Færsluflokkur: Bloggar
7.10.2008 | 12:44
Erfið helgi
Sjitturinn titturinn þetta var erfið helgi. Þegar maður er að skríða saman á þriðjudegi þarf maður að fara að athuga sinn gang en maður þarf sennilega bara að gera meira af þessu og koma sér í betra form. Það tekur allavega á að fara í smalamennsku um Búlandsdal, Hálsa og Hálsströnd á sama deginum hlaupa upp og niður brekkur, yfir mosaþembur og skriður. 10 tíma læti án teljandi hvíldar með tilheyrandi harðsperrum á mánudegi.
Ég ætla ekki að blogga um kreppuna, þið getið lesið svoleiðis blogg á næstum öllum öðrum íslenskum bloggum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2008 | 10:49
Emilíana
Ég er nýbúinn að fjárfesta í þessum diski, Me and Armini með Emiliönu Torrini og eftir að hafa hlustað einu sinni á diskinn hljómar þetta býsna vel og á eflaust eftir að gera það betur eftir því sem lögin venjast. Emiliana er sú íslenska söngkona sem ég held mest upp á, því miður á ég eftir að sjá hana á tónleikum en vonandi fæst úr því bætt fyrr en síðar og þá frekar hér á Íslandi, þar sem það er óhagstætt að fara út fyrir landsteinana eins og ástandið er. Við hlustun á disknum finnst mér einmitt eins og að hann muni koma vel út á tónleikum.
Ég leitaði að myndbandi við eitthvað af lögunum á jútjúb en fann ekkert nógu gott þannig að í staðinn fyrir að setja myndband með henni hérna inn, setti ég lög inn í tónlistarspilarann hér til hliðar.
Í staðinn fyrir myndband með Emilíönu fáið þið myndband með Noah and the Whale en ég virðist stundum vera aðeins á eftir þar sem ég er bara nýbúinn að uppgötva þessa hljómsveit, sem minnir mig í fyrstu á Belle and Sebastian og Dexys midnight runners, allavega, dæmi hver fyrir sig, þetta er bara nokkuð hressandi.
![]() |
Ekkert virðist geta stoppað Emilíönu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2008 | 23:22
Skýrsla dagsins
Við Karen fórum svo út að borða í kvöld á Ítalíu, það klikkar nú aldrei.
Í gærkveldi sá ég myndina Burn after reading sem þeir Cohen bræður leikstýra, og mér líkaði hún vel. Hún ætti að höfða bæði til karla og kvenna en aðallega kannski til kvenna vegna þess að aðalleikararnir eru Brad Pitt og George Clooney. Ég uppgötvaði það að ef yrði búin til kvikmynd um mig þá myndi Brad Pitt henta best í að leika mig vegna þess að hann þykir víst mjög kynþokkafullur og ég er nokkuð viss um að við erum mjög líkir.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2008 | 22:26
Það er engin framtíð í tímaflakki
Í lok helgarinnar er rétt að fara yfir atburði síðustu daga.
Í vinnunni hefur allt verið með nokkuð hefðbundnu sniði, fiskurinn étur vel og stækkar sem því nemur, eða nokkurnveginn, þ.e. fyrir hvert 1,15 kg af fóðri sem stærri fiskurinn fær þyngist hann um 1,00 kg en eitthvað er þetta hlutfall nú hærra hjá litla fiskinum ennþá, sennilega nær 1,50 á móti 1,00. Ég er nú feginn að þetta er ekki svona hjá mér, en ef fóðurstuðullinn hjá mér væri 1,15 þá myndi það þýða að ég myndi þyngjast um svona 3 - 400 kg á ári. Maður þyrfti allavega að vera duglegur við að fara út að hlaupa. Ætli maður þyngist við að hlaupa aftur á bak?
Föstudag og laugardag var ég á aðalfundi Sambands sveitarstjórna á Austurlandi en ég fékk það hlutverk að vera fundarstjóri. Það er nokkuð áhugavert að fylgjast með því sem mest brennur á sveitarstjórnum á Austurlandi en eins og svo oft áður eru það Samgöngumálin sem menn hafa hvað flestar og mismunandi skoðanir á. Vegna þess kerfis sem við búum við lenda menn alltaf í því að togast á um hvað á að gera fyrst og hvað síðar, af því að menn eru hræddir um að missa af eða lenda í margra ára bið eftir þeim samgöngubótum sem henta best fyrir viðkomandi sveitarfélag. Annars gekk þetta allt saman ágætlega.
Fimleikafélag Hafnarfjarðar orðið Íslandsmeistari í fótbolta og það verður bara að viðurkennast að þeir voru með besta liðið. Ég sé eftir Skaganum niður í fyrstu deild og vona að þeir verði fljótir að vina sig upp en þeir áttu svo sem ekkert betra skilið. Fram kom verulega á óvart með góðu gengi og ég reiknaði með Valsmönnum sterkari en þeir misstu nú lykilmenn í atvinnumennsku auk þess sem þeir voru í meiðslavandræðum.
Mínir menn í Chelsea á toppnum í ensku eftir örfáa leiki og það er óhemju ánægjulegt. Það skemmdi ekki fyrir að sjá liðið frá hafnarborginni Hull, sem margir íslenskir sjómenn þekkja, vinna Arsenal, en Hull hefur komið verulega á óvart það sem af er hausti. Svo skemmir ekki fyrir að Tottenham er á botninum þó að þeir eigi nú eflaust eftir að rífa sig þaðan fyrr en síðar.
Framundan er fundavika en áætlað er að vera á þorskeldisráðstefnu frá þriðjudegi til fimmtudags.
Annars rakst ég á ágæta tónlistarsíðu, þar sem DJ sér um að spila þá tónlist sem þig langar að hlusta á. Slóðin er www.musicovery.com.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2008 | 13:37
Dagur í lífi Brynju
Ég vakna oft eldhress um sjöleytið en þá eru aðrir fjölskyldumeðlimir sofandi þannig að það er ekki um annað að ræða en að reyna að koma þeim á lappir. Ég byrja á að klappa þeim og tala við þau segi t.d. dabúbú en ef það gengur ekki verður maður náttúrulega bara að hossa sér ofan á þeim. Það dugir alltaf og á virkum dögum fer pabbi með mig fram, hendir í mig Cheeriosi, lætur mig fá nýja bleyju og leikur smá við mig. Þegar klukkan er orðin átta þarf pabbi að fara í vinnuna, mér finnst það frekar fúlt, en eins og hann hefur oft sagt mér, þá þarf nú að vinna fyrir heimlinu svo að við höfum í okkur og á.
Þegar pabbi er farinn er næsta verkefni mitt að ná mömmu fram úr. Það gengur nú yfirleitt vel og hún gefur mér eitthvað almennilegt að éta, banana, jógúrt eða eitthvað. Það er samt svolítið skrýtið að þegar maður er búinn að hafa fyrir því að ná pabba og mömmu á lappir er maður sjálfur orðinn svo þreyttur að maður vildi helst leggja sig sjálfur. Ég harka samt af mér og fer að leika mér en ég er nokkuð góð í að leika mér sjálf. Mér finnst skemmtilegast að leika með fjarstýringar og blöð, einu sinni voru rafmagnssnúrur uppáhaldsdótið en það var þegar ég var lítil en nú er ég orðin það stór að ég er búinn að fá mikinn áhuga á bókum, sérstaklega orðabókum eða bókum á ensku, mér finnst þær skemmtilegastar, svo er fínt að naga skó. Svo þegar komið er fram undir hádegi fæ ég að drekka og borða og svo er ég alltaf sett í einhvern vagn, hann er bara svo þægilegur að maður sofnar eiginlega um leið og maður er kominn í hann.
Þegar ég vakna er ég nú hress skal ég segja ykkur. Fæ að drekka, leik mér við mömmu og svo kemur pabbi heim stuttu síðar, þá skríð ég eins hratt og ég get á fjórum fótum og læt hann halda á mér í smástund og leik ég aðeins við hann. Svo förum við stundum eitthvað út, annað hvort að labba eða í bíltúr og eiginlega á hverjum degi út í búð. Konurnar í búðinni eru alltaf ánægðar að sjá mig. Eftir kvöldmat er svo ágætt að taka því rólega, jafnvel kveikja á kertum og fara í bað með ilmolíum og síðan að sofa milli átta og níu. Ég nota snuð þegar ég sef en ef ég missi það þarf ég stundum að kalla á einhvern til þess að stinga því upp í mig, maður þarf nú að fá einhverja þjónustu þó að það sé nótt.
Dabúbú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2008 | 07:54
N á Akureyri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2008 | 07:53
Gazza
Við fæðumst nakin, blaut og svöng. Eftir það versna svo hlutirnir smátt og smátt. Allavega í tilfelli Gascoigne, sem á tímabili hafði allt í höndum sér en sorglegt er að sjá hvernig hann hefur spilað úr hæfileikum sínum.
![]() |
Vandræðagemsinn Gascoigne |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2008 | 07:51
Hreindýraveiði
Ég fékk í fyrsta sinn hreindýraveiðileyfi í vor en ég hef sótt um fjórum sinnum áður og ekki haft heppnina með mér fyrr en núna. Einhverra hluta vegna vorum við leiðsögumaðurinn frekar rólegir yfir þessu í allt sumar og allt í einu er tímabilið að verða búið og veðrið ekki hagstætt. Á sunnudag var þó haldið til veiða og var ekið inn i Hofsdal, eins langt og hægt var að komast, en þar hafði hópur haldið sig. Þegar inneftir var komið var lélegt skyggni, þungbúið og rigning. Við héldum þó inn dalinn en veðrið og skyggnið versnaði frekar en að batna og engin dýr sáust þannig að ákveðið var að snúa við og halda heim. Vissulega læddist að manni sú tilfinning að maður myndi brenna inni með leyfið eftir að hafa greitt tugi þúsunda fyrir það enda aðeins einn dagur eftir af tímabilinu. Það væri nú ljóti klaufaskapurinn að láta það gerast, sérstaklega þar sem svo stutt er á hreindýraslóð héðan frá Djúpavogi.
Í gærmorgun kl 7 var svo haldið af stað aftur en u.þ.b. 40 dýr voru í töluverðri hæð upp af bænum Stórhól. Við fórum þar upp og skriðum svo að þeim, nokkur hundruð metra. Þegar við vorum komnir í færi og vorum að fara að hleypa af, varð hjörðin vör við okkur og fór lengst upp á efstu brúnir, þangað sem ómögulegt var að komast til að ná þeim. Katastroffa, sjitt, fokk. Þau voru þung sporin niður af fjallinu, miklu þyngri en þegar við vorum að paufast upp brattar hlíðarnar. Tilfinningin sú sama og þegar maður hefur tapað fótboltaleik enda var lítið talað á leiðinni niður í bíl og alltaf var það að koma upp í kollinn á manni að aðeins örfáir klukkutímar væru eftir af veiðitímabilinu og þeim færi fækkandi, þetta vara að verða meira kapp við klukkuna en að ná dýri.
Eftir þetta var haldið suður í Hvaldal, engin dýr sáust þar, klukkan tifaði. Svo var farið upp efstu brún á Lónsheiði, engin dýr og klukkan tifar. Farið var upp á Hvaldalsbrúnir og horft niður yfir Hvaldalinn frá Lónsheiðinni, þrátt fyrir að við værum búnir að skoða Hvaldalinn stuttu áður. Og viti menn, 15 - 20 dýr voru í Hvaldalnum í botni sem ekki hafði sést þaðan sem við vorum fyrr um daginn. Nú lyftist brúnin heldur og ekið var aftur suður í Hvaldal og þegar þangað var komið voru um 6 klukkutímar þangið til færi að skyggja. Haldið var inn dalinn og upp hlíðarnar í átt að dýrunum, síðasta spölinn þurftum við að skríða á maganum til þess að sjást ekki. Ekki var hægt að komast nær þeim en 200 metra þannig ekki var um annað að ræða en að láta vaða af því færi og það var blanda af létti og sigurtilfinningu sem hríslaðist um mann við að sjá dýrið riða til falls. Ekki var tarfurinn nú mjög stór sem dreginn var niður mosaþemburnar en hann náðist og það er fyrir öllu.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.9.2008 | 09:08
Síðust skuggabrúðurnar
Sú hljómsveit sem er í hvað mestu uppáhaldi hjá mér þessa dagana er breska hljómsveitin The last shadow puppets. Ég held að platan þeirra The age of the understatement verði mjög ofarlega á listanum hjá mér yfir bestu plötur ársins 2008.
The last shadow puppets varð til þegar forsprakkar tveggja hljómsveita, þeir Alex Turner úr The Arctic Monkeys, sem hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér, og Miles Kane úr Rascals og svo The little flames, sem ég hef aldrei hlustað á, hittust á tónleikaferð og byrjuðu að semja saman lög. Hljómsveitin hefur að mér finnst einhvern gamaldags hljóm sem minnir á Gerry and the pacemakers (sem sungu Ferry cross the Mersey og You'll never wak alone) en þetta er á sama tíma ferskur hljómur í þeirri tónlistarsúpu sem er í gangi í dag.
Ég vil hvetja ykkur til að kynna ykkur þessa hljómsveit en í tónlistarspilaranum hér til hliðar má heyra heyrnarbrot af því sem hljómsveitin býður upp á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2008 | 08:11
Fiskeldisfundur II
Þá er fiskeldisráðstefnunni lokið og ég verð að segja að það var mjög ánægjulegt að fá þessa góðu gesti í heimsókn hingað en á ráðstefnunni voru fulltrúar allra þeirra fyrirtækja sem stunda þorskeldi á Íslandi auk fulltrúa frá Hafró, Matís, Fiskistofu, Landssambandi fiskeldisstöðva og yfirdýralækni fisksjúkdóma. Í dag fengum við alla hersinguna í heimsókn út á stöðina okkar og ég held að flestum hafi litist vel á aðstæður hjá okkur. Það eina sem okkur vantar er fiskurinn en það er aukaatriði.
Eftir úrhellisrigningu í þrjá daga er sjórinn í Berufirði orðinn grábrúnn, en ég hef ekki séð hann svona á litinn í þau fjögur ár sem ég hef verið að þvælast um fjörðinn. Við mældum seltuna og hún reyndist aðeins 13 prómill en full selta er 33 prómill, þetta er það lægsta sem við höfum mælt þannig að þessar rigningar hafa haft mikil áhrif. Fjörðurinn er hins vegar fljótur að jafna sig og fljótlega eftir að styttir upp er fullri seltu náð aftur. Allavega voru hnísurnar sem við mættum á úteftirleiðinni hressar.
Að fundinum loknum áttum við Elli svo spjall við Jón Árnason hjá Matís en þar er í gangi rannsóknarvinna fyrir íslenskt fiskeldi sem án efa á eftir að gagnast okkur í framtíðinni en hann skrifaði hjá sér minnispunkta fyrir starfsmenn Matís til þess að vinna út frá. Jón þessi er reyndar tengdur Djúpavogi þar sem tengdafaðir hans var prestur hér lengi vel og hann t.a.m. fermdi mig.
Annars er ég hættur í bili að blogga um fiskeldi þar sem það er kannski ekkert svo mjög áhugavert að lesa um svona stöff.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
S Kristján Ingimarsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar