Færsluflokkur: Bloggar
15.11.2008 | 10:38
For what it's worth
Vikan hefur verið nokkuð annasöm, en hún vinnulega hefur hún farið í vélaviðhald á Stapaey ásamt hefðbundinni umhirðu um fiskinn. Ég setti hér inn tvær myndir sem ég tók ofan í kvíunum um daginn en önnur sýnir hvernig fiskurinn leggst í torfu við botninn af hræðslu við skarf og hin sýnir fisk sem hefur orðið fyrir skarfabiti.
Kvöldin hafa svo að mestu farið í tónlistariðkun en framundan eru nokkrir viðburðir á því sviði, tvö gigg í kvöld og svo hippasjóv 20. des. Á Hótel Framtíð.
Við Brynja fórum í Faðirvorahlaup í gær og tókum þátt í Reimleikum Djúpavogs 2008 þar sem keppt var í afturgöngu, útburði og beinagrindahlaupi. Þegar leið á faðirvorahlaupið, sofnaði Brynja í miðju hlaupi, keppnisskapið var nú ekki meiri en það.
Ég lærði tvö ný orð í vikunni og bæði eiga þau rætur að rekja til forsetakosninganna í Bandaríkjunum.
Fyrra orðið er Obamamaniaeða Obamania en það er notað yfir þá sem eru heitustu aðdáendur Obama, þeir eru sem sagt með Obamamaniu.
Hitt orðið er Baracknophobiaen það er nú meira hugsað sem grín enda varð það til í The Daily show með Jon Stewart. Baracknophobia er að sjálfsögðu afbökun á Arachnophobia sem þýðir hræðsla við köngulær en Baracknophobia er skv Stewart skilgreind sem íþyngjandi hræðsla við að það sé von um betri tíð með blóm í haga í vændum. Aðrir nota orðið yfir hræðslu við Obama. Klippu úr þættinum má sjá hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2008 | 10:24
Nóvember er merkilegur mánuður
1. nóvember 1755. Jarðskjálfti leggur stóran hluta Lissabon, höfuðborgar Portúgals, í rúst og a.m.k. 50.000 manns láta lífið.
4. nóvember 1922. Gröf Egypska faraóans Tútankhamun finnst en hann var uppi á 14. öld BC.
5. nóvember 1936. Mamma fæðist.
9. nóvember 1989. Ríkisstjórn Austur-Þýskalands heimilar þegnum sínum að fara yfir til Vestur-Þýskalands. Byrjað er að brjóta niður hinn fræga Berlínarmúr.
11. nóvember. 1918. Heimsstyrjöldin fyrri endar. Yfir tuttugu milljónir manns létu lífið og 21 milljón særðist á þeim fjórum árum sem stríðið stóð yfir.
14. nóvember 1922. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur útsendingar.
19. nóvember 1969. Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Pele skorar sitt þúsundasta mark.
22. nóvember 1963. John F. Kennedy er skotinn til bana í Dallas í Texas.
23. nóvember 2005. Ellen Johnson - Sirleaf verður forseti vestur Afríku lýðveldisins Líberíu en hún er fyrsta konan til að gegna stöðu þjóðhöfðingja í Afríku.
28. nóvember 1893. Konur og karlar kjósa í almennum kosningum á Nýja-Sjálandi. Þetta er í fyrsta skipti sem konur fá að kjósa í þjóðarkosningu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2008 | 17:53
Veljum íslenskt
350.000 segja þeir, það er nú svona í hærri kantinum myndi ég segja, þ.e.a.s. ef miðað er við það verð sem mér var gefið upp fyrir tuttugu árum en verðgildi verslunarvarnings breytist jú reyndar með árunum og kannski er ekki rétt að bera saman verð í ólíkum löndum. Þannig var það samt, að fyrir tuttugu árum var ég staddur í Gambíu. Þar var það til siðs að ef menn höfðu augastað á stúlku þá færðu þeir feðrum stúlknanna tvær kýr og fengu í staðinn dótturina. Ég var nú ekki með beljur meðferðis en ég hafði hins vegar nýlega fjárfest í myndavél og það vildi svo skemmtilega til að upphæðin sem ég greiddi fyrir myndavélina var nánast sú sama og tvær beljur í Gambíu hefðu kostað, þannig að e.t.v. var þar kominn samningsgrundvöllur fyrir mig, þ.e. að skipta á myndavélinni og álitlegri Gambískri heimasætu. Af þeim viðskiptum varð hins vegar ekki. Sennilega hefðu það nú samt verið ágætis skipti fyrir mig þar sem myndavélin er löngu ónýt en sú Gambíska væri líklega í fullu fjöri þó e.t.v. hefði verðgildi hennar rýrnað eitthvað.
![]() |
Brúðir falla í verði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.11.2008 | 23:04
Dauðarefsing fyrir að stela mat
Þeir afræningjar sem hrella okkur mest í fiskeldinu hér á landi eru skarfar en nú er einmitt sá árstími hér fyrir austan þar sem mikið er um skarf. Skarfurinn heldur sig hér fyrir austan á veturna en fer vestur á Breiðafjörð og Vestfirði á sumrin. Skarfurinn er mjög fimur sundfugl og er duglegur við að kafa en það er einmitt það vandmál sem við eigum við að etja um þessar mundir. Skarfurinn kafar og nær sér í smáa þorska úr kvíunum og særir fjöldann allan með því að glefsa í þá. Það er vont fyrir fiskana að fá sár á roðið en það opnar leið fyrir sjúkdóma. Fiskurinn verður líka stressaður og minnkar át og þar af leiðandi minnkar vöxturinn. Þau ráð sem við höfum við þessu er að strengja net yfir kvíarnar en einhvern veginn tekst þeim að finna glufu og komast inn fyrir í mikla veislu. Þá er ekki um annað að ræða en að skjóta kvikindin, þó að mörgum þyki það hörð refsing fyrir að stela mat.
Í dag settist svo Gráhegri á eina kvína en hann náði að forða sér áður en ég komst í skotfæri. Það hefði nú ekki verið ónýtt að ná að skjóta negra, nei fyrirgefið, hegra, láta stoppa hann upp og hafa í svefnherberginu. Hegrinn er sérstakur að því leiti að hann flýgur með uppréttan haus og minnir mig svolítið á stork, mjósleginn með langa fætur. Kannski er þetta einhver fyrirboði, ætli við Íris þurfum ekki að skreppa á Neskaupstað fljótlega (í klippingu eða eitthvað).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.11.2008 | 11:29
Pólitík
Ég hef aldrei haft mikinn áhuga á pólitík og mér leiðist yfirleitt að fylgjast með rifrildum, útúrsnúningum og öllu því sem íslensk pólitík einkennist af. Mér finnst enginn flokkur hafa staðið sig vel og ég held að þegar á reynir þá sé þetta allt sama sultan í sitt hverri krukkunni og allir bera þeir sína ábyrgð. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa klúðrað málum gjörsamlega síðustu mánuði, Framsókn og Frjálslyndir eru að þurrkast út og Vinstri Grænir eru á móti öllu sem gert er og tala alla hluti niður án þess að koma með betri lausnir. Annars hefði örugglega ekki verið verra að hafa þá við stjórn núna en þá flokka sem eru við stjórn en á hinn bóginn, það hefði ekki verið neitt betra heldur enda hafa þeir aldrei axlað neina ábyrgð.
Ég held að Steingrímu Joð sé einn neikvæðasti stjórnmálamaður sem ég man eftir, hann er aldrei glaður eða ánægður með neitt sem gert er og út af þessu er maður löngu hættur að taka mark á honum. Þegar bankakreppan skall á kom SJS fram í sjónvarpi og sagðist vera sár og reiður. Steingrímur: HVENÆR ERT ÞÚ EKKI SÁR OG REIÐUR?
Ég tek þó fram að í öllum flokkum er ágætisfólk og það væri sennilega auðveldara fyrir mig að kjósa ef maður gæti kosið fólk en ekki flokka en ef yrði kosið í dag þá myndi ég örugglega sleppa því, spurning hvað maður myndi gera ef yrði kosið á morgun.
Í Simbabve þar sem allt er í kaldakoli, verðbólga yfir 200% og stjórnmálaástandið afar óstöðugt, þar eru seðlabankastjóri og fjármálaráðherra hámenntaðir hagfræðingar en hér á íslandi eru þeir lögfræðingur og dýralæknir. Hvorir búa í bananalýðveldi?
![]() |
Samfylking með langmest fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.11.2008 | 08:31
Kaffivél
Það hefur verið í ýmsu að snúast síðustu daga og ég hef varla gefið mér tíma til að kveikja á tölvu, hvað þá að blogga. Ég var reyndar búinn að setja inn blogg um það þegar ég flæktist í fíkniefnasmygl, eitt af þeim stærri hér á landi, en ákvað að taka það út aftur vegna tengsla minna við Slysavarnafélagið. Ég setti í staðinn inn mynd af okkur hér til hliðar þar sem við erum að sigla slöngubát slysavarnafélagsins en myndin er stolin frá Skara, sem er afbragðs góður myndasmiður og vonandi fyrirgefur hann mér þennan stuld. Þið getið skoðað myndirnar hans hér.
Síðasta helgi fór öll í vinnu og svefnleysið var algjört en við settum gat á Sigurrós og því fylgdi mikil vinna sem m.a. kom alveg í veg fyrir að maður kæmist á sviðamessu. Nú er hins vegar allt komið í lag á ný og vonandi verður þessi helgi "eðlileg" en það er fátt betra en að setjast við eldhúsborðið á laugardagsmorgni með kaffibolla og skoða það sem er helst í fréttum.
Og talandi um kaffi, ég átti erindi í fyrirtæki í Reykjavík um daginn og eins og er til siðs þegar góða gesti ber að garði er boðið upp á kaffi. Starfsmaðurinn sem bauð mér upp á kaffi hafði reyndar á orði að það væri komin ný kaffivél á kaffistofuna sem helst minnti á geimfar. Það virtist nú nokkuð til í því af því að stærðin á þessari sjálfvirku kaffikönnu var á við þrjá örbylgjuofna og þegar kaffibollinn, sem var ósköp venjulegur var settur á sinn stað, þá birtist mér í lifandi mynd máltækið krækiber í helvíti. Sennilega hefði með góðu móti mátt halda uppi nokkuð rökrænum samræðum við þessa vél en ég var svo frá mér numinn að ég hugsaði ekkert út í það á þeirri stundu.
Upphófst nú ein hin mesta sýning sem ég hef séð eitt heimilistæki framkvæma. Blá framhlið tækisins byrjaði að blikka ótt og títt eins og á dansgólfinu í Þórskaffi árið 1979, á hápunkti diskótímabilsins, auk þess sem gufur stigu út úr framhliðinni og liðu yfir framhliðina eins og köfnunarefnisgufur úr djúpfrysti. Töluverður skarkali fylgdi þessum gjörningi en skyndilega þagnaði allt og aðeins mjó buna af kaffi lak niður í bollann.
Þegar starfsmaðurinn rétti mér bollann með kaffinu var í honum u.þ.b. 2 matskeiðar af kaffi, sem var bara ósköp venjulegt kaffi, hvorki betra né verra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.10.2008 | 20:13
Hver er Sigríður?
Skítaveður. Það er víst að koma vetur hér, fyrsti vetrardagur á laugardag og Mörsugur að byrja.
Middlesborough, Sunderland, Hull, Stoke, er þetta listi yfir þau lið sem munu falla úr ensku úrvalsdeildinni í vor? Nei þetta eru nokkur af þeim liðum sem hafa unnið Tottenham í haust. Það er með ólíkindum að horfa upp á þetta Tottenham lið tapa fyrir hverju smáliðinu á fætur öðru. Þeir eru reyndar búnir að eiga einhver stangarskot og svona en það voru varnarmenn sem áttu þau skot, allavega var þeim stillt upp sem sem varnarmönnum, maður er ekki alveg að átta sig á leikskipulaginu og hver spilar hvar. Ég er viss um að ég gæti smalað saman fimm manna liði sem gæti unnið Tottenham eins og það er að spila núna. Með bundið fyrir augun.
Síðustu dagar hafa verið óreglulegir í vinnunni og sjávarföllin hafa stjórnað vinnutímanum en við höfum verið að taka botninn á Sigurrós í gegn en það er víst skylda að botnskoða báta á tveggja ára fresti. Þrjár fjörur og fjögur flóð var sá tími sem þurfti til þess að vinna verkið.
Það voru víst einhverjir mótmælendur að krefjast þess að Davíð Oddsson segði af sér. Ég held að það þurfi meira til. Það getur vel verið að hann sé ekki starfi sínu vaxinn en ég er hræddur um að það séu fleiri, hvernig er t.d. með þá sem réðu Davíð í Seðlabankann?
Biggi Thorberg benti á að Soulwax væri mjög vanmetin hljómsveit og ég skal viðurkenna að ég hef ekki heyrt neinn annan en Bigga tala um þessa hljómsveit. Kannski er þetta vegna þess að hún er Belgísk, en Belgísk tónlist hefur ekki verið fyrirferðamikil hér á landi, ég man bara eftir Vaia Con Dios og svo rámar mig í einhverja tekknósveit líka. Á Jútjúb eru nokkur myndbönd með þeim og hér er eitt. Þetta er nú ekki svo slæmt, kannski við ættum öll að reyna að koma af stað Soulwax bylgju.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2008 | 19:14
Doktorinn
Ég geri nú ekki mikið af því að lesa blogg hjá fólki sem ég þekki ekki neitt en eitt slíkt blog vinnst mér þó gaman að lesa og það er bloggið hans dr Gunna. Maðurinn er stórskemmtilegur aflestrar og ekki skemmir það nú fyrir að þar er stundum hægt að ná sér í tónlist á mp3 formi. Það vill nú líka svo skemmtilega til að í mínum huga er doktorinn ábyrgur fyrir vanmetnustu hljómsveit Íslands en það er hljómsveitin SH Draumur. Ég held að platan Goð sem sveitin gaf út í kringum 88 sé ein af 3 bestu plötum íslandssögunnar. Því miður á ég ekki tóndæmi í tölvunni handa ykkur, ég á bara Goð á vínil, þannig að þið megið gjarnan senda mér það ef þið búið svo vel að eiga það en lög eins og Öxnadalsheiði, Helmút á mótorhjóli og Zaragoza - Panama eru einstakar perlur.
Fyrst ég er kominn út í þessa sálma þá finnst mér Trúbrot vera ofmetnasta íslenska hljómsveitin og Pixies ofmetnasta erlenda hljómsveitin en mér finnst þær báðar vera afskaplega leiðinlegar. Ég er ekki viss hver er vanmetnasta erlenda hljómsveitin, einhverjar hugmyndir?Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.10.2008 | 17:39
Er þetta ekki bara málið?
Pútín er alveg milljón.
![]() |
Gísli Marteinn: Vill frekari skýringar á Rússaláni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2008 | 10:55
Kattaverndarfélag með 11,2 milljónir punda !!!
![]() |
Viðræður við sendinefnd Breta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
S Kristján Ingimarsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar