svo tiltölulega rólegur enda veðrið ekki upp á sitt besta, þó náðist að fóðra fiskinn í kvíunum.
Mark vikunnar: Sundblöðrumarkið sem Liverpool fékk á sig. Menn eiga eftir að muna eftir þessu marki lengi.
Leikmaður vikunnar: Joe Cole, sýndi snilldartakta á móti Blackburn eftir 10 mánaða fjarveru vegna meiðsla.
Frétt vikunnar: Það er náttúrulega ránið á steinasafninu á Teigarhorni. Vonandi tekst að finna það enda mikið af verðmætum steinum þar, bæði úr einkaeigu og frá Náttúrugripasafni Íslands. Það var líka Skemmtun vikunnar að sjá þetta tekið fyrir í Spaugstofunni, hvern skyldi Örn Árna samt hafa verið að leika? Björn Hafþór?
Lag vikunnar: About you með The Pastels/Tenniscoats. Þetta er gamalt Jesus and Mary chain lag en þessi hljómsveit var að senda frá sér afbragðsgóðan disk sem heitir Two sunsets. The pastels/ tenniscoats er í raun tvær hljómsveitir sameinaðar í eina og skarta m.a. Gerard Love úr Teenage fanclub.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2009 | 22:16
Hey! settu niður kartöflur.
- Kartöflur eru ein af fjórum mikilvægustu jurtum sem ræktaðar eru ásamt hrísgrjónum, hveiti og maís.
- Meðalkartöfluneysla er 30 kg á hvern einasta jarðarbúa á ári.
- Kartöflur eiga uppruna sinn í Andesfjöllunum í S - Ameríku.
- Árið 2008 var ár kartöflunnar hjá Sameinuðu þjóðunum.
Eftir kartöfluupptöku fór ég svo í smá sunnudagsgöngutúr og gekk inn Krossdal yfir Fagradalsskarð og yfir í Fagradal. Hugur minn er búinn að standa lengi til þess að fara þessa leið og loksins lét ég verða af því í blíðunni í gær. Gangan er tiltölulega auðveld en það tekur u.þ.b. þrjá tíma að ganga frá Fossgerði yfir í Fagradal. Margir fallegir fossar eru í Krossdal og Fagradal, sem er kjarri og lyngi vaxinn. Móttökurnar hjá Stefáni frænda mínum í Fagradal voru ekki af lakari taginu. Hann er mikill grúskari og áhugamaður um jarðfræði og steinasafnið hans er einstakt, en hann á sýnishorn af mörgum steintegundum, íslenskum og erlendum.
Hinn svokallaði samtarfsflokkur Samfylkingarinnar gafst upp í Icesave málinu og gerðu þveröfugt við það sem þeir töluðu um að gera fyrir kosningar. Þá var aðalmálið að koma í veg fyrir Icesave. Þá var líka aðalmálið að losna við AGS. Þá var líka málið að vera utan Evrópusambandsins. Síðan flokkurinn komst í ríkisstjórn þá var það nauðsynlegt að samþykkja Icesave, þá varð það nauðsynlegt að viðhalda samstarfi við AGS og þá varð það nauðsynlegt að sækja um inngöngu í Evrópusambandið. Hvað veldur þessum viðsnúningi? Valdagræðgi? Uppgjöf? Af hverju ekki bara að standa við loforðin? Spyr sá sem ekki veit.
Hér eru svo nokkrir fossar í Krossdal.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2009 | 09:49
Fundur og ís
Það sem lögð verður áhersla á í þorskeldinu næstu árin er fyrst og fremst þrennt, að auka hrognagæði til þess að gera klakið skilvirkara, halda kynbótum áfram til að auka vöxt og að finna leiðir til að draga úr afföllum á seiðum. Síðan eru atriði eins og að finna leiðir til að draga úr fóðurkostnaði og efla sjúkdómavarnir og sjúkdómarannsóknir sem eiga við allar eldisgreinarnar.
Á leiðinni austur stoppuðum við á Brunnhól á Mýrum en þar er hægt að fá heimalagaðan ís, bæði í brauðformi og í pökkum. Ég hafði aldrei stoppað þarna áður en eftir þetta stopp hvet ég alla sem eiga leið þarna um að gefa sér tíma til að stoppa og gæða sér á ljúffengum ís beint frá býli, það verður enginn svikinn af því. Ég fékk mér einn í brauðformi og svo tvo hálfs líters pakka til að taka með heim. Þau hafa verið að prófa sig áfram með ýmis bragðefni, t.d. var prófað að búa til ís með humarbragði fyrir humarhátíðina en það reyndar hefur ekki náðst að þróa það en brögðin sem ég hef smakkað eru góð. Ég hef verið og er svolítið skeptískur á þetta "Beint frá býli" og að það þurfi að setja mjög strangar reglur í kring um það, kannski eru þær samt í sumum tilfellum of strangar, samanber dæmið þegar reynt var að setja upp Beint frá býli framleiðslu á Karlsstöðum fyrr á árinu. Allavega stendur Jöklaísinn á Brunnhól fyrir sínu. Annars eiga Hornfirðingar hrós skilið fyrir að auka matarmenningu og fjölbreytni í framboði af heimaunnum mat, fyrst ber þar að nefna ísinn góða en einnig má nefna makríl auk ýmiskonar grænmetis, kjöts og fiskafurða. Að mínu mati mættu mörg sveitarfélög taka Hornfirðina sér til fyrir myndar í atvinnusköpun bæði hvað varðar nýsköpun í matvælavinnslu og svo í öðru sem þeir eru að vinna í.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2009 | 22:51
Ska
Ég hef verið að hlusta svolítið á Ska tónlist að undanförnu en mér hefur alltaf fundist þessi tegund tónlistar afskaplega skemmtileg en ég man ekki í svipinn eftir annarri tónlistarstefnu sem er jafn full af gleði eins og Ska tónlistin. Ef ég væri að stofna hljómsveit í dag yrði það án efa Skaband. Ska á rætur sínar að rekja til Jamaica og er undanfari Reggae tónlistarinnar en munurinn á Ska og Reggae er, að Ska er eins og hratt Raggae. Það væri hægt að skrifa svo margt og mikið um þessa tónlist en þeir eru ófáir tónlistarmennirnir sem hafa spreytt sig á skainu og upp á síðkastið hefur t.d. Amy litla Winehouse haldið merkjum ska á lofti. Hér eru tvö sýnishorn, annarsvegar Breska hljómsveitin Specials með lag frá 1979 og hins vegar Reel big fish með gamalt Ska lag sem margir hafa spreytt sig á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2009 | 23:18
Tungan
Mánudagur, þriðjudagur og fimmtudagur voru allir tiltölulega hefðbundnir í vinnunni, fiskar fóðraðir og unnið á skrifstofunni. Miðvikudagur var hins vegar smölunardagur en þá var Flugustaðadalur (Syðri Tungan) smöluð. Þetta var nokkuð löng smölun. Lagt var af stað frá Djúpavogi rétt fyrir sjö, síðan tók við ellefu tíma streð í snjó, sums staðar lærisdjúpum, upp og niður hlíðar, í gegnum kjarr og skóg. Flugustaðadalurinn er fallegur, hvort sem er vetur eða sumar. Athyglisvert var hvað var mikið af fugli í dalnum, ég hef aldrei séð eins mikið magn af músarrindlum og einnig var mikið af rjúpu, og þröstum en einnig sást hrossagaukur og nokkrar toppendur. Smölunin gekk annars nokkuð vel miðað við aðstæður og dagurinn var ánægjulegur. Nú er ekki útlit fyrir fleiri smalanir þetta haustið (eða á maður að segja þennan veturinn?), þannig að maður verður sennilega að finna sér annað tómstundagaman.
Smalað í snjó innan við Höfða í Flugustaðadal:
Kvíslar Suðurár sem rennur í Hofsá:
Markúsarsel og fjallið Stakkur í baksýn:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2009 | 20:32
Geðveiki
Ein sú hljómsveit sem ég hélt hvað mest upp á á unglingsárunum var hljómsveitin Madness og þrátt fyrir að árin líði, þá hef ég alltaf gaman af að hlusta á þá og mér finnst tónlistin þeirra eldast ágætlega, jafnvel betur en hjá mörgum öðrum hljómsveitum sem voru vinsælar á hinu marg umtalaða "eighties" tímabili. Nú hefur hljómsveitin sent frá sér nýja plötu sem ber nafnið The Liberty of Norton Folgate. Þetta er fyrsta plata sveitarinnar með frumsömdu efni í tíu ár. Hjómsveitin hefur aldrei hætt formlega, heldur hefur hún komið fram öðru hvoru á hinum ýmsu hátíðum en samt sem áður vakti þessi plata nokkra undrun. Undrunin er ekki tilkomin vegna tónlistarinnar á plötunni, sem er í stíl við það sem þeir voru að gera hér áður fyrr, heldur frekar vegna þess að hinn ærslafulli hljómur sem áður einkenndi þá hefur dýpkað enda eru þeir orðnir miðaldra men og hafa þroskast frá því í dennn. Eins og áður er umfjöllunarefnið London, fólkið þar og staðirnir og það sem ég hef heyrt af þessari nýju plötu fellur mér vel í geð og vonandi fleirum líka. Hér eru svo tvö tóndæmi, eitt ærslalag frá áttatíu og eitthvað og annað nýtt öllu alvarlegra þar sem kókaín neysla kemur við sögu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2009 | 20:12
Góður dagur
![]() |
Chelsea efst eftir sigur á Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2009 | 11:32
Gengið um jarðarberjaakra
Í dag er svo hvíldardagur, væntanlega mest innandyra, enda kuldalegt um að litast úti. Ég læt nú veðrið ekki fara í taugarnar á mér en fer þessi vetur samt ekki að verða búinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
S Kristján Ingimarsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar